Fálkinn - 04.06.1938, Blaðsíða 2
F Á L K I N N
GAMLA BÍÓ
Sýning á annan í hvítasunnu.
E N G I L LI N N
Aðalhlutverkin Ieika:
HEUBERT MARSIIALL,
MARLENE DIETRICH,
MELVYN DOUGLAS.
Gulifalleg og hrífandi Paramountmynd, tekin undir stjórn
kvikmyndasnillingsins ERNST LUBITSCH.
Gamla Bíó sýnir á næstunni góða
Paramount-mynd, sem tekin er und-
ir stjórn hins fræga ieikstjóra Ernst
Lubitsch. Hann er nú alinent áiitinn
meðal hirina slingustu kvikmynda-
ieikstjóra og hefir lengi notið mik-
ils álits. Um skeiS var hann starf-
andi hjá Ufa fjelaginu, sem sendi
frá sjer margar ágætar kvikmyndir.
— Hans síðasta afrek á sviði kvik-
myndatökunnar er „Engillinn“. Einn
af kunnustu kvikmyndadómurum
Svia hefir gefið myndinni ágæt
meðmæli.
Höfuðhlutverk myndarinnar er
leikið af hinni heimsfrægu, jiýsku
leikkonu Marlene Dietrich. Og fer
hún með það svo sem ætla má með
mikilli prýði. •—
Fáar leikkonur hafa átt jafn glæsi-
lega listabraut og hún. Marlene
Dietrich er fædd í Weimar, sem er
einn mesti sögustaður í Þýskalandi
(bær Goetlie og Schillers). Hún er
dóttir háttsetts embættismanns í
hernum, er fjell í heimsstyrjöldinni
miklu. Var M. D. ]iá á barnsaldri.
IJng var hún send til Berlin til þess
að læra þar sönglist, en fyrir viss
atvik gaf hún námið upp.
Hún bjó sig því næst undir það
að ganga i þjónustu leiklistarinnar,
en það kostaði hana mörg ár að
vekja á sjer athygli á þessu sviði.
Það var árið 1920, að hún vann
sinn mikla sigur, er lnin ljek móti
Emil Jannings í myndinni „Blái
engillinn.11 Frá þeim tíma liefir hún
verið ein af skærustu „filmstjörn-
unum".
Tveir aðrir leikarar hafa mjög
aukið frægð sína með þátttöku í
þessari mynd, þeir Herbert Mar-
shall og Melvyn Douglas. Marshail
hafði lítið eitt byrjað á leikstarf-
semi, er stríðið skall á. Hann gekk
í herinn og gat sjer þar góðan orð-
stír. En strax að stríðinu loknu fór
hann að leika á ný, einkum í kvik-
myndum. — Melvyn Douglas er
miklu yngri i listinni en Marshall,
en að liann nýtur álits sýnir best,
að honum hefir verið falið að leika
ldutverk í tveimur meiri háttar kvik-
myndum móti Claudette Colbert.
Kvikmyndin „Engillinn“ er „spenn
andi“ frá upphafi til enda og mun
engan iðra að sjá hana. Nafn Mar-
lene Dietrich, sem við hana er tengt
er næg sönnun fyrir því.
Giúlbrúðkaup áttu 1. þ.m. hjón-
in Magnús Magnússon bóndi og
kona hans Þjóðbjörg Þorgeirs-
dóttir, að Villingavatni í Grafn-
in.gi. — Sama dag átti Magnús
cinnig áttræðisafmæli. —
NÝJA BÍÓ
„B O H E M E L í F“
Stórfengleg þýsk söngvakvik-
mynd. Aðalhlutverkin Ieika
þau hjónin:
MARTHA EGGERTH
og hinn heimsfrægi pólski
tenorsöngvari
JAN KIEPURA
ásamt Mimi Shorp, Oscar
Sima og skopleikararnir frægu
PAUL KEMP og
THEO LINGEN
llrífandi hljómlist, heillandi
söngvar, gamansamt og a/-
varlegt efni fylgist að með að
gjöra þessa mynd töfrandi
og ógleymanlega öllum er
hana sjá og heyra. Frægustu músikfrömuðir Evrópu, söngmenn
og söngkonur, hafa í blaðadómum talið þessa mynd þá allra
bestu, sem Kiepura hefur leikið í til þessa dags, því hún sje
stórfenglegur og sjerstæður músikviðburður, sem örsjaldan gefst
tækifæri á að kynnast í kvikmyndahúsum.
Dr. Guðmundur Finnbogason,
landsbókavörður verður 65 ára
6. þ. m.
ER l'.UI M0GULKOT?
Getur maður haft ánægju
af að raka sig?
Já, ef notað er
PIROLA RAKCREM
Því það gerir skrggbrodd-
ana silkimjúka á fáum
augnablikum, VEGNA fyrsta
flokks hráefna og sjerstak-
lega góðrar efnasamsetning-
qr. — Notið svo
PIROLA Skin Tonic
eftir raksturinn. Það kælir
og hressir, gerir hörundið
mjúkt og ver það bólum.
Munið:
P I R O L A
fyrst off síðast.
PirolA
RAKCREM E
Páll Oddgeirsson, kaupm. i
Vestmannaeyjum, verður 50
5. þ. m.
Kvikmyndafjelagið Warner Bros.
hefir í hyggju að taka æfisöguAlfred
Nobels á kvikmynd með líkum hætti
og myndirnar af Zola og Pasteur.
William Deterle á að stjórna mynda
tökunni.
Guðbjartur Guðbjartsson, vjel-
stjóri Túnqötu 43, verður 65 ára
' 10. þ. m.
Franska kvikmyndablaðið „Ciné-
n;onde“ þykist hafa aflað sjer upp-
lýsinga um, hvaða kvikmyndaleik-
endur frægt fóik vilji helst sjá.
Byrjar blaðið með frú Simpson,
hún vill helst sjá Bette Davis og Fred
die Barthulemew, en hertoginn af
Windsor kýs helst Gretu Garbo og
Robert Taylor. Hertogahjónin af
Kent eru saminála um, að Fred
Astaire og Ginger Rogers sjeu skemti
legust. Delbos utanrikisráðherra
Frakka vill Shirley Temple en Her-
riot Chaþlin. Kristján Danakonung
ur Gary Cooper. Ennfremur segir
blaðið) að Hákon Noregskonungur
fari átta sinnum í bió á viku.
Fegurðardrotning Evrópu „niiss
Evrópa 1938“ verður kjörinn í Kaup-
mannahöfn í haust. Þangað eiga að
koma þær stúlkur, sem fimtán lönd
hafa kosið fyrir fegurðardrotningar,
og þar velur m. Waleffe frá Pans
úr þeim.