Fálkinn - 10.12.1938, Síða 14
14
F Á L K I N N
JÓLA-KERTI
STERIN-KERTI
MISLIT-KERTI
STERINBLÖNDU-KERTI
PARAFIN-KERTI
ALTARIS-KERTI
ANTIK-KERTI
35 CM.-KERTI
KUBBAR
KLUMPAR
BHDKI.
KERTI
á
Jólaboröiö.
Sleðaferðir barna.
Eftirtaldir staðir eru leyfðir
fyrir sleðaferðir barna:
Amarhóll.
Torgið fyrir vestan Bjarnaborg milli Hverf-
isgötu og Lindargötu.
Afleggjarinn af Barónsstíg sunnan við
Sundhöllina.
Bragagata frá Laufásvegi að Sóleyjargötu.
Egilsgata frá Barónsstíg að Hringbraut.
Bjargarstigur milli Óðinsgötu og Bergstaða-
strætis.
Biskupsstofutún, norðurhluti.
Vesturgata frá Seljavegi að Hringbraut.
Bráðræðistún, sunnan við Grandaveg.
Bifreiðaumferð um þessar
götur jafnframt bönnuð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 9. nóv. 1938.
Jónatan Hallvarðsson
settur.
Austurbær:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
Vesturbær:
1.
2.
3.
PRJÓNLESSÝNINGIN.
Framh. af bls. 3.
fá þa<5 band úr íslenskri ull, sem
flestum íslenskum húsmæðrum og
hannyrðasteinkum er tamt að kalla
„garn“ — því útlent er það — hafa
þær látið taka ofan af góðri íslenskri
ull, síðan gert tilraunir með bandið
og látið spinna það á ýmsan hált.
Og svo er unnið úr þessu bandi.
Það sjest sjálft á sýningunni og eins
það, sem unnið er úr því. Það er
fcllegt — og það er gott. En ef ekki
er hægt, að ýta undir þær af kven
þjóðinni, sem vantar útlent „garn“
til að vinna úr, þá er það ekki bet-
ur hægt á annan hátt en þann, að
biðja þær um, að skoða bandið á
sýningunni — islenska bandið — og
sjá livað úr því er gert. Og ef það
er ekki hægt að ýta undir islenska
þjóð nútímans, sem kanske aldrei
hefir iært „úr þeli þráð að spinna“
þá verður það ekki betur gert með
öðru en þvi, að þukla á íslenskum
þelsokkum, eins og þeir eru þarna
— og finna svo muninn á útlenda
dótinu. Þá munu þeir sanna, að
„holt er heima hvat“.
Nánari lýsing á sýningunni verð-
ur því miður að bíða næsta blaðs —
og þá er sýningunni máske lokið.
En þarna gefur að líta heilt safn af
handbragði, listfengi, uppgötvunar-
gáfu og smekkvisi ■— og alt er það
íslenskt. Sjáið þetta alt, áður en það
er orðið of seint og fylgist vel með
auglýsingum dagblaðanna um hve-
nær sýningunni verði lokið. Því að
flestir fresta öllu sem hægt er að
fresta til næsta dags.
Andvari.
MUSTAFA KEMAL ATATÚRK.
Framh. af bls. 5.
Hann tók og þátt í heimsstyrj-
öldinni við góðan orðstír. For-
sætisráðherra varð liann skömmu
eftir að lýðveldið var stofnað og
hefir verið það fram til þessa.
Samvinna milli Kemals og hans
var jafnan hin ágætasta og var
hann Kemals önnur hönd í
mörgum lielstu endurbótunum,
er gerst hafa i Tyrklandi sein-
ustu árin.
Án efa hefir Ismet Pasha ver-
ið sjálfkjörinn í sæti Mústafa
Kemals, en hvort hann verður
jafnoki hans á framtíðin eftir
að skera úr.
Nýjar bækur.
Victor Heiser: LÆKNIRINN.
ísafoldarprentsmiðja h.f. •—
Freysteinn Gunnarsson þýddi.
Þessi mikla og merkilega bók er
sjálfsaga ameríkanska læknisins
Victor Heiser og hefst á því, er hann
16 ára gamall lendir í árflóði í
Pennsylvanía, sjer fæðingarbæinn
sinn sópast á hurt og missir bæði
föður sinn og móður. Hann stendur
uppi alts laus en berst þó i því að
læra til iæknis nær læknisprófi sem
herflotalæknir og er sendur til Ev-
rópu til þess að hafa eftirlit með
heilsufari þeirra, sem fluttust til
Bandaríkjanna. ítalir voru fyrsta þjóð
in sem hann kyntist. Síðan átti hann
eftir að dvelja lengur eða skemur í
um þrjátíu þjóðlöndum en lengst
dvaldi hann í Manila á Filippseyj-
um, sem heilbrigðisstjóri Banda-
ríkjastjórnarinnar þar. Að því loknu
varð hann erindreki og starfsmaður
hinnar frægu Rockefellerstofnunar
og ferðaðist í hennar þarfir víða um
heim, en þó einkum um Asíulönd.
Eitt af fyrstu verkum hans á Fil-
ippseyjum var að berjast við svarta-
Framh. á nœstu síðu.
JðlaMað
FÁLKANS
kemur út 18. desember.
56 síður, með skrautlegri
kápu með mynd af Stranda-
tindi við Seyðisf jörð í þrem
litum á forsíðu.
Afar fjölbreytt að efni, með
sögum, greinum og fjölda
mynda.
Landsins stærsta og
langsamlega besta jóla-
blað, sem allir veróa
að lesa.
Eitthvað fyrir alia.
Inn á hvert einasta
heimili.
Kostar aðeins eina kr.
Þessvegna ódýrasta
jólablað landsins.
Munið að kanpa
það í tíma.