Fálkinn - 19.04.1940, Page 2
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
Tvifarinn heitir heimsfræg skáld-
saga eftir breska stórskáldið fíoberl
L. Stevenson. Henni hefir verið snú-
ið í leikrit og líka verið kvikmynd-
nð oftar en einu sinni. Og altaf er
hún jafn eftirtektarverð og æsandi.
Nú er þessi mjög svo fræga kvik-
mynd á uppsiglingu hjer í Gamla
Bíó, og leikararnir, sem með stærstu
hlutverkin fara, eru: Frédric March,
Miriam Hopkins og fíose Iíoburt.
Myndin — og sagan fjalla um ung-
an vísindamann, sem klýfur per-
sínu sína í tvent. Hann • er öðru
veifi mesti öðlingur, góðlyndur og
göfugur, en á hinu leytinu mesta
mannskepna, flár og djöfullegur. —
Hann er ungur læknir i miklu áliti,
helgar sig göfugu starfi í þágu bág-
staddra og er mjög mikill áliuga-
maður í vísindagrein sinni og vill
skygnast sem dýpst inn í leyndar-
dóma vísindanna. Ekki síst sökkvir
dr. Jekyil (en það er nafn hans) sjer
niður i sálfræðirannsóknir. Og þann-
ig kemst hann að þeirri afdrifaríku
niðurstöðu, að í rauninni ráði tveir
höfuðstraumar eðli og sálarástandi
hvers manns. — Annar helmingur
mannssálarinnar er góður og göfug-
ur og stefnir upp mót æðra marki,
þróun og jmoska, en hinsvegar er
hið svarta og djöfullega, sem miðar
að hinu illa; er uppspretta haturs-
ins, ófriðarins og alls hins versta i
fari manna og þjóða. Og hann finn-
ur upp vísindalega aðferð til að
kljúfa persónu mannsins, tii að sýna
livorn hlutann greinilega út af fyrir
sig.
Um þetta athyglisverða efni fjall-
ar myndin Tvífarinn, sem Gamla Bió
synir á næstunni.
Aðalhlutverkin leika góðir og
heimsfrægir leikarar, og er ekki að
efa, að leikur þeirra samsvari hinu
merkilega innihaldi hinnar stórkost-
legu skáldsögu.
Halldóra Snorradóttir, Laugav.
76, varð 75 ára í gær (1H. apríl).
Þegar Schumann og Wagner hitt-
ust í fyrsta skifti, áttu þeir tal sam-
an í nálægt klukkutíma. Á eftir sagði
Wagner um þennan fund:
— Schumann er yndislegur mað-
ur. En hann er full þegjandalegur.
Og Schumann sagði: —- Wagner
er duglegur listamaður. En hann
talar bara alt of mikið.
Úlafur Þorsteinsson trjesmiðnr,
Leifsgötu 16, varð áttræður í gær
(18. april).
Jón Tómasson, skipstjóri, varð
50 ára 12. \>. m.
Sighvatur Brynjólfsson, inn-
heimtum., Óðinsg. h, verður 60
ára 20. \>. m.
Mark Twain átti kunningja, sem
dáðist mikið að gamansögum hans
og fyndni. Loks fór hann að semja
gamansögur sjálfur og tókst að koma
einni ])eirra í blað. Hann varð hróð-
ugur yfir þessu og fór til Mark
Twain með blaðið og sagði:
—- Lestu! Þetta hefi jeg skrifað.
Jeg er kominn á þá skoðun, að það
sje ekki neinn vandi að semja sögur.
Mark Twain horfði alvariegur á
vin sinn: —- Þú hefir rjett að mæla,
kunningi. En fyrir alla múni komdu
ekki upp um okkur með því, að
segja frá því.
~ ~ ~
SÁ STERKASTI VINNUR.
Ameríkumenn eru iðnir við að
nota sína eigin sögu, sem efni í
kvikmyndir. Nýlega hefir hinn frægi
'eikstjóri W. S. van Dyke lokið við
eina slika mynd, sem gerist um
miðja siðustu öld, er járnbrautin
var að útrýma póstvögnunnm. —
Myndin er á Norðurlöndum kölluð
,,Sá sterkari vinnur“, en á ensku
iieitir hún „Stand up and Fight“ og
hefir að geyma margar menningar-
sögulegar myndir, m. a. frá þeim
tíma, sem fyrstu járnbrautirnar fóru
um preríurnar vestra.
