Fálkinn - 09.04.1943, Síða 2
2
F A L K í N N
Fyrir þrem árum:
Hernám Noregs
og Danmerkur.
Þrjú ár eru liðin í dag síðan
hinir hörmulegu atburðir gerð-
ust, að að ráðist var með of-
beldi og svikum inn í lönd
tveggja þeirra þjóða, sem oss
eru nákomnastar: Dana og
Norðmanna. Þetta eru þrjú
löng ár, og við, sem ekki höf-
um hafl neitt af hörmungum
stríðsins nje grimd kúgara að
segja, ættum að gera okkur
Ijóst, hve við höfum í rauninni
átt gott og hve þungbær þessi
þrjú ár hafa verið nánustu
frændþjóðum okkar.
Það er sjálfsagt ekki ofmælt
þegar sagt er að engin þjóð
Evrópu liafi átt jafngóða daga
síðustu þrjú árin og við íslend-
ingar. Við höfum haft fullar
hendur fjár, okkur hefir ekki
skort neitt. Hitt er annað mál
hvort við höfum kunnað að
nota okkur góðæri undanfar-
inna ára, eða hvort við stönd-
um jafn vel að vígi og hinar
tvær þjóðir, sem við raunirnar
hafa búið, þegar við eigum að
fara að berjast fyrir lífinu eft-
ir stríðið. Því að það þarf sterk
bein til að þola góða daga.
Norðmenn kusu að berjast og
falla með sæmd — í bili —
fremur en að kyssa á vönd
kúgarans. Síðan höfum við
heyri um sífeldar aftökur og
fanyelsanir í Noregi, við höfnm
heyrt um skort ok vandræði,
um bæi, sem lagðir hafa verið
í ösku. En við höfum heyrt
annað frá Noregi líka. Við höf-
um heyrt um óbugandi sjálf-
stæðishug norsku þjóðarinnar,
sem aldrei gefst upp og þorir
að horfast í augu við dauðann,
þvi að hún veit, að til er það
sem er verra en dauðinn, og
það er að svíkja ættjörð sína
og sjálfstæðismál hennar.
Og frói Danmörku, sem þó
var öðruvísi ástatt um en Nor-
cg, frjettum við um sívaxandi
'mótspyrnu þjóðarinnar gegn
kúgurunum. Kosningarnar, sem
nýlega eru afstaðnar í Dan-
mörku, sýna til fulls, að Danir
hafa ekki i hyggju að láta bug-
ast í baráttunni fyrir frelsi sínu
og fósturjörð.
Vissulega megum við margt
af þessu læra. Hjá frændþjóð-
um okkar hefir skapast for-
dæmi, sem vissulega mun verða
minst ávalt meðan saga Norð-
urlanda geymist.
Væri ekki ástæða til að við
mintumst Noregssamskotanna i
dag og tækjum okkur saman
um að láta þau verða komin
upp í eina miljón áður en næsti
17. maí rennur upp ■— fjórði
þjóðardagur Norðmanna, sem
þjóðin fær ekki að draga fána
að hún í sínu eigin landi.
Tilkynning
Höfum fyrirliggjandi:
Svefnherbergishúsgögn, ljóst birki, tvær gerðir.
Borðstofuborð, eik og hnota, tvær stærðir.
Salonstólar.
Sófaborð, eik og hnota
Renaissance sófaborð útskorin.
Furustólar með baki. — Stólkollar.
Jón Halldórsson & Co. h.f.
Skólavörðustíg 6 B
Sími 3107
KLUKKAN MIKLA í KREML.
