Fálkinn - 28.03.1941, Síða 3
F Á L K I N N
3
V<TT
Þrettán manns fórust með „Reykjabors
En tveir bjðrguðnst særðir ð fieka.
Ásmundur Sigurðsson,
skipstjóri.
Guðjón S. Jónsson,
2. stýrimaður.
Óskar Þorsteinsson,
X. vjelstjóri.
Gunnlaugur Ketilsson, Daníel K. Oddsson, Jón Lárusson,
2. vjelstjóri. Ioftskeytamaður. ’ matsveinn.
Hávarður Jónsson,
háseti.
Þorstcinn Ivarlsson,
háseti.
Árclíus Guðmundsson,
háseti.
Óskar Vigfússon,
kyndari.
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested
Skrifstofa:
Bankastr. 3, Reykjavík. Sími 2210
Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6.
Blaðið kemur út hvern föstudag.
kr. 6.00 á ársfj. og 24 kr. árg.
Allar áskriftir greiðist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millim.
HERBERTSprent.
Skraddarabankar.
Það vill oft bera við, þegar stór-
tíðindi gerast, livort þau eru góð eða
ill, að flugufregnir komast á kreik,
sem gera alt meira og slórfeldara en
satt er og rjett. Það er eins og sumir
finni.hjá sjer skyldu til að „trompa
yfir“ sannleikann. Þannig var það
þegar liver hörmungatíðindin ráku
önnur núna fyrir skemstu. Þá mátti
heyra það, að skip voru talin af,
sem ekki var ástæða til að óttast um.
Ef menn gerðu sjer grein fyrir hví-
líkur þorparaskapur þetta er, þá
mundu þeir leggja niður þennan ó-
sóma, svo framarlega sem þeir eru
ekki þrælmenni. Því að liver sem vill
hugsa hlýtur að sjá og finna, að það
veldur hugarkvöl margra i hvert
skifti, sem bornar eru út fregnir al'
slysum. Það má víst svo heita, að
naumast sje nokkurt lieimili svo hjer
í Reykjavík, að ekki eigi það vini
á liafinu. Og í fjölda húsa húa nán-
ustu ástvinir mannanna á sjónum,
konur, börn eða mæður. Nógu víða
hefir arinur dauðans lostið íslenska
farmenn í vetur og nógan harm hef-
ir hann bakað eftirlifandi ástvinum,
þó eigi sje fleirum gerður harmur
og skelfing með ósönnum fregnum
um slys, sem eigi hafa orðið.
Yfirleitt ætti almenningur að reyna
að setja sig i s,por þeirra, sem eiga
vini sína á sjónum, á- þessum skelf-
ingatimum. Setja sig í spor kvenn-
anna, sem eiga margar og langar and-
vökunætur út af umliugsuninni um
eiginmanninn, soninn eða unnust-
ann og jafnvel föðurinn. Börnin eru
iíka næm og tilfinningar þeirra óhert-
ar og það er vitanlegt, að kviði
barna og unglinga getur mótað alt
sálarlíf þeirra og truflað það.
Það er því þung ábyrgð, sem hvílir
á þeim, er gera sjer leik að því, að
koma á loft getgátum, sem þeir hafa
engar sannánir nje jafnvel líkur fyr-
ir. Það er meira að segja ábyrgðar-
hluti að taka slikar sögur trúanleg-
ar að órannsökuðu máli og gerast
verkfæri til að koma þeim í fleiri
eyru. Á svona tímum er þögnin mik-
ilsverðust — vond tíðindi koma alt-
af nógu snemma.
íslenska þjóðin hefir á þessum
vetri goldið meira afhroð og grimmi-
legra en nokkru sinni fyr. Þeir ótrú-
legu viðburðir liafa gerst, að erlend
þjóð liefir skotið á varnarlausa sjó-
menn, eftir að þeir liöfðu yfirgefið
skip sitt út á reginhafi. En þó að slik
tíðindi sjeu ijót þá er engin ástæða
til að flýta sjer að skapa meiri hörm-
ungatíðindi. Það ber vott um æðru-
skap eða ilt innræti.
I síðasta hlaði Fálkans voru
taldar líkur til þess, að hinn
glæsilegi togari „Rgykjaborg“
hefði orðið fyrir árás líkt og
„Fróði“ og mundi ekki vera
ofan sjávar. Studdist þetta við
það, að sundurskotinn fleki af
skipinu hafði fundist vestur af
St. Kilda, mannlaus, en bar
þess þó merki, að menn hefðu
komist á liann.
En á fimtudaginn var barst
hingað sú fregn, að enskt her-
skip hefði bjargað tveimur
mönnunt af Reykjaborg og
lægju þeir nú á „Royal Infirm-
ary“, sjúkrahúsi i Greenock í
Skotlandi. Þessir menn, sem
björguðust, eru Eyjólfur Jóns-
son háseti, Hverfisgötu 90 og
Sigurður Hansson kyndari á
Framnesvegi 16. Sigursteinn
Magnússon ræðismaður hefir
nú átt tal við þá og sömuleiðis
frjettamaður frá United Press
og bárust nánari fregnir af
slysinu hingað á mánudaginn.
Að kvöldi þess 10. þ. m. eftir
að dimt var orðið rjeðist kaf-
bátur á Reykjaborg með lát-
Runólfur Sigurðsson,
skrifstofustjóri.
\
lausri skothiáð, sem særði
skipsmenn og varð þeim að
bana. Skipið sökk, er þessi ó-
fagri leikur liafði staðið heila
klukkustund og aðeins þrír
menn komust lifandi frá borði
Óskar Ingimundarson,
kyndari.
á flekann, nfl. þeir Eyjólfur og
Sigurður, ásamt þriðja manni,
sem enn er eigi kunnugt um
nafn á. Yar skotið .á þá er þeir
voru að komast út á flekann
Frh. á bls. 14.