Fálkinn - 02.07.1938, Qupperneq 8
8
F Á L K I N N
Fallegur handprjónaður barnakjóll
-x—8—**-6-*-5* <4-*^-
Efni:
300 gr. blátt eða rautt ullargarn,
])rjónar sem samsvara garninu.
Útbúið snið í rjettri stærð og eftir
fyrirmyndinni. Málin sem hjer eru
gefin upp eru mátuleg fyrir 4—5
ára telpu. Athugið hvort málið pass-
ar áður en þjer sníðið.
Treyjan og pilsið er með gataut-
l>rjóni. Sýnishorn V. Útprjónið á
pilsinu er þannig:
1. prjónn: (Rjettan). Hliðarlykkja.
Prjónið 2svar sinnum 2 1. r. saman,
sláið 2svar upp á prjóninn, þannig
að garnið komi aftan frá yfir prjón-
inn. Þetta endurtakist prjóninn út.
2. prjónn: (Rangan). Hliðarlykkja.
Allar 1. prjónist snúnar.
Þessir tveir prjónar eru endur-
teknir fjórum sinnum.
Útprjónið á treyjunni er þannig:
1. prjónn. (Rjettan). Hliðarl., 8
I. r., 2 j. r. prj. saman, sláið upp á
prj.,'4 1. r., 2 I. r. prj. saman, sláið
upp á. Haldið svona áfram prjóninn
út.
2. prjónn. (Rangan). Allar 1.
prjónist sn.
Tungurnar neðan á pilsinu prjón-
ist 'þannig: 6 prjónar sljett prjón;
því næst 1 prjónn sem er 2 1. r.
prj. saman, slegið upp á prj. til
skiftis prjóninn út; við það mynd-
ast gataprjón og brýtur maður þar
inn af kjólnum svo tungurnar mynd-
ist.
Pilsið. (Helmingur).
Sýnishorn II. Lykkjufjöldann, sem
fitja á upp er bezt að finna með því
að hekla loftlykkjuröð, sem er
jafnlöng neðstu rönd sniðsins' hjer
44 cm. Þessar loftl. telur maður og
jafn margar 1. eru fitjaðar upp. Svo
eru prjónaðir eins og áður er sagt
(i prj. sljettir, svo kemur gataprjónið
sem ó að mynda tungurnar, þá aft-
ur 6 prj. sljettir. Svo kemur bekk-
urinn með gataútprjóninu, eins og
áður er skýrt frá, svo 10 prj. sljett-
ir, þá næsti útprjónsbekkur og aftur
10 prj. sljettir og svo seinasti út-
prjónsbekkurinn; svo er sljett prjón
og eftir sýnishorninu prjónist gata-
útprjón hingað og þangað ofar á
pilsinu. Takið úr í bóðum hliðum
eins og fyrirmyndin sýnir. Hinn
helmingurinn er prjónaður nákvæm-
lega eins.
Treyjan. (Helmingur).
Sýnishorn I. Finnið iykkjufjöld-
ann, sem fitja á upp, eins og fyr er
sagt. Prjónið 8—10 prjóna sljett
prj., því næst gataprjónið eins og
óður er frá skýrt. Prjónið beint að
handveginum; þar eru feldar af 5—
6 1. á hvorri hlið og byrjið næstu
(i prjóna með þvi að fella af 1 1.
Þvínæst er prjónað áfram að háls-
málinu; þar eru feldar af 8—10 I. i
miðjunni og axlirnar prjónaðar hvor
fyrir sig og feld af 1 1. hólsmegin
ti! þess að ávalinn myndist. Öxlin
er feld af í þrennu lagi. Hinn helm-
ingurinn prjónist eins.
Ermarnar.
Sýnishorn III. Prjónið fyrst 3 cm.
breiðan bekk brugðinn, það er 1 1.
r. og 1 1. sn. til skiftisA Svo kemur
sama gataútprjón og á treyjunni.
Aukið út að úrtökunni; þar eru
fyrst feldar af 6 1. í hvorri hlið, svo
er tekið jafnt úr þangað til 16 1. eru
eftir á prjóninum, sem eru feldar af
i einu.
Faldið pilsið að neðan. Vætið öll
sfykkin, leggið þau yfir sniðin og
strjúkið þau Ijett undir deigum klút.
Þegar stykkin eru þur, er pilsið
saumað og síðan treyjan og svo er
þetta hvorttveggja saumað saman.
Ermarnar saumaðar við.
Kraginn.
Sýnishorn IV, er saumaður úr
hvítu „pique“ eftir sniðinu og er
hann hneptur saman með 2 hnöppum.
ínez de Castro kona Pedro I. kon-
ungs í Portugal var krýnd eftir að
hún dó. Tengdafaðir hennar hafði
ætlað syni sínum aðra konu og ljet
drepa Inez. En sjálfur dó hann
þremur árum siðar og tók Pedro
þá völd. Ljet hann grafa upp líkið,
klæða það í drotningarskrúða og
krýna það í hásæti.
Senjora Salomea Wolf ljet tattó-
vera mynd af bónda sínum á tung-
una á sjer, „til þess að geta nag-
að hann í hel.<< Þetta heiðurskvendi
átti heima i Jerez ó Spáni.
-"W /w /W ^
Það gerist margt skrítið á okkar
dögum. Nýlega giflust hjón í Ame-
ríku, sem höfðu aðeins kynst gegn-
um graminofónplötur. Þau töluðu
inn á þær og sendu hvort öðru.
Eftir að hafa hlustað á nokkrar
plötur urðu þau svo hrifin af hvors
annars rödd, að þau ákváðu að
ganga í heilagt hjónaband. — Þeg-
ar pilturinn hafði hlustað á sein-
ustu plötu stúlkunnar, tók hann
sligann í þremur stökkum, steig upp
SPORTSKLÆÐI.
Pils, ermar og jakki er með „beige“
lit, en vestið, sem, mikið ber ó, þvi
að jakkinn er hafður opinn að fram-
an, er ryðrautt. Hálsklúturinn getur
verið hvort heldur vill grænn, kan-
elbrúnn eða gulur.
í flugvjel og flaug í skyndi til henn-
ar — og þau voru orðin hjón fyrir
guði og mönnum nokkrum mínútum
síðar.
Karl Kmetty, ungverskur liðsf'oi’-
ingi, sem játað hafði á sig 280 glæpi,
fór I meiðyrðamál við ritstjóra einn
í Budapest. Sá hlýtur að hafa sagt
eitthvað mergjað.