Fálkinn


Fálkinn - 27.10.1939, Síða 2

Fálkinn - 27.10.1939, Síða 2
2 F Á L K I N N GAMLA BIO NYJA BIO „ZAZA“. Leikritið „Zaza“, sem samnefnd mynd, er Gamla Bíó sýnir á næst- unni byggist á, hefir hlotið fádæma vinsældir. Er það eftir höfundana Pierre Berton og Charles Simon og aðalpersónan er söngmær, sem verð- ur ástfangin af „heldri manni“. — Hefir leikurinn verið kvikmyndað- ur oftar en einu sinni og í þögulli mynd, sein tekin var, ljek GJoria Swanson aðallilutverkið. í þessari nýju mynd er það Clau- dette Colbert, sem leikur þetta lilut- verk, en mótleikari hennar er Her- bert Marshall. Claudette Colbert Jief- ir fengið mjög misjafna dóma fyrir lilutverk þetta, og finna sumir henni alt til sem dansmeynni Zaza, en aðrir liefja hana til skýjanna. Hún er fullkomin andstæða hins kald- Jynda og rólega lieimsborgara, sem verður ástfanginn af henni — hún er trylt en liann er stillingin sjálf. Það er George Cukor, hinn heims- frægi leikstjóri, sem sjeð hefir um töku þessarar myndar fyrir Para- mount, upp á ekta ameríkanska vísu, með óhemju miklum íburði, en leik- konan Alla Nazimova og leikstjór- inn Charlot voru bæði honum til að- stoðar. Nazi.mova hefir sjálf leikið hlutverk Zaza á leiksviðum viða um lönd. Cukor liefir m. a. tekið kvik- myndirnar „David Copperfield“, „Romeo og Júlía“ og „Kamelíufrúna," sem íslenskir kvikmyndagestir muna vel. — Af öðrum leikendum í myndinni en Claudette Colbert og Herbert Marshall má nefna Genevieve Tobin, Helen Westley og Bert Lahr, sem öll hafa stór hlutverk. En vitanlega hvílir mestur vandinn á Claudette, enda er þetta hlutverk hennar talið kröfufrekasta hlutverkið, sem hún hafi nokkurntíma leikið, og eru það ekki síst hinir tryltu dansar, sem hún sýnir i myndinni, sem taldir eru fárra, meðfæri. Skrautið og i- burður umhverfisins er með því mesta, sem sjest hefir í nokkurri mynd. Myndin slær á ýmsa strengi bæði viðkvæma og kitlandi, eins og þeir þekkja, sem sjeð hafa leikritið. — Hinar ágætu dönsku leikkonur Betty Nansen og Anna Larssen ijeku hlut- verk Zaza i Kaupmannahöfn hjer fyrrum og varð mikið umtal um meðferð ])eirra á því, ekki síður en nú liefir orðið um meðferð Claú- dettc Colbert á hlutverkinu. Það má ganga að þvi vísu, að Reykvík- ingar verði ekki sammála um hana fremur en aðrir. BRÚÐKAUP í FLORENS. írene prinsessa af Grikklandi og Danmörku giftist nýlega ítölskum prins, hertoganum af Spoleto, og voru viðstaddir fulltrúar frá ýms- um hirðum Evrópu. Hjer sjást þau í kirkjudyrunum eftir vígsluna. 1 rifE5Tfi BLfiÐI FRLKfln5 verður grein um Vilhjálm Stefánsson í tilefni af 60 ára afmæli hans. Dr. Helgi Pjeturss skrifar athyglisverða grein, sem heitir „Stríðið, menningin og ísland.