Fálkinn


Fálkinn - 19.05.1939, Blaðsíða 2

Fálkinn - 19.05.1939, Blaðsíða 2
2 F Á L K 1 N N FLÓRA Hú ev aðaitíminn til þess að planta úí í garðana. Höíum mikið úrval aí matjurta ng blúmaplöntum. FLÓRA GAMLA BlÓ. Næst á eftir Mjallhvít ætlar Gamla Bíó að sýna gamanmynd frá Ufa kvikmyndafjelaginu undir nafninu: Sjö löörungar. — Myndin er tekin af ágætum þýskum kvikmyndastjóra, Paul Martin. Aðallilutverkin tvö eru leikin af hinum frægu leikurum Lilian Harvey og Willy Fritsch. En auk þeirra fer Oscar Sima mjög vel með allstórt hlutverk. — Persónur þessarar fjörugu myndar eru Astor Terbanks, forstjóri fyrir Union-stál- smiðjunum, Daisy, dóttir hans (Li- lian Harvey), Mac Phab (Willy Fritsch), Laskett blaðamaður og jarlinn af Wigglebottom. Ungur Englendingur, Mac Phab, er staddur á stjórnarherbergi í Union slálsmiðjunum, og er í versta skapi yfir því, að hafa mist heil sjö pund í hlutabrjefum sínum í smiðjunum. Hann verður að látast vera sonur stálkongsins, Astor Terbank til að gera sjer vonir um að fá að sleppa inn, en honum er altaf snúið við. Hann sver þess nú dýran eið að hefna sín á Terbank, og daginn eftir les hann í „London News“, að viss maður ætli að gefa sjer sjö löðr- unga á sjö dögum. Dóttir Terbanks, Daisy, er æf yfir frekju mannsins, og síst verður hún betri eftir að faðir hennar hefir fengið fyrsta löðrunginn, sem honum hefir verið heitinn. Biðill Daisy, jarlinn af Wiggle- bottom lofar að vernda stálkonung- inn, en Daisy kýs fremur að gera það sjálf. Það er mikið talað í London um heitingar Mac Phabs, og semur hann við blaðamann við „London News‘‘ að gefa upplýsingar um alt, sem gerist í málinu og fær í fyrirfram- greiðslu 50 pund. Á skrifstofu „London News“ fær Mac Phab brjef frá ungri, ónafn- greindri stúlku, er dáist að fíil- dirfsku hans og óskar eftir að hitta hann í Hyde Park. Mac Phab, sem er æfintýragjarn, ungur maður, tekur tilboðinu, og stúlkuna hittir hann á tilsettum stað og tíma — og stúlkan er Daisy, dóttir stálkongsins, sem Mac Phab þekkir ekki að visu. Það er ekki að sökum að spyrja, að þau verða ástfangin hvort af öðru. En þó að pilturinn sje i einu báli til stúlkunnar, gleymir hann ekki að löðrunga föður hennar án þess að í hann náist, eins og hann hefir heitið. — Og þegar iila litur út fyrir að hann geti efnt seinni löðrungana, tekst honum að ná fundi stálkongsins sem læknir hans. — Síðasta löðrunginn fær samt Daisy en ekki faðir hennar, og getum við ætlað, að hann hafi verið eitthvað mýkri en hinir. Mynd þessi hefir verið sýnd í Kaupmannahöfn alveg nýlega og hafa stórblöðin þar hælt henni. Efni hennar er að vísu ekki mikið, en Lilian Harvey og Willy Fritsch leika hluverk sín svo vel og eftir- ininnilega, að allir munu hafa sanna ánægju af að horfa á þau í þessari mynd. Góður maður kann alstaðar við sig þar sem hann getur orðið að liði. Lifðu þannig að þú þorir að vera hreinskilinn. Það er altaf þægilegra að nema nýt ráð af skaða annara en sínum — Jeg hefi hugsað mjer að gifta mig, þegar jeg er 25 ára, en ekki fyr. — En ef nú enginn biðill kemur fyrir þann tíma? — Þá verð jeg bara 25 ára þangað til einhver kemur. KÚREKINN SYNGJANDI. „Með rjúkandi skammbyssu" „Guns of the Pecos“)heitir spennandi kúreka mynd, sem fer fram í Texas skömmu eftir borgarastyrjöldina í Bandaríkj- unum, en á þeim árum fóru heilar sveitir þorpara mn hjeruð landsins með þjófnaði og ránum. Til þess að hafa í fullu trje við þessa bófa varð að stofna sjálfboðaliðssveitir, og einn foringi sjálfboðaliðanna og sá liug- rakkasti, var „Kúrekinn syngjandi". Það er Dick Foran, sem leikur lilut- verk hans í myndinni. Hann er svo til nýr leikari en hefir verið fljótur að ná tindi frægðarinnar, ekki síst af því að hann hefir ágæta söngrödd. Er hann nú talinn meðal forustu- leikara hjá Warner Brothers. Ræningjar í Alaska. Henry Fonda og særði vinurinn hans, George Raft. Henry Hathaway er einn af þeim kvikmyndastjórum, sem leitar altaf langt að nýjum viðfangsefnum. Ný- lega hefir hann lokið við kvikmynd sem heitir „Laxveiöimennirnir i AI- aska“. Hún er tekin í þeim hluta landsins sem laxveiðin, er mest. Kvikmyndin snýst um bardaga lax- veiðimannanna við laxþjófana, sem aldrei setja sig úr færi. Myndin