Fálkinn


Fálkinn - 17.08.1945, Blaðsíða 6

Fálkinn - 17.08.1945, Blaðsíða 6
6 FÁLKINN - LITLfl SflBflN - Erik Bertelsen: í hálfa stöng Gústaf, sem var Ihi ára, kom hlaupandi inn í stofu. „Mamma, nú kemur pabbi me';S „Máfinn“ — þeir eru komnir inn á fjörS.“ Móðirin stóð upp. Hún var þreytt eftir þyottinn og liafði vonast til að börnin kæmust fljótt í bólið. En nú yrði ekki af því, fyrst Pétur var að koma. Hann hafði frá svo mörgu að ségja, eftir fimm vikna íjarveru. Og svo vildi hann leika sér við börnin. Hún var hálf önu,g. „Hver segir að þeir séu að koma?“ „Eg sá það sjálfur. Eg þekki livítu bótina á stórseglinu. Á ég að hlaupa og segja henni Signu það?“ „Hugsaðu um sjálfan þig!“ svaraði hún hvasst. Signa var gift Jörgen, félaga Pét- urs. Þeir áttu jafnt í skipinu og kom vel saman. Og það hafði kon- unum gert líka. En nýlega hafði vináttan snúist í hatur. Þær höfðu ekki talað orð saman síðan kvöld- ið sem Signa sagði: „Þú ert auma kjaftakerlingin, Karen.“ Að vísu hafði Karen sagt við aðrar, að Signa væri stundum lié- gómleg, tildurdrós og löt. En það var ekkert slúður. Það var satt. Og að maður tali um slúður þá liafði Signa víst sagt viða, að Karen réði ekkert við krakkana sína, þegar hún væri ein með þau heima. Þessvegna var hún öfundsjúk. Þrá var hún líka. Annars hefði hún verið sáttfúsari. Karen var fyrir löngu orðin leið á þessum fjand- skap! En ekki hafði hún ástæðu til að vera mjúk, þegar Signa sneri alltaf svona upp á sig. En leiðinlegt var þetta, sérstak- leg núna, þegar mennirnir komu heim. Þeir vissu ekkert um þetta. Karen hafði ekki skrifað neitt um það. Og ef þeir lentu í þessari mis- klíð, gæti margt farið illa. Þeir mundu kanske verða óvinir æfi- langt. Og á þvi mundu báðir tapa. Gústaf liorfði á þyrkingslegt and- lit móður sinnar. „Eigum við ekki að fara niður að sjó, mamma?“ Hún kinkaði kolli. Svo fór hún inn i garðinn, þar sem hin fimm hörnin voru. Tók það minnsta á handlegginn. Hin fóru á kreik, und- ir eins og þau heyrðu að pabbi væri að koma. Þegar hún var komin út úr skóg- inum, kom hún auga á skipið. Það var ekki komið eins langt inn á fjörðinn og drengurinn hafði sagt. Ef golan yrði ekki snarpari mundi skipið verða hálftíma inn á leguna. En það var rólegt að sitja í fjörunni og bíða, miklu betra en heima við liúsið. Hún ætti eiginlega að ganga þangað á hverjum degi. Karen settist efst á bryggjunni en lét þann yngsta leika sér í sand- inum. Hin voru að hoppa slcammt frá. Þeim kom betur saman en venju lega. Og tilhugsunin um heimkomu föður þeirra dró úr ærslunum. Máske voru þau að hugsa um, hvort mamma mundi ekki segja pabba frá yfirsjónum þeirra, eins og liún hafði hótað. En hún skyldi ekkert segja hon- um. Hann átti ekki að ergjast að óþörfu. Og liún vissi að ef hann reiddist þeim, þá mundi hann verða harðleiknari en henni þótti gott. Hún kunni ekki við hörku og átti bágt með að refsa. Það var víst jjessvegna, sem stundum var erfitt að hafa stjórn á honum. Gústaf kom íbygginn og tók í kjólfaldinn liennar. Hún tók eftir hvert liann horfði og sá nú að Signa stóð í skógarjaðrinum, að liálfu bak við tré. Hún liafði þá séð þegar þau fóru, og grunað hvað um væri að vera. Hún bar kíki fyrir augun, lítið kríli, sem kallað var leikhúskikir, en það var víst lítið gagn í honum, l)að átti bara að vera fínt. Annars var l>að hugsan- legt að Signa væri sjóndöpur, svo að hún gæti ekki séð kíkislaust, livort skipið væri galeiða eða skonn- orta. Hún eyðilagði