Fálkinn - 04.05.1945, Síða 5
F Á L K I N N
5
Verslunarhús Edinborgar 1895, og til hægri húsiö, sem brann 1915.
Edinborg liefir jafnan verið ein
af stærstu og stundum stærsta versl-
un landsins. Á fyrsfu árum sínum
setti hún á stofn útbú 'viða um land,
svo sem á Akranesi, Akureyri, Hafn-
arfirði, ísafirði, Keflavík, Stokkseyri
og Vestmannaeyjum. Þau voru siðar
lögð niður, en þess í stað fór Ás-
geir Sigurðsson að reka heildsölu-
verslun jafnframt Edinborg.
Fyrstu mánuðina leigði Edinborg
í búsi Þorláks O. Johnson í Lækjar-
götu en keypti svo Knutsonshúsið í
Hafnarstræti 12 og færði nú óð-
fluga út kvíarnar. Vestur af liúsinu
var reist stórt verslunarhús 1905,
hið stærsta og fullkomnasta i Reykja
vík í þá daga, og bak við þessi hús,
út að Austurstræti keypti verslunin
liús Sturlu Jónssonar, sem stóð ]>ar,
sem nú er Búnaðarhankinn. Þar var
nýlenduverslun niðri, en uppi var
klæðskerastofa. En í liúsunum við
Hafnarstræti var skóbúð i gamla
húsinu, en liin eiginlega Edinborgar-
verslun, búsmunir, hreinlætisvörur
etc. í nýja húsinu. Þannig stóðu
sakir í apríl 1915, er öll þessi hús
verslunarinnar brunnu til ösku á
einni nóttu, ásamt að heita níálli
öllu, sem í þeim var.
Þelta var mikið áfall. Og eflaust
hefir það ráðið miklu um, að sú
breyting varð á versluninni, sem
raun ber vitni siðan. Eftir brunann
tekur Edinborg á sig þá mynd, sein
menn þekkja í dag. Skóverslunin
var lögð niður, en forstöðumaður
hennar, Stefán Gunnarsson, setti upp
sjálfstæða skóverslun, Klæðskera-
deildin rís upp aftur sem sjálfstætt
fyrirtæki þeirra Guðmíindar Bjarna-
sonar og Fjeldsted, en Sigurbjörn
Þorkelsson, sem lengi hafði stjórn-
að pakkhúsunum — þau voru þar,
sem Eimskipafélagsliúsið er nú —
stofnar verslunina Visi, ásamt Guðm-
Ásbjörnssyni. Edinborg lieldur á-
fram vefnaðarvöruverslun sinni og
glervöru-, húsmuna- og lireinlætis-
vöruverslun í Ingólfshvoli um tíu
ára skeið, uns fullgert var liið mikla
stórhýsi verslunarinnar, sem sjá má
í dag. En það á tuttugu ára afmæli
í ár.
Ásgeir Sigurðsson hafði orðið einn
eigandi Edinborgar árið 1917 og var
það í níu ár. En árið 1926 gerðist
Sigurður B. Sigurðsson meðeigandi
i versluninni og tekur við stjórn
hennar ásamt Ásgeiri. Og 1928 gerist
Walter sonur Ásgeirs meðeigandi.
Hans naut því miður stutt við, þvi
að hann beið bana af slysi fjórum
árum siðar. Misti fyrirtækið þar
að því að li.f. Fiskimjöl var stofnað,
1929, og stjórnaði hann þvi meðan
aldur entist, en síðan liefir Einar
Pétursson verið forstjóri þess. Árið
1933 var stofnuð Veiðarfœragerö ís-
lands, sem nú rekur fullkomna
verksmiðju i nýtisku húsum við
Einholt 6, og framleiðir þar fiski-
linur, öngultaumia o. fl. i stórum stíl.
Meðeigandi og framkvæmdarstjóri er
Pétur Jóhannsson, en versmiðjustjóri
Jón G. Jónsson. Gúmmí h.f var stofn-
að 1943. En í rauninni er þetta fyrir
tæki miklu eldra. Edinborg liafði
lengi haft mikinn innflutning á bif-
reiðagúmmíi — heildverslunin liafði
umboð fyrir Goodricli — og kom
sér því fljótlega upp viðgerðastofu
Þegar einkasala á bifreiðum var
tekin upp, keypti liún þetta fyrir-
tæki, en seldi fyrri eigendum aftur,
er hún var lögð niður. Stjórnar Sig-
urður Stefánsson viðgerðarstofunni.
