Fálkinn


Fálkinn - 09.04.1943, Blaðsíða 14

Fálkinn - 09.04.1943, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N T. h.: Ólafur kon- ungur í hofi Þórs T. u.: Enskur biskup skirir Gunnhildi konga- móöur. ÁSATRÚIN. Framhald af bls. 5: staða varð árangurslaus. Jafnvel Ól- afur digri var gerður heilagur mað- ur, jjrátt fyrir öll sín svlvirðuverk. í Svíþjóð komst kristni á löngu síðar en í Noregi. Ingvi konungur, sem tók riki 1080 boðaði kristni með báli og brandi — að boði Gregors páfa VII. —, en þó var andstaðan gegn kristninni ekki að fullu brotin á bak aftur fyr en í stjórnartíð. Sverkis konungs (d. 1156). Eiríkur helgi eftirmaður bans fór með her manns til Finn- lands og drap þar fjölda manns, áður þjóðin ljeti skírast, 1157. ísland var eina landið sem tók kristni blóðsúthellingarlaust. Átrúnaður feðranna var nú orð- in hjátrú og villa en í staðinn fjekk alþýðan afbakaðan kristindóm og páfa, sem einn hafði lyklavöldin að himnaríki. Enginn skilji orð mín svo, að jeg áliti ásatrúna svo fullkomna að ekki liafi verið þörf á kristindóm- inum. Blákaldur sannleikurinn um það, með hvaða hætti kristnin kom á norðurlönd, er ekki þannig meint- ur, en vilji menn kynnast trú for- feðranna verður maður að skoða hvernig hún var og hvernig hún var bæld niður, en ekki vilhaila skrípa- mynd af henni. Þrátt fyrir að guðshugmynd ása- trúarinnar væri i upphafi hrein og göfug hafði Þórsdýrkunin gengið svo úr hófi, að það þótti sómi að hryðjuverkum víkinganna og þessu skylt var það, hvernig blóðhefndin náði tökum á mönnum á íslandi á söguöldinni. Trúbrögðin voru orð- in þannig, að þau þurftu endur- nýjunar við. Og einmitt kristnin með kærleiksboð sitt hafði þarft erindi að rækja, að draga úr ofsa aldarinnar. Enda var það kristnin sem batt enda á víkingaferðirnar. Það sem gerði viðkynningu ása- trúar og kristindóms erfiðari en ella mundi var m. a. það að kristin- dómurinn var vaxinn upp úr um- hverfi, sem norðurlandabúar þektu ekl.i til. Þeir voru vanir að hugsa sjer að guð opinberaðist í náttúr- unni — guð var í blómunum, í fuglasöngnum. Þessvegna bjó þjóð- trúin til ljósálfa, sein bjuggu i blómabikurum og sungu í lækjar- niðnuin. En austurlenska glysið, gullið og eðalsteinarnir, perluhlið og gulllagðar götur voru fjarri hug- arheimi norðurlandabúa. Hvers- vegna áttu þeir að syngja um sedr- usvið frá Líbanon en ekki furu og birki. Og þessu líkt var alt. Það var ekkert gert til þess að samræma trúna norrænum hugsunarhætti og hún varð útlend og yfirnáttúrleg. Og lielgisiðirnir urðu latneskir — fólkið átti að tilbiðja guð á máli, sem það skildi ekkert i. Slíkt trú- boð gat ekki orðið til þess að gera manninn betri eða auðga anda hans. Kristófer Grímsson, búfrœðingur, Hraunteig 10, verður 50 ára 12. þ. m. Márus Júlíusson, trjesmiður, Berg- staöastræti 22, varö iO ára 5. april. TVEIR UNGIR LEIKENDUR, % Framhald af bls. 3:, Guðmundur Gunnarsson er ættað- ur úr Hornafirði, en hefir dvalist á Akureyri í nokkur ár. Hann ljek fyrst með Leikfjel. Akureyrar auka- hlutverk í leiknum „Fróðá“ eftir Jóhann Frímann, en ekki varð neitt ráðið af svo smáu viðfangs- efni að ræða, en þar á eftir fjekk liann stærri hlutverk til meðferðar hjá fjelaginu, og kom þá fljótt í ljós, að hann hafði ótvíræða hæfileika á þessu sviði, og má liiklaust telja Guðmund einn af traustustu stoð- um er leikstarfsemin á Akureyri hvílir nú á. Meðal eiginleika hans má t. d. nefna, að hann hefir óvenju- lega góðan málróm fyrir leiksvið, er og ágælur söngmaður (bassi), sem eins og vitað er er nauðsynleg- ur kostur, er um söngleiki er að ræða. Helslu hlutverk Guðmundar á þessum árum hafa verið Moriarty I „Sherlock Holmes“, Hjálmar i „Skrúðs'bóndinn", Reiðar sendimað- ur í „Nýársnóttin“, Bertel í „Þrir skálkar“ og nú, er þetta er ritað, hefir hann verið ráðinn til að fara með hlutverk Arnesar í „Fjalla- Eyvindi“ er L. A. tekur til með ferðar. H. Vald. Egils ávaxtadrykkir Stanley-vörur nýkomar: Heflar, allar tegundir. — Stálvinklar. — Snið- mát. — Tommustokkar. — Brjóstborar. — llamrar, fleiri tegundir. — Tangir allskonar. Borar, margar stærðir og gerðir. — Skrúfjárn, fjöldi tegunda. — Rissalir. — Trjeblýantar. — Stálmálbönd. — Hefiltannir, fleiri stærðin*"— Sagir, fleiri lengdir og gerðir. — Glerskerar. — Kíttisspaðar, mjög góð tegund. — Dúkk- nálar. — Sporjárn, allar stærðir frá 1/8—1%”. — Svæhnífar. — Þjalir, fjölda teg. Ennfremur höfum við fyrirliggjandi hið heims- fræga FRANKLIN TRJELlM óviðjafnanlegt að gæðum. Vörur sendar gegn póstkröfu um alt land. Verslun B. H. Bjarnason REYKJAVÍK. ± Allt með islenskum skipuni! í Fálkinn er langbesta heiinilisblaðið.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.