Fálkinn - 21.05.1938, Side 9
F Á L K I N N
9
v •:
ST. BERNHARDSKLAUSTRIÐ
i Alpafjöllum, seni, er frægasta sælu-
hús þar um slóðir inniluktist ný-
lega af snjóflóði. Myndin sýnir
munka frá klaustrinu og hunda
þeirra.
FRANSISCA GAAL,
ungverska leikkonan liefir nú verið
ráðin til Hollyvv'ood eins og svo
margar Evrópuieikkonur á undan
henni. Hjer sjest hún í fyrstu mynd-
inni, er hún ljek í vestra og heitir
„Thc Bucaneer“.
HOLLENSK HÁTÍÐ.
í iilefni af fæðingu Beatrix prins-
essu i Hollandi hafa öll hörn l'engið
að jeta nægju sína af hátíðabrauðinu
hollenska, seni er sykraðar tvibökur.
INDVEItJAR í LONDON.
lndverskir stúdentar í London
liöfðu nýlega kröfugöngu á Trafalgar
Square og kröfðust sjálfstæðis handa
tndverjum. í fylkingunni báru þeir
stórar myndir af Gandhi.
GUSTAP SVÍAKONUNGUR
iðkar enn tennisíþróttina, þó hann
sje nú um áttrætt. Myndin er tekin
af honiun í París nýlega, ásamt besta
tenniskennara Svía, Karl Schröder,
er konungur var á leið til sinnar ár-
legu vetrardvalar i Cannes.
BRÚÐKAUPSKLÆÐl
ÚR CELLOFAN.
Amerísk hjú sýna hjer á myndinni
hvernig brúðhjón framtiðarinnar líti
út er þau koma úr kirkjunni. Þau
eru í fötum úr cellofan.
Á sýningu frá Palestínu, sem hald-
in er i London, sjest meðal annars
þessi hluti úr vatnsleiðslu, sem Píla-
tus ljet gera árið 30, til þess að
lciða vatn úr Hebronslindum til
Jerusalem.
enska skautadisin, vann heimsmeist-
aratignina i listhlaupi á skautum i
Slockholm nýlega og sigraði meistara
síðasta árs, Cecille Colledge, sem
iíka er ensk.
MEGAN TAYLOR,
VATNSLEIÐSLA PlLATUSAR.
FRÆGUR LÖGREGLUSTJÓRI.
Myndin lijcr að ofan er af lög-
reglustjóranum í Wien, dr. Micliaei
Skubl, sem er talinn einn af fræg-
iistu glæpamálafræðingum Evrópu.
Hefir nýlega verið á ferðalagi um
norðúrlönd og haldið fyrirlestra.
SENDIHEIIRAR HJÁ HITLER.
Skömmu eftir að Hitler hafði „end-
urbætt“ þýsku stjórnina og Iátið
Schuchnigg Austurríkiskanslara falla
sjer til fóta, hjelt hann boð mikið
fyrir erlenda sendiherra í Berlín
ásaint frúm þeirra; einnig voru i
boðinu allir meðlimir þýsku alrikis-
stjórnarinnar og æðstu menn hers og
flota. Hjer á myndinni sjást frá
vinstri: Hitler að tala við sendiherra
Brasilíu, Moniz de Aragao, dr. Meis-
sner forsætisráðherra, von Búlow-
Schwante, austurriski sendiherrann
Tauschitz, Göring marskálkur, Bibb-
entrop utanríkisráðlierra og loks
lengst til hægri Henderson sendi-
herra Breta.