vitanlega i sér augun á reyfaralestri, þegar hún liafði ekkert þarfara að gera. Hún um það. Ekki kom það Kar- en við. Hún sneri ósjálfrátt bakinu að skóginum, þó að hún liefði held- ur kosið að tala sáttarorð við Signu áður en mennirnir kæmu. En það var hart að standa upp og fara til hennar. Hitt væri eðlilegra að Signa kæmi nær, ef hana langaði til að tala við liana. Hún kom líka. Karen tók ekki eftir því, fyrr en hún sá hvernig drengirnir horfðu. Svo heyrði hún hratt fótatak rétt hjá sér. Henni hitnaði í kinnunum. Hvort yrði nú vinátta eða rifrildi úr þessu? Fóta- takið var svo gustmikið. En hún leit ekki við. Hreyfði sig ekki, fyrr en Signa var komin á hlið við hana og rétti henni kíkinn. „Líttu i hann,“ sagði hún skip- andi. „Þökk fyrir,“ sagði Karen. „Ann- ars hefi ég nú góða sjón.“ „Líttu á flaggið!" sagði hún. — Röddin titraði. Það var eitthvað i rödd Signu, sem vakti kvíða hjá Karen. Hún bar kíkinn fyrir augun og skrúfaði i flýti, svo að hann yrði mátulegur. Fyrst gat hún ekkert flagg séð. Það hlaut að vera bak við stór- seglið. En loks sá hún rautt flagg blakta. Það lá við að hún missti kíkinn. Flaggið var i hálfa stöng. Gústaf rétti út höndina eftir sjón- aukanum. Hann fékk hann and- mælalaust af kvennanna hálfu. Og þegar hann horfði á flaggið um stund spurði hann: „Hversvegna er flaggið ekki i toppi?“ „Það hefir máske komið hnútur á línuna," sagði móðir hans. „Eða að þeir eru að gefa merki.“ Karen horfði hvorki á drenginn né Signu. Hún liafði ekki augun af skipinu. Og liún fylltist með- aumkvun. Það væri mikið áfall fyr- ir Signu að missa manninn svona ung. En liún hefði átt að vera við þessu búin. Hún átti að vita hve mikill angurgapi Jörgen var stund- um. Engin furða þó að hann dytti fyrir borð og drukknaði. Konurnar höfðu enn ekki litið hvor á aðra. Þær þóttust báðar vera að horfa á skipið, þó að ekkert merkilegt væri að sjá með berum rugum. En hvorug þeirra hirti um kikinn. Hann var heldur ekki mik- ils virði, fannst Karen. Og þó að Jörgen lægi vafinn í segl á þilfar- inu mundi það ekki sjást fyrr en komið væri um borð. Börnin Iiöfðu hnappast saman kringum þær til þess að heyra hvað sagt væri. Svo beygði Signa sig og tók minnsta barnið upp. Nú fyrst kom Karen sér að því að lifa á hana og þá rauk meðaumkvunin út í ýeður og vind. Því að á and- liti Signu var engan liarm að sjá. En úr augnaráði hennar skein með- aumkvun: „Veslings börnin sem hafa misst föður sinn!“ Karen fannst eins og þrýst væri að kverkum sér. Það gat verið Pét- ur, sem var dáinn. En þá var það ekki lionum að kenna. Hann var alltaf svo skynsamur og gætinn. Það var ómögulegt að hann félli fyrir borð. Jörgen hlaut að hafa valdið dauða hans með einhverri vanrækslunni. Það gat hugsast að þeir hefðu verið að innbyrða stóran stein. Svo hefði talian slitnað. Og höfuðið á °étri orðið fyrir bjarginu, og hann hefði dáið samstundis. En þetta skyldi verða rannsakað. Hún var viss um að það væri Jörgen að kenna, hann hafði litið slælega eftir. Hatrið logaði í Karen. Hana lang- aði til að taka stein og kasta í Signu, ThEadnr flrnasan: Merkir TElmányi F. 1892. Það mun lengi verða talinn ein- hver mesti viðburður í tónlistarlífi Reykjavíkur, þegar fiðlusnillingur- inn Emil Telmányi kom hingað til lands í fyrra sinnið og hélt hér fimm hljómleika (?) svo að segja í lotu í Nýja Bíó, jafnan fyrir troð- futlu húsi áheyrenda. Nokkrir tón- listarunnendur bæjarins liöfðu gerst til þess, að tryggja