í júlí 1940 var stofnað firmað Ilöföa-
vík li.f. og rekur það netjagerð. ÖU
þessi fyrirtæki eru að vísu sér-
félög, en Edinborg meðeigandi í
þeim og hefir gengist fyrir stofnun
þeirra. Svo að þetta fimmtuga fyrir-
tæki hefir átt eigi lítinn þátt í
íslenskum iðnaði hin síðari árin. —
Það er eftirtektarvert, hve margir
þeirra, sem nú sfanda framarlega í
islenskri verslunarstétt hafa „slitið
barnsskónum“ í Edinborg. Hin unga
Verslun méð nýju sniði, sem var að
rísa upp í Reykjavík um aldamótin,
befir heillað unga menn, sem vildu
fara nýjar leiðir en ekki troða gaml-
ar götur úrelts fyrirkomulags, er
sumpart hyggði tilveru sína á náð
stórkaupmanna við Eyrarsund. Af
þeim mörgu, sem unnu bjá Edinborg
á duggarabandsárum sinum má til
dæmis nefna: Ólaf Johnson stórkaup
nmnn, Arent Claessen stórkaupmann,
Hallgrim Benediktsson stórkaupm.
og Guðmund Þórðarson skrifstofu-
stjóra frá Hól, Ólaf Proppé forstjóra
og Sigurbjörn Þorkelsson kaupmann,
svo að nefndir séu nokkrir, sem
allir kannast við .
Eitt af þeim nýmælum, sem Edin-
borg flutti inn í landið með sér var:
kurteisi við afgreiðslu, og var þetta
í rauninni bein afleiðing af hinum
breytta verslunarhætti. Skuldaversl-
unin liafði í för með sér undirlægju
skap viðskiftavinarins og liroka af-
greiðslumannsins. Nú er þetta svo að
segja óþekkt fyrirbrigði. En það
þótti nýjung um aldamótin, hve af-
greiðslufólkið í Edinborg var kur-
teist. Enda varð það oft gamalt í
Frh. á bls. Í4.
mikils, því að Walter var maður
prýðilega vel gefinn og áhugasamur
um ýms nýmæli og vinsæll svo af
bar. Var mikill liarmur kveðinn að
Ásgeiri, sem þá var kominn fast að
sjötugu, við þetta hörmulega fráfall
sonarins. — Haraldur sonur hans
hafði starfað í skrifstofu Edinborg-
ar um hríð, en fyrir nokkrum árum
dró hann sig í hlé frá kaupsýslu, og
sinnir nú eingöngu þeim hugðar-
efnum, sem liann hefir átt frá
bernslcu: leiklist og leikritagerð. En
meðeigandi er liann áfram ásamt
Sigurði B. Sigurðssyni, og eru þeir
eigendur, en heildversluninni var
breytt i hlutafélag fyrir 4 árum.
Síðan Walter Sigurðsson féll frá
hefir Sigurður liaft stjórn fyrir-
tækisins á heiuli í raun og veru,
því að síðustu árin sinnti Ásgeir
henni lítið. Hann hafði orðið bresk-
ur aðalræðismaður árið 1928 — en
ræðismaður hafi liann þá verið í
20 ár — og það voru aðallega ræðis-
mannsstörfin, er hann sinnti síðustu
árin. Enda átti hann nú skammt
eftir ólifað. Hann andaðist 26. sept.
1935 og skorti þá tvo daga á 71
árs aldiir. Féll þar i valinn merkur
ágætismaður, sem ávalt mun verða
minnst í verslunarsögu íslendinga,
og enda i sambandi við fleira, því
að margt var honum vel gefið. En í
verslunarmálum var hann einn af
þeim, sem „hrintu vorum hag á leið,
með heillar aldar taki.“
Þess liefir hér verið getið, að
Versl. Edinborg fækkaði greinum
sínum eftir brunan 1915. En þó dró
ekki úr famkvæmdum þessa fyrir-
tækis við það. Heildverslunin var
efld og nú varð Ásgeir Sigurðsson
einn af binum stóru fiskkaupmönn-
um og fiskútflytjendum landsins —
um nokkurt skeið í samlögum við
Berrie fyrrv. félaga sinn, en Cop-
land hafði sett upp eigin fiskverslun.
Rak Ásgeir Sigurðsson fiskútflutn-
ingsverslun fram að þvi er Sölusam-
band islenskra fiskútflytjenda var
stofnað.
En á margvislegan annan hátt urðu
þeir eigendur Edinborgar forgöngu-
menn, ekki síst i iðnaði. Walter Sig-
urðsson mun liafa átt frumkvæðið
Núverandi verslunarhús, fullgert 1925.