er mjög litauðug, laxinn er á leið til hrygningastaðanna, laxveiðin sýnd og flutningar um mjög erfið hjer- uð. Auk þess sjást ísjakar og stór bátur, sem molast sundur milli jak- anna. Áhorfendur geta ekki gert sjer grein fyrir hvílíkt feiknaerfiði kost- að liefir að taka myndina. Höfuðhlutverkin, sem leikin eru af Henry Fonda, George Raft, Dor- othy Lamour, John Barrymore og Akim Tamiroff, gefa góðar vonir um að hjer sje um verulega góða inynd að ræða. FRUMSKÓGASTÚLKURNAR ERU HÆTTULEGAR. Fyrir rúmu hálfu ári gerði Para- mount út leiðangur inn í frumskóg- ana á Malakka til þess að taka þar myndir. í nokkrar vikur voru leið- angursmenn meðal frumbyggja Ind- lands, sakajanna, en ineðan verið var að taka myndirnar gerðist dálítið, sem að vísu ekki var „á prógramm- inu“, að dóttir salcajahöfðingjans varð ástfangin af aðalleikaranum í myndinni, Colin Tapley. Tafði það fyrir myndatökunni að hún hjekk altaf utan í honum. Þegar mynd- inni var lokið lagði leiðangurinn af stað heimleiðis. En er hann liafði ferðast þrjá daga um frumskógana til strandar, skaut stúlkunni upp aftur. Hún hafði elt. Varð leiðang- urinn nú að snúa aftur alla leið til höfðingjans til þess að skila stelp- unni, og var hún sett í svo stranga gæslu, að engin leið var til þess að flýja. Presturinn talar um fyrir Simba: — Hvernig haldið þjer að gangi fyrir yður eftir dauðann þegar þjer ákallið þann Vonda? Simbi: — Jeg hugsa að jeg bjargi mjer, en mjer líst ver á það með prestinn, sem ekki hefir gert annað alla æfina en skamma hann. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Skúli Skúlason. Sigurjón Guðjónsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aðalskrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavik. Simi 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverö: 20 aura millim. HERBERTS prent. Skradðarabankar. Smáríkin á Norðurlöndum hafa undanfarna mánuði verið að ræða um viðbúnað til þess að auka mat- vælaframleiðslu og draga að sjer matvæli, ef svo færi, að heimsstyrj- öld skylli á. í Noregi hefir bænda- flokkurinn þannig skipað sjer á bekk til þess að reyna að knýja fram hækkuð verðlaun fyrir kornrækt og fá verðlaun fyrir kartöflurækt. Hefir flokkurinn þannig skipað sjer á bekk með þeirri lítt öfundsverðu mannteg- und, sem reynir að græða á styrjöld. Hjer á landi er hafinn lítilsliáttar viðbúnaður til þess að tryggja landið fyrir matvælaþurð, ef ófrið beri að höndum. Tryggja það að fiskiflotinn verði ekki eldiviðarlaus og að nokkr- ar kornhirgðir sjeu í landinu. Þetta er vitanlega gott og hlessað. En það sem mestu varðar er, að þjóðin fái að vita, að hve miklu leyti hún getur lifað á eigin framleiðslu. Allir vita, að hingað til lands flytst stórum meira af matvælum, en hægt er að komast af með, bæði af kornvöru og öðru. Nú ættu íslenskir læknar að geta sagt til um — eða mataræðis- nefndin nýja — hvað megi vera há- mark þess, sem íslendingar geta not- að til matar af fiski, keti, mjólk, eggjum, kartöflum og grænmeti. Það er vitað, að fyr á öldum komst þjóð- in af með margfalt minna af korn- mat en nú, en át liinsvegar afar mik- ið af harðfiski, sem nú er að kalla horfinn úr sveitum Tandsins. Og þó var engri kartöflurækt eða græn- metisrækt til að dreifa í þá daga. Þessi spurning er ekki aðeins að- kallandi á stríðstímum. Hún er það altaf, ekki síst í gjaldeyrisvolæðinu. Hversu margar miljónir gæti þjóðin sparað með þvi að eta síld? íslend - ingum þykir það ekki nógu „fínn“ matur, en fremsta þjóð Norðurlanda etur íslenska síld á hverjum degi. Hversu mörg þúsund manna mætti metta á þeirri síld, sem ein einasla verksmiðja gleypir á hverjum degi og breytir í skepnufóður og feiti? Og hversu marga mætti metta a þeim kartöfluauka sem yrði í land- inu, ef fólk kynni að rækta kartöflur, — án þess að landrýmið væri aukið. Það er svo um alla garðrækt hjer á landi, að það eru ekki nema fáir, sem gera sjer það ómak að læra, eða nota vitið i þágu þess, sem það er að vinna. „Svona var það gert — svona geri jeg það!“ Aldrei að breyta til. Aldrei að rannsaka hvað moldina vantar nje gera tilraunir með ný afbrigði. Um að gera að breyta engu og láta alt danka.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.