Fálkinn - 27.10.1939, Blaðsíða 14
14
F Á L K I N N
Fangarnir komu inn í stúkuna ásamt
gæslumönnum sínum, rjett eftir að dómar-
arnir höfðu sest. Hár maður dökkhærður
stóð þegar upp og ávarpaði dómendurna
og undir eins við fyrstu orð hans, var eins
og augu áhorfendanna sætu á hattprjónum.
„Jeg kem hjer fram í umboði hins opin-
bera ákæranda og hefi umboð til þess að
tilkynna, að báðir þessir fangar hafa verið
ákærðir fyrir morð að vfirlögðu ráði, af
Drury lögreglufulltrúa. Þau eru sökuð um,
að liafa myrt Israel Levinskv frá Croft
Villa, aðfaranótt hins 28. april, í liúsinu
Hoím Lea i Soutldjourne".
Hálftíma síðar liafði fregnin liorist með
einhverjum kvnjamætti um allan bæinn.
Hver smuga í rjettarsalnum fyltist af fólki
og inindruð manna stóðu fyrir utan. Þar
bar ekki síst á James Tomlin, sem nú var
ekki undir lögreglueftirliti lengur. Hann
bölvaði óspart út af því að hann komst
ekki inn. Þessi áhugi dofnaði ekki í bráð.
Hann hjelst til þess síðasta, og hópurinn
sem Iiafði safnast saman fyrir utan fang-
elsisdyrnar einn morguninn um haustið,
var svo stór, að tugthúsverðirnir komust
varla fram að auglýsingaspjaldinu, til þess
að festa þar upp tilkynningu.
Endir.
Viggó Björnsson, bankastjóri í
Vestmannaeyjum, verður 50 ára
30. j>. m.
Frú María Hálfdánardóttir Flat-
eyri, verður 50 ára 28. þ. m.
Eyjólfur Jónsson, fyrv. banka-
stjóri á Seyðisfirði, verður 70
ára 31. þ. m.
Jón Ólafsson, hreppstjóri Króks-
Ijarðarnesi, verður 60 ára 2.
nóvember.
GUÐMUNDUR Á SANDI.
Framh. af bls. 3.
sem lesa liann, skilja það innsta i
þeirri þjóð, sem bygt hefir sveitir
þessa lands frá öndverðu. — Og
vel sie honum fyrir það.
Á sjötugsafmæli skáldsins á Sandi
kom út ljóðabók eftir hann — sam-
val úr eldri og yngri bókum hans.
Sú bók mun geyma, meðal unn-
enda islenskra góðskálda, fegurstu
minningu Guðmundar á Sandi. Á
.sjötugsafmæli hans óska margir les
andi menn og konur honum til ham-
ingju og óska, að hann megi bæta
ýmsu góðu við þá minningu á átl-
ræðisaldrinum.
'Andvari.
SÍÐASTA DROTNING RÚSSLANDS.
Framh. af bls. 5.
sveitir Koitsjaks voru að nálgast
Jekareninburg.
En drotningin misti ekki vonina.
Morguninn fyrir dauða sinn skrifar
liún í dagbók sina, að veðrið sje
yndislegt, og hún skilji það sem
iákn þess, að hún eigi að bíða í
trúnni.
Nóttina eftir voru fangarnir allir
vaktir um miðja nótt og skipað að
klæða sig: það ætti að flytja þá á
ennan stað. Þeir klæddu sig i alt,
sem þeir höfðu af hlýjum fötum
og tóku með sjer ábreiður og kodda,
af því að þau hjeldu, að þau ættu
að aka í opnum kerrum. En að svo
búnu var þeim skipað ofan i kjall-
arann og látin setjast þar á bekki.
Fyltist þar brátt af ókunnugum mönn
uni og varðstjórinn gekk fram með
skjal í hendi — það var dauðadóm-
ur keisarafjölskyklunnar. Skjalið
var lesið upp og þar stóð, að vegna
þess, hve sókn livítliðanna miðaði
mikið áfram og byltingin væri i
hættu, yrðu fangarnir að láta líf
sitt. — Um leið og siðasta orðinu
var lokið kváðu skotin við og fang-
arnir fjellu dauðir niður á gólfið.
— Þannig dó áíðasta keisarafjöl-
skylda Rússlands og þannig varð
hún að píslarvottum.
l'ÍGBÚNAÐUR STÓRÞJÓÐANNA.
Framh. af bls. 11.
mánuði og almenn herskylda eins
og í Þýskalandi. Á friðartíraum er
herinn 200.000 manns, en í febrúar
síðastliðnum höfðu ftalir að auki
undir vopnum 634.000 manns með
23.000 liðsforingjum í fasistasveit-
unum. Við þetta bætist herinn i
Libýu, 35.000 manns, í Etiopíu og
Somalilandi 60.000 og í Egeahafs-
eyjum 3000 manns. Loftherinn er
2500 vjelar, þar af um 2000 í Ítalíu.
