Fálkinn


Fálkinn - 12.05.1939, Blaðsíða 10

Fálkinn - 12.05.1939, Blaðsíða 10
10 F Á L K I N N SKEMTILEGUR PÖNNUKÖKUHATTUR, úr strái, skreyttur svörtu flauels- bandi og slöri. KLASSISKI ENSKI HATTURINN, sem var svo mjög i tísku um alda- mótin, er nú kominn aflur í nýrri út- gáfu. Þessi hjerna er blá- og rau'ð- röndóttur eins og kraginn á dragl- inni. BLÓMSTRANDI HATTUR, er uppáhalds tískan í vor; og hver getur staðið á móti slíkum hatti með brúsandi slöri. EINN AF HINUM SKALDLEGU V ORHÖTTUM, alsettur allavega titum vorblómum, ásamt berjum, hnetum og kuðungum að ógleymdu slörinu, sem er efnis- mikið og mislitt. RAFMAGNS NAGLAÞJÖL. Þetta er hið nýjasta á handsnyrt- ingarsviðinu. ÞESSI MYND ER TEKIN f EINUM SKEMTIGARÐI LUNDÚNABORGAR. Sjerkenniiegur liattur með úrskífu á fiötum kollinum og dúsk framan á enninu til þess að draga úrið upp með. Þeir sem nærstaddir eru biða sjálfsagt með eftirvæntingu eftir hvað muni gerast kl. 5 mín. fyrir 3. HINN ÓDAUÐLEGI SPORTFRAKKI. Sportfrakkinn er þrátt fyrir all skrautið og íburðinn mjög í tísku í ár. Hann er venjulega jafnsíður kjólnum, stórköflóttur, opinn að framan, og þessvegna er nauðsynlegt að vera í kjól sem passar við hann. Frakldnn á myndinni er græn- og livitköflóttur og kjóllinn hvítur. i vr,m iu mynda kragann á þessari kápu. l5að ei mjög vel viðeigandi að nota kó- sakkáhúfu við. DrEkkið Egils-öl „Þú gleymdir kollunni minni“. Fvamh. frá bls. !). Mun amtmaður hafa haft skemtun af Kláusi. Kláus var mikill drykkju- maður. Er sagt, að hann hafi sníkt sjer stundum áfengi í Reykjavik fyr- ir að fara með vísur og kviðlinga, sem amtmaður hafði ort um liann. Nú bar svo við einn töðugjaldadag, að amtmaður reið síðla dags inn á Akureyri, og var Kláus í fylgd með honum og eittlivað fleira af lieimilis- fólkinu. Hjelt það heim aftur um nóttina. Mórguninn eftir var gott veður. Attu vinnumennirnir að slá kíl nokk- urn þá um daginn. Þennan morgun var Kláus árla á fótum að vanda, þótt liann nyti góðgerðanna i full- um mæli kvöldið áður. Tekur hann orf sitt og fer til sláttar. Þá er hann hafði litla stund slegið, leggur hann frá sjer orfið, kvað sjer ilt í liöfði <;g óþægilegt og leggur sig niður á þúfu. Svo líður og bíður nokkur stund, þar lil hans er vitjað. Er þá með engu móti hægt að vekja hann, hvernig sem ýtt er við honum. Er þá farið heim lil amtmanns og honum sagt frá þessu. Sendi hann þegar eftir Ólafi Thorarensen lækni á Hofi. Kom hann þegar og skoðaði Kláus og kvað hann örendan. Sagði hann, að blóðfall hefði gengið lil lieilans hæði af fótakuldanum og svallinu kvöldið áður. Amtmaður ljet vaka yfir Klá- usi nokkrar nætur og gerði heiðar- lega útför hans. Nú leið og beið til næstu jólanæt- ur. Amtmaður hjelt mikla veislu að vanda, og eftir það gekk fólk til náða. Þegar amtmaður hafði blund- að litla stund, þykir honum Kláus koma til sín og segja: „Þú gleymdir kollunni minni í kvöld“. Við þetta vaknar amtmaður og fer á fætur og klæðir sig. Heyrir hann, að skrifar- inn er ennþá á ferli i næsta her- bergi. Kallar ámtmaður til háns og biður hann að líoma með ljósið. Skrifarinn bregður fljótt við og geng- ur inn til amtinanns. Tekur amtmað- ur þá brennivínsflösku og kolla Kláusar og staup með og biður skrif- arann að koma með sjer út i kirkju- garð. Nema þeir þar staðar við leiði Kláusar. Þar tekur amtmaður til koll- unnar, fyllir hana þrisvar sinnum og hellir ofan í sprungu eða holu i leiðinu, fær sjer um leið staup og segir: „Hjerna eru iiú kollurnar okkar Kláus minn!“ Að því búnu hverfa ámtmaður og skrifarinn heini í háttinn. Eftir þetta dreymdi amt- mann Kláus aldrei framar. Skrifarinn spurði amtmann, hvern- ig á atferli hans hefði staðið, og sagði amtmaður honum það. En skrifarinn sagði söguna löngu síðar. (Handrit Jóns Borgfirðings). HVAÐ ER MILJARD? Menn geta gert sjer nokkra hug- mynd um hve einn miljard sje stór á því að hu,gsa sjer, að sá sem á miljard krónur, getur eylt 50.001) krónum á dag í 50 ár án þess .ið eyða nema höfuðstólnum. Renturnar eru þar fyrir utan. — Hefði maður einn miljard í eintómum krónupen- ingum, mundi það taka fiman mann fjörutíu ár að telja upphæðina, þó hann keptisl við það tólf stundir á hverjum degi. Og fylking miljard her manna mundi ná lólf sinnum kring- um jörðina, ])ó að fjórir menn væri i hverri röð. Sá siður, að láta óánægju sína í ljósi með flautublistri í leikhúsum og öðrum mannfundum, stafar frá 14. janúar 1686. Þá var það að áheyrandi einn i franska þjóðleikliúsinu fór að blása í pípulykii, við leiksýningu. Og kvöldið eftir bljes fjöldi fólks i lykla eða blístrur. En fyrir þennan tíma var það siður, að lála í ljósi óá- nægju sína yfir leiksýningum með því að geispa.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.