Fálkinn - 10.12.1938, Side 7
F Á L K I N N
7
5 *
FLÓTTAFÓLK FRÁ AUSTURRÍKI.
Gyðingalœknir aS skoða kvensjúkl-
ing í tjaldbúðunum við Diepoldsau í
Sviss, þar sem Gyðingum er flúið
lrafa frá Austurríki hefur verið kom-
ið fyrir.
lands“, sem pólsku flugmennirnir
Burzynski og Hynrk ætla að nota til
að setja met í hásvifi sjest lijer á
myndinni. Hann er nú að heita má
fullger.
JOHN COBB,
frægur, enskur liraðaksturskappi, er
farinn til Ameríku, þar sem hann
ætlar sjer að setja heimsmet í akstri
á saltlendinu í Utah.
NÝTÍSKU SJÓNVARPSTÆKI.
Síðasta sjónvarpsnýjungin er þetta
litla viðtökuáhald, sem sýnt hefir
verið nýlega í London. Það er svip-
að venjulegu símaheyrnartóli, en í
öðrum enda þess er glerhimna, sem
myndirnar koma fram á.
Allir sem hafa ferðast mikið í
bíl kannast við hve það er óþægi-
legt, þegar bíllinn ,,punkterar“. Nú
hafa menn í Englandi fundið ráð
til þess að fyrirbyggja þetta, með
því að sprauta vökva inn í bílhjólið.
Á ALPATINDUM.
Iljer sjást franskir veiðimenn að
snæðingi á Alpatindum. Geitin á
myndinni virðist ekki smeik við
þá, þar sem hún etur úr lófa ann-
ars veiðimannsins.
í LONDON
hafa dvalið undanfarna mánuði
tveir synir Ibn Sands Arabakon-
ungs; krónprins Amir Sand er til
hægri á myndinni.
NÝTT ÞÝSKT LOFTSKIP.
Nýja þýska loftskipið „Zeppelin
greifi“ svífur yfir Fredrickshafen í
einni af fyrstu reynsluferðum sínum.
í baksýn sjest hin mikla loftskipa-
smiðja, þar sem báknið varð til.
STORKURINN 1 HEIMSÓKN.
Storkapabbi hefir tylt sjer niður
á þaki bóndabæjarins. Hann gægist
niður um reykháfinn eins og hann
væri að hugsa um að heilsa upp á
íólkið.
STALIN ÞVEGIÐ.
'Myndirnar í vaxmyndasafni frú
Tussand i London eru daglega þvegn
ar. Þegar ljósmyndin var tekin var
verið að þvo Stalin.
DÓMKIRKGJAN í BARCELONA,
gömul, falleg kirkja í gotneskum stíl,
sjest hjer á myndinni. Hún hefur
orðið fyrir stórkostlegum skemdum
upp á síðkastið við loftárásir, sem
gerðar hafa verið á borgina.
UNGFRÚ SVISS.
Nýlega var haldin fegurðarsam-
kepni i Sviss. í samkepninni sigraði
19 ára gömul stúlka, ungfrú Brun,
er siest hjer á mvndinni.