Fálkinn - 27.10.1939, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
jnMUC! Nú getum við fengið hana
fyrir 1150 mörk höfum við
þá ekki efni á því?
Þau voru að enda við að renna
niður risgrjóna-ábætinum eftir laug-
ard'agsmatinn, þegar Annie kom mjög
gætilega með þessa spurningu, sem
;ilis ekki kom Eric á óvart. Þau
1 öfðu nú talað um þessa íbúð sam-
fett i tvo mánuði, og Annie hafði
orðið svo liugfangin af henni, að
hún hafði verið i sífeldum heim-
sóknum ýmist hjá byggingameistar-
anum eða hjá umsjónarmanni húss-
ins til þess að þoka leigunni niður
um jiau fimtíu mörk, sem með þurfti
lil þess að hún yrði ekki ofvaxin
efnum þeirra og kaupi Erics.
Eric var nefnilega maður, sem
hafði vaðið fyrir neðan sig. Hann
var altaf með vasabókina á lofti og
skrifaði nákvæmlega öll útgjöld sín
og Annie, og á laugardögunum end-
urskoðaði hann hvern einasta lið og
gerði athugasemdir um það, sem
honum fanst að hefði mátt spara.
Smávegis og saklaus útgjöld — kvik-
myndamiða, of mikið tóbak, eða
glas af öli eða máske einlivern ó-
þarfann, sem Annie hafði freistast
til að kaujia, er hún sá hann í búð-
argluggunum í Potzdammerstrasse.
Nú megið þið ekki halda, að Eric
Winther hafi verið súr og önugur
naggur, sem hafi sí og æ verið að
jaga konuna sína. Nei, þvert á móti.
En þau máttu ekki eyða meiru en
aflaðist. Þau voru bæði ung og lífs-
glöð, höfðu verið gil't í þrjú ár, og
vildu njóta lífsins eins og þau höfðu
efni til — og ánægð voru þau —
hann með starf sitt, sem umsjónar-
maður i vátryggingafjelaginu „Uran-
ia“ og náði umdæmi hans yfir Fried-
richsstrasse, Leipzigerstrasse og Un-
ter den Linden, en hún sem af-
greiðslstúlka í stórri tískuverslun á
Potzdammerplatz. Þegar þau slóu
tekjum sínum saman varð þetta all-
lífvænlegt. Þau áttu heima í einu
norðvesturhverfinu við Berlín. Höfðu
GAMLA UMDÆMIÐ
sæmilega íbúð, en i samanburði við
ibúðirnar í öllum nýju húsunum,
sem bygð voru, var hún auðvitað
fremur leiðinleg, og nú hafði Annie
sett sjer jiað takmark, að komast í
einhverja nýju íbúðina i stóru húsa-
hverfunum, sem risu upp skamt frá
bifreiðabrautinni miklu, sem lá frá
Tiergarten til norðurs og vesturs.
Sunnudaginn fóru þau enn einu
sinni og skoðuðu íbúðina, sem ekki
var búið að ganga frá, vógu salt á
stigum og lausum gólfborðum upp
á fimtu hæð, rifust svolitið um hvern-
ig húsgögnin ættu að standa, mældu
allar stærðir og skrifuðu loks undir
leigusamning i skrifstofunni, sem
var við bygginguna.
Þegar þau hurfu að daglega lífinu
á mánudagsmorgunn og tóku sjer
sæti í almenningsvagninum, eins og
þúsundir af öðru fólki, og óku frá
norðvesturenda Friedrichsstrasse inn
í óendanlega gatnaflækjuna, gat Eric
ekki að því gert, að hann fann dá-
lítið ti) sín þegar hann settist. Hon-
um fanst hann vera orðinn sjálfs-
eignarbóndi og eiga eitthvað verð-
mætt. Svo niðursokkinn var hann í
umhugsunina um fegurð nýju íbúð-
arinnar, að hann gleymdi að lesa
morgunblaðið sitt, én í stað þess
horfði hann á hina farþegana, sem
liann áður hafði aldrei hirt um að
líta á, og stóð alveg á sama um, þó
að hann hefði ekið með mörgum
þeirra á hverjum virkum degi i þrjú
ár.
Hann kinkaði kolli til Körbitz
tcbakskaupmannsins, sem einu sinni
hafði keypt áhættutryggingu fyrir
hundinn sinn hjá honuin — heilsaði
innilega og sýndist ekki hetur en
að Körbitz lyfti sjer i sætinu til
svars.
