Fálkinn


Fálkinn - 02.07.1938, Blaðsíða 14

Fálkinn - 02.07.1938, Blaðsíða 14
14 F A L K 1 N N Heimsókn þý§ka knattspyrnnflokksins. Hohmann Rohr Michl Bertram Althoff A laugardagskvöklið kom flokkur þýskra knattspyrnumanna liingað með Goðafossi frá Hamborg, til þess að keppa við íslendinga i fjórum kappleikjum. f þessu liði, sem telja má úrvalsiið. eru 16 menn auk far- arstjóranna dr. Erbach og Riemanns yfirkennara. Mörgum Reykvíkingum mun enn í fersku minni koma þýsks knattspyrnuflokks árið 1935. Hann var einnig hingað sendur undir forustu dr. Erbacli. Knattspyrnumennirnir þýsku, er hjer dvelja nú, eru víðsvegar að úr Þýskalandi og má geta þess, að meiri partur liðsins eru stúdentar og fimm af þeim tóku þátt í atþjóða- knattspyrnukepni stúdenta, er haldin var i Paris 1937 og lauk með sigri Liidecke Voss Linken Þjóðverja. Snjallasli maðurinn í lið- ur. Hann hefir 2ö sínnum tekið inu er þó án efa Hohmann, sem þátt í millilandakepni. þjálfar liðið meðan á ferðinni stend- Allur er ftokkurinn hinn glæsi- legasti og hefir honum verið vel fagnað. Meðan hann dvelur hjer býr hann á Stúdentagarðinum. En skemti ferðir verða með hann farnar til ýmsra fallegra staða hjer i nágrenn- inu. — Það er merkilegur viðburður í ís- lensku íþróttatífi, að fá heimsókn stíks flokks sem ])essa og mega ís lenskir knattspyrnumenn án efa margt af honum læra. Þegar þetta er ritað, hefir l'yrsti kappleikurinn farið fram og var það á mánudagskvöklið og kepti þá úr- valslið íslendinga við hann. Skoruðu Þjóðverjar 2 mörk, en íslendingar 1. Leikurinn fór óvenju prúðmann- lega fram og báðum aðilum til sóma fíappa Lurz Lindemann Pnjsock Koppa Peschel 7alið frá vinstri: Hohmann, þjálfari liðsins, dr. Erbach fararstjóri, Rie- mann Oherstudienrat, aðstoðarmaður dr. Erbachs og Gísli Sigurbjörns- son, form. móttökunefndar. BÆNDAFORIN. Framhald af bls. 3. Óefað mun þessi för sunnlensku bændanna verða til þess að bændur úr hinum landsfjórðungunum fara að hafa sig á kreik og fara í stíkar ferðir til ókunnugra hjeraða, fara að taka sjer sumarfrí á hentugum tíma, eins og aðrir þegnar þjóð- fjelagsins, og fyrir utan þá skemtun sem það er að ferðast, má lika læra margt af því, sem fyrir augun ber. Og síðast en ekki sist er það stór- raikils um vert, að bændurnir sunn- an Jands og norðan, austanlands og vestan kynnist hverjir öðrum. Sje kynningin góð leiðir af henni sam- úð og samheldni. Því að það er hverju orði sannara, það sem Jón á Ystafelli sagði í niðurlagi ræðu sinnar á Laugum, við sunnlensku bændurna: „Þegar þið hafið farið uni alt landið, þá fyrst finnið þið að þið eigið alt landið og bændur sunnan lands og norðan eru eitt.“ Að róðist var í þessa för mun fyrst og fremst vera að þakka Guð- • mundi Þorbjarnarsyni á Stóra-Hofi Þátttakendurnir að Hólum í Hjaltadal. 1 á Rangárvölhim. Hann hefir um tutl- ugu ára skeið verið formaður Bún- aðarsambands Suðiirlands. Hann var einnig atdursforsetinn i förinni. í næsta mánuði verður hann 75 ára, en flestir halda hann minst 10 árum yngri, Hann var atstaðar nálægur, altaf vakandi ásamt fararstjóra og flokkstjórum yfir að alt mætti fara sem best. Frá Þingvöllum hjelt svo hver heim til sín. Allir voru ánægðir og margir sögðu að þá hefði ekki dreymt um annað eins æfintýri og þessi Norðurlandsför varð þeim, sem tóku þátt í henni. Þegar morgunsólin rann upp bak við Ármannsfell settust menn upp í bílana. En næstu árin munu marg- ir lifa í endurminningunni um þessa ágætu för. Ragnar Ásgeirsson. *f« Alll með (slenskum skrpum1 «fi

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.