listamanninum nokkra upphæð fyrir að koma hing- að en Páll tónskáld ísólfsson hafði gengist fyrir því að hvetja Telmányi til fararinnar. Undirleik annaðist Emil lieitinn Thoroddsen og leysti það hlutverk af liendi með miklum ágælum, ekki síst þegar þes.s er gætt að hann tókst þann vanda á hend- ur með litlum fyrirvara, — liljóp i skarðið fyrir annan mann, sem ættað hafði sð leysa það af liendi, en fékk Emil tii að taka það að sér á síðustu stundu. En Telinányi liafði orð á því, að síst hefði sér til hugar komið, að liér, úti á hala veraldar, myndi hann liitta svo á- gætan og öruggan ,akkopurpaquetör‘ og Emil. Og á öðru furðaði þessi snillingur sig lika, en það var það, hversu „góðir“ áheyrendur íslend- ingar væri. Hann flutti hér hvert stórverkið á fætur öðru, eins og hann væri að leika fyrir valda og þroskaðu áheyrendur í erlendri sem stóð þarna róleg með barnið og gerði sér upp samúð. Gotan hafði vaxið úti á firðinum. Seglin á skipinu þöndust út. Það kúventi. Konurnar einblíndu á skip- ið. Skipið var nú komið svo innar- lega að nú skyggði afturseglið ekki á manninn við stýrið. En þær gátu ekki þekkt hann. Og þær báðu ekki um kíkinn; Gúslaf hélt á honum ennþá. Allt í einu sagði hann: „Þeir koma ‘ekki hingað í leguna, þeir sveigja út og ætla að lialda áfram inn í kaupstaðinn." Karen glennti upp augun. Og' hún dró andann mjög djúpt, áður en hún kom upp orðunum: „Bjáninn þinn — þetta er alls ekki „Máfurinh“ — að þú skyldir ekki sjá það strax — skipið lians föður þíns er ekki svona breitt um kinnungana.“ Hún sagði þetta með hörkuhreim gremju og stolts til þess að leyna því hve henni létti. Signa sagði ekkert, en setti barn- ið í sandinn. Svo steig hún skref fram, hallaði liöfði að öxl Karenar og grét beisklega. Gústaf lagði af sér kíkinn og læddist burt, eins og hann hefði gert sig sekan í glæp. Hin börnin loru hljóðlega á eftir honum. Karen strauk hendinni mjúkt um höfuð Signu. „Svona, svona — liættu nú að g'ráta, Signa — strákbjáninn — liann hefði átt að bíða með að kalla þangað til hann hefði gáð bet- ur — gráttu ekki, Signa — við skul- um koma heim — heim til mín.“ músikborg. En hann sagðist iiafa fundið það, að hann hefði átt óskifta athygli áheyrenda sinna frá upp- hafi til enda hverra hljómleika. Þetta fundum við líka, sem þar vor- um staddir. Og okkur verður minnis- stæð hin yfirlætislausa framkoma þessa ágæta listamanns, hin djúp- liugsaða og göfuga túlkun hans á viðfangsefnum og hin glæsilega og fágaða teknik hans, — sem þó var lijá honum, eins og vera ber tijá sönnum listamanni, eins og sjálf- sagt aukaatriði, sem hann gerði ekki tilraun til að undirstrika á kostnað liinnar sönnu listar eða þess, sem liann vildi túlka áheyr- endum. Og ég býst við því, að ef til vilt liafi Telmányi skilið meira eftir í hjörtum og sálum áheyrenda sinna, en nokkur annar tónsnilling- ur, sem hingað hefir komið. Að vísu hafa hingað komið fiðlusnill- ingar, sem meira hafa borist á. hvað teknik snertir, en Telmányi. En þeir voru gleymdir um ieið og þeir voru liorfnir. Og einn snilling- ur hefir liingað komið, sem á sínum yngri árum var talinn í hópi hinna allra snjöllustu fiðlara, en það var Henri Marteau. En hann var orðinn gamall og þrotinn. Leikur hans var að vísu frábærlega göfugur, en á honum ellimörk. Það eru nú um tveir áratugir sðan Telmányi kom liingað í fyrra sinnið, og aftur kom liann hingað Frh. á bls. Í4. tónsnillingar

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.