Frakkar eru 42 miljónir og hafa
ahnenna herskyldu og herþjónustu-
timinn var fyrir skömniu lengdur
úr 18 mánuðum í Ivö ár. Á friðar-
timum er herinn 491.000 manns og
við þetta bætist fast málalið, 106,-
000 manns. Vopnað lögreglulið 33.-
380 manns. Að öllu meðtöldu er
herinn á friðartímum 698.000 manns.
Maginotlinan franska, að landamær-
um Þjóðverja er talin enn sterkari
en Siegfriedlínan. — Herflugvjelarn-
ar eru 2500, auk 138 vjela i flot-
anum.
Englendingar og Skotar eru 46.2
miljónir og hafa á friðartimum 144,-
000 manna her auk 68.000 í varaliði.
Við þetta bætist svo sá her, sem
kallaður hefir verið saman eftir að
herskyldan var lögleidd í sumar. •—
Englendingar munu liafa nokkur
þúsund manna undi.r vopnuin í
landhernum núna, en geta aukið
herinn upp í meira en tvær mil-
jónir. — Aðal loftherinn sem heima
er, hefir 2150 flugvjelar, en sú tala
hefir aukist síðán stríðið hófst.
Pólverjar eru 35 miljónir. Þeir
hafa herskyldu, tveggja ára. Ilerinn
var á friðartímum 255.000 manns
með 18.738 liðsforingjum. Helstu
vígi þeirra voru við Torun, Posnau,
Krakau og Przemysl. Ennfremur
inni í landi við Warsow, Modlin og
Deblin. Loftherinn var sáralítill.
Breska herstjórnin hefir lýst yfir
því, að hún geri ráð fyrir stríði,
að minsta kosti i þrjú ár. Og á þeim
tima vaxa herirnir upp í miljónir
og herflugvjelum fjölgar stórkostlega.
Þjóðverjar segjast geta smíðað alf
að 1800 herflugvjelar á mánuði i
vetur og Bretar víst engu minna.
BÆKUR.
ÚR LANDSSUÐRI.
Eftir Jón Helgason.
Bólcdútgáfa Heimskringlu.
Úr landssuðri heitir bókin. Það
mun vera vegna þess, að flest kvæðin,
i henni eru ort í Khöfn, sem er
í fleiri merkingu en þeirri einu,
sem veðurfræðin nefnir „úr land-
suðri“. Landsynningurinn getur ver-
ið leiðinlegur, og sumt úr bókinni
minnir fremur á úrsynninginn, sem
kemur í hrynum rjett sem snöggv-
ast, en áður en maður veit af, er
hann snúinn upp í milt sólskin.
En samt eru í skáldinu meiri um-
hleypingar en nokkru skáldi þess-
arar aldar. Hann hleypur á milli
alvöru og gletlni, innileiks og kald-
hæðni og margra fleiri geðbrigða,
sem jeg má ekki nefna. En um hitt
verður að geta, sem þó er skiljan-
ltgt, þegar í hlut á prófessor, sem
alt frá námsárum hefir verið vakinn
vg sofinn i þvi, að gagnrýna og á-
stunda bókmentir fslendinga fra
fornri tíð og einkanlega ])ó síðari
alda — að mörgum koma skrítilega
fyrir sjónir lilbrigði í máli, sem
Ivsa sjer í ýmsum kvæðum hans
og kviðlingum, er þessi sjerstæða
bók flytur.
„Hvar fæ jeg höfði hallað
ég hrjaada Broodur-Kind. .. . “
segir skáldið, og er þessi „sálmur“
í nýju útgáfunni af Stúdentasöng-
bókinni. Vísurnar eru ortar undir
einu vinsælasta lagi enskra manna
á þessum tímum, eins og fleiri
stúdentalög. Og áreiðanlega hafa
aldrei tiltölulega eins margir stúd-
entar lært lag á skammri stundu,
eins og er þeir lærðu kvæði Jóns.
Það er galdraverk!
Og svo þegar snúið er við blað-
inu, snýr við há-alvarleg mynd!
Svona eiga Ijóðabækur að vera!
Andvari.
Drekkið Egils-öl
SÝNING Á UPPÁHALDSDÝRUNUM.
Nemendur í sveitaskóla einum í
Englandi höfðu nýlega sýningu á
uppáhaldsdýrum sinum. Kendi þar
margra grasa, alt frá gullfiskum til
fiðrildiseggja. Myndin sýnir eina
stelpuna koma með lambið sitt á
sýninguna og hefir liún tekið pela
með til vonar og vara, svo að það
skuli ekki svelta.
Deanne vill giftast.
Deanne Durbin, hin kornunga leik-
kona, sem orðið hefir lieimsfræg á
örstuttum tíma, þykist nú vera orðin
r.ógu stálpuð til að gifta sig. Hún er
16 ára og bálskotin í ungum aðstoð-
ar-leikstjóra hjá Universal, sem lieit-
ir Paul Vaugh. En samkvæmt lands-
lögum í Californiu mega stúlkur ekki
giftast þar yngri en 18 ára og ætlar
Deanne því að fara í annað fylki,
l>ar sem 16 árin hennar nægja til
]>ess að öðlast hjónabandssæluna.