“ Söguna „Slraumhvörf“ eftir Andr. Eiríksson liafa allir gott af að lesa. Og í þessu blaði hefst nýja framhaldssag- an, sem allir munu lesa. Auk þess venjulegt, fjölbreytt efni fyrir alla. SCHMELING SIGRAÐI. Það hefir verið hljótt um Max Schmeling síðan hann misti heims- meistaratignina. En nýlega barðist hann við landa sinn, Adolf Heuser, i Stuttgart (t. h.). Augnabliki eftir að myndin var tekin lá Heuser óvíg- ur. Og Schmeling liafði grætt 200,- 000 krónur á 71 sekúndu! Indriði Þorkelsson, skáld, á Fjalli, varð 70 ára 20. þ. m. Minnismissir. Amerikanski lögregluþjónninn Ed- ward G. Forbes datt nýlega á stöð- inni í Chelsea, Massaschusetts og misti minnið. Hann hafði þá 15 cent í vasanum. Þremur dögum síðar rank- aði hann við sjer aftur. Hann var þá kominn til Miami, en vissi ekkert livernig hann hafði komist þessa löngu leið. Og það sem merkilegra var: hann var með spánýja ferða- tösku og 58 dollara í vasanum. Það cr honum hulin gáta, livar hann hefir komist yfir þetta. SJÓORUSTAN VIÐ NARANJA. „Our Fighting Navy“ kalla Eng- lendingar þessa mynd, sem tekin er af Herbert Wilcox . með aðstoð deilda úr breska flotanum. Myndin lýsir atburðum, sem oft gerast í sögu enskra erindreka erlendis og enska flotans og m. a. gerðist á síðastliðnu vori í Kína, þó að myndin sje látin fara fram í spönsku ríki í Suður- Afríku. Þar verður uppreisn og enski konsúllinn á staðnum fær aðsloð hersins, til þess að verja líf og limi enskra borgara. Beitiskipið „Auda- cious" er sent á stáðinn — til Blanca i Naranjariki, undir stjórn Mark- hams kapteins. Um sama le.yti kem- ur enskt farþegaskip tii Bianca og með því er dóttir enska konsúlsins á staðnum og liðsforingi, sem Arm- strong heitir. UppreisUarforinginn nær þeim báðuni á sitt vald og hefir þau í haldi á hérskipinu „E1 Mir- ante“, sem gisl. Forsetinn í Naranja flýr á náðir enska konsúlsins. Uppreisnarmenn krefjast þess að fá hann framseld- an en konsúllinn neitar. Enski ræð- ismannsbústaðurinn er griðland þeirra, sem þar eru. Uppreisnarfor- inginn hótar þá öllu iilu, og þegar loks slær i orustu milli herskipsins „E1 Mirante" og enska herskipsins; eru þau Pemela dóttir konsúlsins og enski liðsforinginn látin standa á þilfarinu á „El Mirante“ sem eins- konar skotskífa fyrir óvinina. Hjer skal eigi sagt frá því, hvernig þau bjargast á hinn furðulegasta hátt. Hlutverk enska konsúlsins er leik- ið af H. B. Warner, Rohert Dou- glas leikur kaptein'inn á enska her- skipinu, en Richard Cronnvell Arm- strong liðsfóringja. Eina kvenhlut- verkið í myndinni, dóttur konsúls- ins, leikur Hazel Teryy. Geta má ].’Css og, að í myndinni leikur Henry Victor, sem ýmsir hjer á landi muna eftir frá því, er liann ljek Oskar í myndinni Glataði sonurinn, er tekin var hjer á landi fyrir 17 ár- um. — Með því að lána skip og menn li! myndatökunnar hefir enski flot- ii n sett á hana opinberaií stimpil, sem mikið er um vert. Áhorfandinn hefir tryggingu fyrir því, að lífið um borð í ensku herskipunum sje einmitt eins og myndin sýnir það. Og veitir ])að aukið gildi, ekki sísl á þessum tímum, er margir vilja kynnast enska flotanum, sem á i styrjöld. ÖRUGGUR FELUSTAÐUR. Myndin er af þriggja herbergjn neðanjarðaríbúð í London, sem á að vera trygg fyrir loftárásum og eiturgasi. Þar er eldhús, baðher- bergi, sími, rafljós og gas. Og til vonar og vara eru þar gasgrímur og olíulampar.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.