Eric sagði ekki neitt, en i hugan-
um sagði hann Körbitz, að nú væri
hann um það bil að liætta að aka i
þessum vagn-garmi. — Framvegis
þegar hann færi á skrifstofuna, færi
hann gangandi — kortjers leið gegn-
umTiergarten, eftir að hann hefði
drukkið morgunkaffið sitt undir sól-
tjaldi á svölunum á fimtu hæð -—
móti suðri. Því að vitanlega ætluðu
þau að hafa sóltjald — gult með
mjóum röndum, rauðum og hvít-
um, eins og hann hafði sjeð hjá
Wertheim — eða Haraldi.
Sól og sumar, kæri Körbitz, og
Annie fer hjerumbil sömu leiðina
líka, gegnum Tiergarten, og svo dá-
lítinn spöl niður eftir Budapester-
strasse. — Kæri Iíörbitz, hvernig
dettur yður i hug að búa áfram....
f horninu á móti sal píslin hún
fröken Miiller, sem langaði svo ti)
að hafa hann bróður sinn, sem var
giftur og átti tvö börn, einhvers-
staðar nærri sjer. Hún var nágranni
Erics Winlhers. Ef hún hefði ekki
setið svona langt undan,- mundi
Winther hafa kallað til hennar: „Nú
getur hann bróðir yðar fengið íbúð-
ina okkar, ungfrú Miiller, því að við
erum — eins og jeg var að segja hr.
Körbitz — að flytja í nýja íbúð við
Tiergarten. . . . finilu hæð.... sól-
tjald. . . .“
Nú blasti við húsgagnaverslun á
götuhorni svo að liugsanir hans tóku
aðra rás, og hann fór að tala um
gluggatjöld við Annie. Gluggatjöld-
in urðu vitanlega að vera i stíl við
íbúðina — nýmóðins, ineð litlu yf-
irstykki, en ekki dregin út til hlið-
anna. Já, og svo þurfti veggfóður á
skrifstofuna.
„Og nýja gólfábreiðu á dagstof-
una“, skaut Annie inn í. Henni fanst
]ietta hentugt tækifæri til að láta
djörfustu ósk sína i ljósi.
Jafnvel þetta gat ekki ruglað Eric
í rásinni í dag.
„Ef jeg næ í tryggingu hjá útvarps-
tækjaverksmiðju Grass áður en við
flytjum, þá skaltu fá gólfábreiðu."
\AT INTHERSHJÓNIN höfðu nú átt
heima i nýju íbúðinni í hálf-
an mánuð. Þau höfðu sparað dálítið
i suinarleyfinu, legið i tjaldi í stað
þess að leigja sjer sumarbústað, og
Winther hafði fengið trygginguna
hjá Grass, svo að þau höfðu fengið
hæði gólfábreiðuna, gluggatjöldin,
sóltjaldið og ljómandi fallegt mynda-
veggfóður á skrifstofuna.
„En nú verðum við að vera spar-
söm um tíma, Aunie,“ sagði Eric
eitt laugardagskvöldið, þegar þau
höfðu gert upp vikuna, „sparisjóðs-
bókin hefir gengið ískyggilega sam-
an, og við verðum að hugsa um fram-
tiðina.“
Hún kysti hann og lofaði honum
að verða sparsöm. Þeim leið eins vel
og þau væru í Paradís.
En á mánudaginn gerðist atburður,
sem kollvarpaði allri tilveru Wint-
hers.
Þegar að hann liafði kvatt konuna
sina á horninu á Leipzigerstrasse tók
hann á rás — hann var orðinn nokk-
uð seinn fyrir. En hann kom sann-
arlega nógu snemma. Á borðinu hjá
lionum lá orðsending um að koma
þegar í stað niður til skrifstofustjór-
ans manns, sem Winther annars
ekki sá nema við hátíðleg tækifæri,
1. d. fyrir jólin þegar hann gekk
um allar skrifstofurnar og bauð
gleðileg jól.
Hvað gat skrifstofustjórinn viljað
honum?
Honum datl alt mögulegt og ó-
mögulegt i liug. Það voru svo lítil
líkindi til, að hann ætti kjarabætur
i vændum, að ekki gat það verið er-
indið — líklega fanst honum að hann
ætli að skifta um umdæmi. Ef til
vill útjaðarsembætti í verksmiðju-
hverl'unum. Það var talið betra,
maður hafði ef lil vill svolítið meira
upp úr því, en eins og á stóð núna
þá var hann ekki ginkeyptur fyrir
breytingunni hann hafði hlakkað
svo mikið til að ganga gegnum Tier-
garten á morgnana með Annie. En
erindið gat Hka verið viðvíkjandi
einhverjum af skiftavinum hans.