Fálkinn - 29.09.1939, Blaðsíða 11
F Á L K I N N
11
Vestí ðr óbleikjnðu bómullargarni.
Efni:
1—2 hnotur óbleikjað bómullar-
garn nr. 8, dálítið af rauðu eða bláu
í randir og 2 prjónar nr. 3%.
Mál:
Brjóstvídd 88 cm. Boðangslengd
54 cm. Baklengd 46 cm.
Vestið
er prjónað með tvöföldu perluprjóni,
þannig: 1. prj. 1 rjett, 1 brugðin. 2.
prj. Prjónið rjeltar lykkjur úr rjeltu
lykkjunum og brugðnar úr þeim
brugðnu. 3. prj. Prjónið brugðnar
lykkjur úr rjettu lykkjunum og rótt-
ar úr þeim brugðnu. 4. prj. eins og
2. prj. Þessir 4 prjónar mynda
munstrið.
Sýnishorn:
Fitjið 20 1. upp á prjóna nr. 3%
og prjónið 5 cm. með tvöföldu perlu-
prjóni. Verði þetta sýnishorn 8 cm.
á breidd er prjónað mátulega fast.
Verði það minna verður að nota
prjóna, sem eru liálfu númeri gild-
ari. Rjett er að láta sýnishornið liggja
á borði meðan mælt er, svo ekki
teygist á því.
PRJÓNAAÐFERÐIN:
Hægri boðangur:
Byrjað er neðst á horninu og fitj-
aðar upp 3 1. og prjónað tvöfalt
perluprjón. Á fyrstu 16 prjónunum
er aukið í rjetthverfu megin 1 1.
hægra megin og 6 1. vinstra megin,
þangað til komnar eru 59 1. á prjón-
inn. Á næstu 18 prjónum er haldið
áfram að auka í en aðeins hægra
megin. Þegar lykkjurnar eru orðnar
68 er fyrsta hnappagatið myndað
hægra megin, þannig: Prjónið 5 1.
fellið 5 1. af, ljúkið við prjóninn,
fitjið svo þessar 5 I. upp á næsta
prjóni. Hnappagötin eru svo gerð
með 5% cm. millibili. Vinstra megin
er nú aukið í 1 1. á 3ja cm. millibili,
þar til 74 l.eru á prjóninum.Er vinstri
hlið er orðin 25 cm. á iengd er byrj-
að að mynda handveginn: Byrjið
næstu fjóra prjóná röngumegin með
því að fella af eftir röð 5—4—3 og
2 1. og næstu 6 prjóna er byrjað
með því að fella 1 1. af. Þannig eru
feidar af 20 1. og eftir verða 54 1.
Þá er liálsmálið myndað með þvi að
1 1. er tekin úr í upphafi hvers
prjóns rjettu megin, þar til 24 ]. eru
eftir. Þegar handvegurinn er orðinn
19 cm. er felt af í fernu lagi svo skái
myndist á öxlinni.
Vinstri boðangur,
er prjónaður alveg eins, utan þeim
inismun, sem æfinlea er á hægri og
vinstri og án hnappagata.
Bakið:
Fitjað 74 1. upp og prjónið með
Ivöfalda perluprjóninh. Aukið 1 1. i
beggja megin með tveggja cm. milli-
bili, þangað til komnar eru 98 1.
Þegar bakið er orðið 25 cm. á lengd,
er byrjað að mynda handvegina.
Byrjið næstu fjóra prjóna með því
að fella 3 1. af, því næst eru feldar
af 2 1. i hvorri hlið og að endingu
er feld af 1 1. á næstu 8 prjónum.
Þannig eru feldar af 12 1. hvoru
megin og verða þá eftir 74 1. Prjón-
ið þangað til handvegurinn er 19
cm. og fellið þá af 26 1. í miðjunni,
cn þessar 24 1., sem eftir verða hvoru
megin, eru feldar af í fernu lagi svo
skái myndist.
Ermar:
Fitjið 56 1. upp. Aukið 1 1. i hvoru
megin með tveggja cm. millibili,
uns komnar eru 66 1. Þegar búið er
að prjóna 10 cm. byrja úrtökurnar.
Takið 1 1. úr hvoru megin á fjórða
hverjum prjóni. Þegar 50 ]. eru eftir
eru feldar 2 1. af hvoru megin á
fjórða hverjum prjóni. Þegar 20 1.
eru eftir eru þær feldar af i einu
lagi.
Hornið á hægra boðangi:
Takið ca. 40 1. upp í hálsmálinu
og prjónið 4 cm. án þess að taka úr.
Takið svo 1 1. úr beggja megin á
öðrum hvorum prjóni, þangað til
engin lykkja er eftir. Hornið vinstra
megin er prjónað alveg eins.
Samsetningin:
Leggið alla partana inn i rakan
pappír, takið þá siðan og leggið til
þerris. Saumið vestið saman og
strjúkið yfir saumana með volgu
járni.
Randirnar:
Úr mislita garninu er hekluð
snúra, sem er fest á boðangana eins
og myndin sýnir. Einnig er prjónað-
ur renningur úr mislita garninu, sem
er notaður til þess að yfirdekkja
hnappana með.
IÍEISARINN í ANNAM.
Þrátt fyrir viðsjárnar i Austur-
Asíu hefir keisarinn í Annam farið
í skemtiferð til Evrópu og mun
hugsa sem svo, að það geri minst
til hvoru megin hryggjar hann liggi,
þótt eitthvað gerist. Hann heitir
Bao Dai og frúin Nam Pong og eru
þau stödd í Cannes, þegar myndin
var tekin af þeim og króunum.
AMY JOHNSON
FARÞEGAFLUGKONA.
Amy Johnson, sem heimsfræg
varð fyrir nokkrum árum fyrir þol-
flug sín, hefir nú ráðið sig til þess
að stjórna farþegaflugvjel, sem geng-
ur milli Portsmouth og eyjunnar
Wight, og nýtur mikilla vinsælda
i þvi starfi. Hjer sjest hún í flug-
vjelinni.
Vínið varð að ediki.
Enskir kafarar liafa undanfarið
verið að bisa við að bjarga ýmsu
úr herskipi, sem sökk fyrir 131 ári.
í skipinu fundu þeir m. a. margar
flöskur af vini og hugsuðu sjer nú
gott til glóðarinnar að gæða sjer á
þessum lundi þegar þeir kæmu upp
aftur, þvi að þeir höfðu heyrt, að
vínið yrði þvi betra, því eldra sem
það væri. Þegar þeir komu upp,
náðu þeir sjer þegar i tappatogara
og fóru að smakka. Supu þeir væna
gúlsopa, en urðu súrir á svipinn í
orðsins fylstu merkingu. Vinið var
nefnilega orðið að gallsúru ediki.