1 Kreml, háborðinni í Moskva, er
stærsta klukka veraldarinnar. Hún
er átta metra há, en ummál hennar
að neöan er 20 metrar. Hún var
steypt árið 1735, eftir skipun Önnu
drotningar, og sett upp í háar trön-
ur úr tiinbri, því aS ekki var hægt
að koma lienni fyrir í turni, en
trönurnar voru ekki traustari en svo
aS þær brotnuSu og þá hrapaSi
klukkan og grófst sex metra i jörð
niður i fallinu. ViS sama tækifæri
brotnaSi stykki, sem er 11 smálestir,
úr klukkunni. Þarna lá svo klukk-
an, sem aldrei heyrðist hljómur úr,
í gröf sinni í liundraS ár. En Niku-
lás keisari I. tók loks rögg á sig og
Ijet hlaSa pall einn mikinn á torg-
inu i Kreml og bisa klukkunni upp
á pall þennan. Þar dúsar hún enn
og verSur flestum starsýnt á þetta
mikla ferlíki. Innan í klukkunni
geta rúmast 25 manns.
Jón Brnnjólfsson.
40 ára
Magnús J. Brynjólfsson
afmæli:
Leðurverslun Jóus Brpjólfssonar
A laugard. átti elsla sjerverslun
landsins með leður 40 ára afmæli.
Því að 3. apríl 1903 stofnaði Jón
heitinn Brynjúlfsson leðurversluii
sína í liúsinu nr. 3 við Austúrstræti.
Var það bæði heildverslun og smá-
sala og hefir verið rekin á sama
stað ætíð siðan og löngum verið
landskunn fyrir vöruvöndun og á-
reiðanleik í livívetna.
Stofnandi verslunar jiessarar var
Jón lieitinn Brynjólfsson kaupmað-
ur. Hann hafði lært hjer skósmiði
hjá Rafn lieitnum Sigurðssyni, eft-
ir að hann fluttist til Reykjavíkur
úr átthögum sínum úr Borgarfirði,
en sigldi til úttanda til frekara náms
árið 1888 og stofnaði hjer skósmiða-
vinuustofu 4. ágúst árið 1890 og
gerðist vinnustofa hans brátt stór
á þátíma mælikvarða. Árið 1897
bygði Jón heitinn hús sitt við Aust-
urstræti og hjelt jiar áfram iðn sinni
uns hann stofnaði leðurverslun sína
á sama stað, eins og áður er sagt.
Rak hann verslunina með liinum
mesta dugnaði og varð vel til skii'ta-
vina, enda hafði hónum tekist að
komast í viðskiftasambönd við hin
bestu firmu erlendis. Varð leður-
verslun Jóns Brynjólfssonar brátt
landskunn og hafa vinsældir hcnn-
ar haldist óskert fram á jiennan dag.
í árslok 1926 seldi Jón Magnús'
syni sínum verslunina og hefir hanr
rekið liana síðan.
Jón heitinn Brynjólfsson naut al-
menns trausts hjer í bæjarfjelaginu
og skoraðist litt undan liðsinni j>eg-
ar til hans var leitað. Má' aðcjns
nefna hjer, að hann sát í Niður-
jöfnuijarnefnd i sex ár og Vai einn
af stofnendum Verslunarráðs, ís-
lands, en það komst á laggirnar ár-
ið 1917, Sat hann í stjórn þess frá
öndverðit og til ársins 1934. Þegar
Fríkirkjusöfnuðurinn var stofnað-
ur hjer upp úr aldamótunum var
Jón einn af forgöngumönnum þess.
Og formaður Kaupfélags Reykja-
vikur var hann 1916—19. Hann dó
fyrir rúmu óri, hinn 1. febrúar 1942.
DREKKIÐ EBIL5-0L
O O o
Gólfteppi
Stór og smá teppi, sem jeg hefi sjálfur valið á
meðan jeg dvaldi í London, sel jeg næstu daga.
Innkaupin voru sjerstaklega hagkvæm, og er
þetta því alveg óvenjulega gott tækifæri lil þess
að gera góð kaup. Sl©ppið ekki tækifærinu, það
kemur ekki aftur.
Kjartan Milner
Sími 5893. Tjarnargötu 3. Sími 5893.