Fálkinn


Fálkinn - 26.02.1943, Page 14

Fálkinn - 26.02.1943, Page 14
14 F Á L K I N N Þorgrímur Jónsson 70 ára Þorgrímur Jóns- son Laugarnesi verður 70 ára laug- ardaginn 27. þ. m. Hann er fæddur að Skipholti í Hruna- mannahreppi og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, sem þar bjuggu. — SöðlasmíSi lærði hann hjá frænda sinum Jakobi Jóns- syni á Galtafellr, fluttii til Reykja- víkur vorið 1897 og setti þar upp verk- stæði í iðn sinni. Ári siðar giftist hann Ingibjörgu Kristjánsdóttur. — F.luttu þau lijón íiokkru síðiar að Lágafelli í Mosfells- sveit og fóru að búa þar. Vorið 1915 fluttu þau að Laug- arnesi hjer við bæ og hafa búið þar síðan, nema hvað þau hafa leigt jörð- ina 2 seinustu ár- in, en eiga þó enn heimili að Laugar- nesi. Þau hjón eign- uðust 7 börn, en hafa orðið fyrir þeirri sáru sorg að missa tvö þeirra, uppkomin og gift. Þorgrímur hefir verið og er enn hinn mesti fjör og gleðimaöur. Hann var mikill glímumaður og fjekk 1. verðlaun fyrir þá íþrótt á þjóðminn- ingardegi Reykjavíkur 2. ágúst 1897. Mundi enginn, sem sjer Þorgrím ætla liann sjötugan, svo kvikur er hann á fæti og enn stundar hann iðn sína sem veggfóðrari árið um kring. Hann er óvenju hagur og verklaginn, hefir meðal annars stund að járnsmíðar og er eins og verkin leiki i höndum hans. Um það er þó mest vert, að tæp- lega getur góðviljaðri og greiðvikn- ari mann, en Þorgrímur er. Get jeg ekki hugsað mjer annað, en að öll- um, sem kynnast Þorgrími þyki vænt um hann. Hann sjer aldrei eftir því að taka á sig ómak og ó- þægindi til þess að rjetta öðrum hjálparhönd, hvort sem þeir eru honum kunnugir eða ókunnugir. Gest- risnin er takmarkalaus, enda eru þau hjón samvalin í því sem ö>ðru. Hugir fjöldamargra vina, bæði nær og fjær munu stefna að Laugarnesi þennan hátíðisdag hins unga öld- ungs og minnast jafnframt margra gleðistunda og allskonar vinsemdar, sem heimiiið er alla tíð svo óspart á. A. S. Halli turninn í Pisa. .4 miðöldum var hinn forni stað- ur Písa í Toskana einn af helstu verslunarbæjum við Miðjarðarhaf og var stundum líkt við Genúa og Ven- ezia hvað auðlegð og íburð snerti. En þegar stundir liðu fram fór Písa að hnigna því að keppinautarnir, einkum Firenze, uxu honum yfir liöfuð; einnig átti Písa i styrjöld- um, sem fóru illa og loks varð bær- inn fátækur og aumur. En frá blómatímum sínum geymir hann ýmsar byggingar, sem bera þvi vitni, hvað hann einu sinni var. Þrjár þeirra eru frægastar: Klaustrið, dóm kirkjan og halli turninn, og slanda þær allar nálægt hver annari.. Turn- inn, sem er átta hæðir, er reistur á árunum 1174—1350, og eru hring- mynduð súlnagöng utan um hverja hæð. Hann er 54% meter á hæð og hallinn á lionum að utan er W-i meter — þ. e. munurinn á efstu brún og jaðri grunnflatarins. Það hefir verið deilt um, livort turninn hafi með vilja verið látinn liallast svona, eða livort grunnurinn undir honum liafi missígið, og turninn hallist þessvegna. Hið síðarnefnda ér sennilegra, þvi að eflaust hefði turninn verið fallegri, ef hann stæði lóðrjettur. En frægur er hann orð- inn fyrst og fremst vegna þess að hann liallast, þó að hver sá, sem sjeð hefir hljóti að viðurkenna, að turninn á ekki fegurð sína hallan- um að þakka lieldur súlnagöngun- um, sem eru úr ljósleitum Carrara- marmara og sýna hin fegurstu lit- brigði, einkum um sólarlagið. Halli turninn er klukkuturn (kampanila) og efst í honum eru sjö klúkkur, samstiltar. HÖLLU TURNARNIR í BOLOGNA. Písa er ekki eini bærinn, sem getur státað af þvi að eiga hallan turn, þó að Pisaturninn sje að vísu frægastur. En víðar eru til liallir turnar. Turnar þeir, sem þykja ganga næstir Písaturninum eru tveir liallir turnar í Bologna, og heita Torre Garisenda og Torre Asinelli, eftir húsameisturunum, sem bygðu þá. Garisenda er lægri, og hann var bygður þannig að hann hallaðist,' en Torre Asinelli er 98 metra hár, og hæstur allra turna sem liallast. Þeir voru báðir bygðir á tólftu öld. *** r** f** r+* Effeltnrninn. Þegar Alexandre Gustave Eiffel lagði fram tillögur sínar um að byggja risavaxinn turn úr stáli, skömmu eftir 1880, i tilefni af heims- sýningunni, sem haldin skyld 1889, mættu þessar tillögur eindreginni mótspyrnu úr ýmsum áttum og höf- undur þeirra var hafður að háðii.og spotti. Flestum fanst sem það væri óðs manns æði, að ætla sjer að reisa 300 metra háan turn. Því að hæstu dómkirkjuturnar voru mildu lægri; t. d. var turn dómkirkjunnar í Köln ekki nema 160 metrar. Það þótti einnig líklegt, að svona stálgrinda- turn yrði ekki til neinnar prýði fyr- ir sýninguna eða Parísarborg. En Eiffel stóðst allar mótbárur og turn- inn mikli var reistur og stendur enn í dag og þykir borgarprýði. Ennþá er turninn hæsta bygging veraldarinnar. Hann er fyrst og fremst notaður sem útsýnisturn, en jafnframt sein útvarpsstöð og loft- skeytastöð og þar eru einnig gerðar veðuratliuganir. Hægt er að komast í lyftu á þriðja pall turnsins, sem er í 276 metra hæð, en þaðan er dá- samlegt útsýni yfir borgina miklu og umhverfi hennar, en Signa liðast eins og silfurrák gegnum borgina. Ganga má stiga upp á efsta pall turnsins, en það er ekki hent svima- gjörnum mönnum, og vindurinn ýlfr- ar í járngrindunum og skekur turn- inn, svo að hann hreyfist eins og flaggstöng í roki. Egils ávaxtadrykkir Mynd þessi er frá Oran, hinni miklu hafnarborg í Alsir, sem Bandaríkjamenn tóku í vetur. Sjer á myndinni yfir höfnina og i baksýn sjest til Atlasfjallanna. Þar er ein besta höfnin á allri norðurströnd Afriku, að frátekinni Biscrta í Tunis, enda er mikil verslun i borginni. Hún er bygð af Frökkum og i nútimastil og er því gjöróiik hinum gömlu borgum landsins. Er ibúalala borgarinnar yfir 160.000 manns og mikill útflutningur, einkum af korni, víni, kvikfjenaði og málmum. Frakkar höfðu þar lengi herskipalægi og nú hafa Bretar og Banda- ríkjamenn þar flotastöð, eins og myndin ber með sjer.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.