Fálkinn - 28.03.1941, Qupperneq 2
1
2
F Á L K I N N
- GAMLA BÍÓ -
TÓNSKÁLDIÐ VICTOR IIERBERT.
Victor Hérbert var AmeríkumaSur
af írskum ættum, sem gerðist uppá-
hald þjóðar sinnar fyrir ástaróða þá,
er hann samdi. Vinsælla tónskáld er
varla lil vestan hafs, því að liann
hitti einmitt þann smekk, sem flestir
Ameríkumenn hafa fyrir tónlist.
Það er því engin furða, þó að
Paramountfjelaginu hugkvæmdist að
semja kvikmynd um æfi þessa þjóð-
argoðs, mynd sem segir frá hinni
margbreytilegu æfi hans og gæfi á-
heyrandanum sýnishorn af ástarlög-
um hans. Þessi mynd er nú hingað
kominn, og verður sýnd innan
skamms í Gamla Bíó. Er það Andrew
Stone, sem hefir tekið myndina og i
lið með sjer hefir hann valið fjölda
ágætra leikenda og söngvara, sem
gera hlutverkum sínum fylstu skil,
bæði í orði og óði óg leik. Walter
Conolly hefir tekið að sjer hlutverk
Victors Herberts sjálfs, en í helstu
sönghlutverkum kvenna eru Mary
Martin, sem viðfræg er um alla
Ameriku fyrir söng sinn á leik-
húsum og í útvarpi, og Susanna
Foster, sem leikur 14 ára gamla
telpu, er hefir tekið við hlutverki
hinnar fyrnefndu i leiknum „Prinv-
ess Peggy“ og syngur það þannig,
að undrun vekur. Fjórði aðalleikar-
inn er Allan Jones, sem leikur og
syngur á móti Mary Martin. Er
þetta einvalalið, bæði að því er
snertir leik og söng, svo að unaðs-
legt er á að hlýða.
En auk þessara er þarna fjöidinn
allur af skemtilegum hlutverkum
með afbragðs leikurum. Það er auð-
sjeð, að leikstjórinn liefir viljað
heiðra hið vinsæla tónskáld með
því 'að láta myndina af lífi þess skara
fram úr öðrum söngmyndum. Amer-
íkumenn hafa komist manna lengst
í því, að búa til íburðarmiklar söng-
myndir og sýnt i þvi mikla hug-
vitssemi, en þessi mynd fer þó feti
framar því sem venjulegt er um góðar
söngmyndir.
Svo að nefnd sjeu nokkur fleiri
leikaranöfn úr myndinni, er áður
hafa verið talin, er best að byrja
með Judith Barret. Þá má nefna
John Garrick, Jerome Cowan, Pierre
Watkin og Richard Tucker, sem allir
liafa stór hlutverk.
Lög Victors Herberts munu fæst
vera kunn lijer á iandi. En l)að er
ekki ólíklegt, að þegar þessi fallega
kvikmynd er búin að ganga nokkr-
um sinnum muni sum þessara ljóða
heyrast rauluð víða. Þau læsa sig
inn í meðvitund fólks eins og hin
Idjómþýðu lög Schuberts, sem allir
eru svo fljótir að læra.
Geslur Pálsson og Alda Möller
sem Anna og Henry.
LEIKHÚSIÐ:
Á útleið.
Leikfjelagið liefir tekið til sýning-
ar gamlan vin, „Á útleið“ eftir enska
skáldið Sutton Vane. Var frumsýn-
ing á leik þessum árið 1926 og fjekk
hann þá afar miklar vinsældir. Aft-
ur var leikurinn sýndur árið 1932.
Eins og margir muna, gerist leikur
þessi á landamærum lífs og dauða,
í ferju Karons, sem flytur fólk inn
á eilífðarlandið og er efni lians það,
að sýna hversu menn verða við breyt-
ingunni, er skeður á þeim landa-
mærum.
Það er nýjast við þessa sýningu,
að nú leikur Lárus Pálsson Scrubby,
hinn ógleymanlega þjón og bryta á
Þóra Borg sem frú Cliveden-Banks.
ferju dauðans. Alda Möller og Gest-
ur Pálsson leika ungu eiskendurna,
sem eru í dauðans kverkum, en vakna
aftur af gaseitruninni, Indriði Waage
leikur unga drykkjumanninn Tom
Prior og Árndís Björnsdóttir frú
Midget, I|þra Borg frú Cliveden-
Banks, Valur Gíslason heimsmanninn
Lingley, en Brynjólfur Jóhannesson
og Gunnar Möller prestana William
Duke og Frank Thompson. Leikstjór-
anum, Indriða Waage, hefir tekist
að ná fögru heildarsamræmi á leik-
inn og meðferð einstakra leikenda
á blutverkunum er yfirleitt ágæt.