Wallace Beery leikur þar harð-
snúinn formann póstvagnafjelags, en
Robert Taylor andstæðing hans, for-
mann járnbrantarfjelagsins. Hags-
munir þeirra rekast á og áflogin
milli þeirra urðu svo skæð, er mynd-
in var tekin, að Taylor kveðst ekki
munu leika þesskonar atriði á næst-
unni. Það er sem sje misskilningur
að halda, að áflogin í kvikmynd-
uin sjeu eintóm uppgerð. Ef þati
eiga að verða eðlileg, verða menn
að berjast i alvöru. Og eftir bar-
dagann í þessari mynd lá Taylor i
rúminu i tvær vikur. Nú ætlar
hann næst að leika í slagsmálalaus-
um gamanleik. Hjerna sjást áfloga-
hundarnir og er auðsjeð, að Wall-
ace Beery hefir yfirhöndina.
FRÆGT FÓLK Á FRUMSÝNINGU.
Kvikmyndaleikararnir Vivien Leigh
og Laurence Oliver, sem eru nýlega
trúlofuð sjást hjer á frumsýningu
myndarinnar „Gone by tlie Wind“,
þar sem Vivien leikur eitt aðalhlut
verkið.
- NÝJA BÍÓ -
Það stendur yfir opinber veisla í
Hvíta húsinu, aðsetursstað Banda-
ríkjafor'setans. En forsetinn, sem
situr að völdum, er McKinley. Iin
þrátt fyrir annríkið við hinar opin-
beru móttökur má ]ió forsetinn vera
að því að kalla á sinn fund ungan
sjóiiðsforingja, Richard L. Perry að
nafni, og tala við liann um mjög
áríðandi málefni. Forsetinn felur
þarna liðsforingjanum að rannsaka
umfangsmikið glæpamál og komast
að raun um liverjir sjeu forystumenn
illræmds ræningjaflokks, sem undan-
farið hefir ráðist á ýmsa ba'nka og
rænt þá. Sömuleiðis á liðsforinginn
að afla upplýsinga um það, hverjir
það eru, sem reka njósnir fyrir
þennan liættulega bófaflokk. Perry
má gera það, sem honum sýnist,
forsetinn lieimtar bara að hann upp-
fyili tvö skilyrði; í fyrsta lagi: eng-
inn má vita, hvar Perry er niður-
kominn nje livað hann gerir; i öðru
lagi: Perry má með engu móti setja
sig í samband við forsetann nema
hann hafi mjög mikilsvarðandi upp-
lýsingar fram að færa. Að öllu verð-
ur að fara með fullkominni leynd.
Ungi liðsforinginn tekur hikiaust
við þessu iiæltuiega og leyndardóms-
fulia hlutverki, og svo gengur hann
út í æfintýrin.
Þetta er upphaf myndariiinar,
Fyrirskipanir forsetans, sem Nýjn
Bíó sýnir bráðum. Það er ekki ráð-
lcgt að rekja efni hennar nánar.
Allir sjá að hjer er spennandi mynd
á fcrð.
Aðalhlutverkin leika: fíobert Tayl-
or, I)arba\ra Stanwyck og Victor Mc-
Laglen.
Þegar Jack London var í Korea
sem frjettaritari í rússnesk-japanska
striðinu kom háttsettur embættis-
maður í lieimsókn til hans og sagði
honum, að fólk langaði afar mikið
til að sjá liann. London fann til sín,
að frægð hans skyidi vera komin
alla leið til Ivorea og varð við ósk-
inni. En þegar hann steig upp á
pallinn, sem hafði verið settur upp
til að sýna hann á, kom embættis-
maðurinn aftur til hans og hað
hann um, að taka tennurnar úr
munninum á sjer. Fólkið horfði
agndofa á liann meðan hann tók út
úr sjer tanngarðinn og liann var að
cndurtaka þetta livað eftir annað.
Það voru fölsku tennurnar en elcki
skáldið, sem fólkið vildi sjá.