Brynjólfur Jóhannesson
sem sjera William Duke.
Lárus Pálsson og V. Gíslason sem Scrubby og Lingley.
Indriði Waage sem Tom Prior. Arndís Björnsdóttir sem frú Midget.
(V/V(V(V/VíV<VlVlV/V/V<V<VlV/V/VlV/V/V/V/V/V/V(ViV
- NÝJA BÍÓ -
/» /W/V/V/V(V/V/V/V/V/W/W^»«»/V«/^/V^//V(V(V^//V(W
TOWER OF LONDON
kallar Universal Film sögukvikmynd
sina, er Nýja Bíó sýnir ó næstunni.
Tower var forðum eitt hið illræmd-
asta fangelsi Englands, þar sem fjöldi
manna var geymdur og látinn bíða
lífláts á hinum grimmúðu tímum
borgarstyrjalda og hermdarverka,
þegar illmenni sem einskis svífðusl
börðust um völdin.
Ýmsir menn hafa lesið liinn lieims-
fræga leik Shakespeares um Richard
III. Þessi mynd hefir tekið sjer sama
sögulega efnið, en höfundur kvik-
myndarinnar túlkar það á alt annan
liátt en Shakespeare og hefir lagt
meiri áherslu á, að gera myndina
sögulega rjetta, auk þess sem kvik-
myndin á yfir margfalt meiri hjálp-
armeðulum að ráða en leikliúsið og
getur notað sjer fjölda áhrifaríkra
viðburða, sem leikhússýning verður
að fara á mis við.
Það verður ekki annað sagt en
höfundur leiksins og leikstjóri hans,
bræðurnir Robert og Rowland Lee,
bafi notað sjer efnið vel. Myndin er
hvorki meira nje minna en sígilt
listaverk, sein ávalt mun verða talin
með þvi stórfenglegasta, sem tal-
myndin hefir getað framleitt á fyrri
helmingi 20. aldarinnar,. Myndirnar,
sem brugðið er upp af London 15.
aldar og aldarliætti þess tíma, eru
svo stórfenglegar og hrikalegar, að
þessi þáttur úr sögu hins fornfræga
ToWer of London gleymist aldrei
þeim sem sjeð hefir. Og alt er fært í
form og búning liins liðna tíma —
jafnvel hljómlistin er fró 15. öld og
leikin á hljóðfærin, sem þá tíðluið-
ust. Áliorfandinn er hrifinn á burl
frá stund og stað nútimans og kom-
inn, eins og í draumi, 500 ár aftur i
tímann, sem að flestu var ólíkur
okkar tímum nema að grimd og
mannvonsku.
En hvað myndina sjálfa snertir
þá væru liinar ágætu sýningar henn-
ar af glysi og prjáli hirðlífsins, or-
ustum brynjaðra hermanna og stór-
sögulegum atburðum lítils virði, ef
ekki færi þar saman alveg frábær
leikur þeirra, sem með aðalhlutverk-
in fara. Basil Ratlibone og Boris
Karloff leika þau tvö hlutverkin, sem
flestum mun verða minnisstæðust í
myndinni, nefnilega stórglæpamann-
inn Richard III., sem sölsar undir
sig völdin með morðum og svikum,
og böðullinn Mord, sem er andlegur
bróðir liins og ótrauður að fram-
kvæma öll þau hermdarverk, sem
Ricliard skipar honum fyrir um.
Gerfi Mords er eitthvert hið fúlmann-
legasta, sem nokkur kvikmynd get-
ur sýnt. Játvarð konung IV. leikur
Jan Hunter, en. drotning hans,
Elyzabet, er leikin af Barbara O’Neil.
Annað mesta kvenlilutverkið er leik-
ið af Rose Hobart. Er það Anne
Ncville, konan sem Ricliard fellir
óstarhug til og drepur mann liennar
til að ná.
er miðstöð verðbrjefavið-
skiftanna.
Sölubörn komið
og seljið FÁLKANN.