Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1946, Blaðsíða 3

Fálkinn - 07.06.1946, Blaðsíða 3
FÁLKINN 3 Hörmulegur elds- voði á Ísaíirði 5 manns brenna inni Sá átakanlegi atburður skeði á ísafirði s.l. mánudagsmorgun, að 5 manns fórust, 50 misstu aleigu sína, og enn fleiri urðu húsnæðislausir, er stórhýsið Fell brann til ösku og 2 steinhús brunnu að innan. Eldsins varð vart laust eftir kl. 5 uni morg- uninn, og á skammri stun'du varð húsið Fell alelda. I því bjó fjöldi vaða utan frá. Hélt það, að til rysk- inga hafði komið, en þegar það leit út, sá það eld gjósa út um glugga i Felli. Var þá lilaupið af stað og brunalúðurinn þeyttur og hrátt voru allir ísfirðingar vaknaðir. Gatan er ekki nema 9—10 metra breið þarna, og sýnt þótti, að húsin á móti væru í hættu, og var því byrjað að á herbergi sinu. Við það fótbrotn- aði hann á báðum fótum. Hann var sá eini, sem þurfti að flytja á sjúkra- hús af þeim, seni meiddust. Þór- ólfur Egilsson, rafvirki, sem einnig bjó á annari hæð bjargaði sér á sama liátt og Jóhann, en meiddist ekki að ráði. A þriðju liæð bjó Kristján Kristjánsson, sjómaður, Fyrri myndin er tckin er eldsvoðinn stóð sem hæst. Siðari myndin ei tekin í Hafnarstrœti er Fell var orð ið alehla. (Ljósm.: Siy. J. Dalhmann) manns, bæði fjölskyldur og ein- hleypir. Einnig voru í liúsinu 3 verslanir. Um það bil, sem eldurinn kom upp, voru ísfirðingar margir hverjir að koma af sjómannaskemmt- un, og nokkrir ibúar Fells voru ný- komnir heim. Margir virðast liafa orðið eldsins varir á tímanum 5,15- 5,20, bæði vegfarendur og fólk úr næstu húsum, sem vaknaði við há- bjarga út úr þeim strax. Hús þessi voru nr. 4 og 0 við Hafnarstræti. En þar sem ekki leið nema hálftími frá því, að kviknaði í þeim hús- um, varð litlu einu bjargað. Um björgunarstarfið við Fell er þetta að segja: Jóhann M. Guðmundsson, vélstj., sem bjó á annari hæð, bjargaði sér með því að stökkva út um gluggann ásamt móður sinni á áttræðisaldri, Elisabetu Hermannsdóttur. Einnig bjó kona að nafni Sigríður í sömu íbúð og 8 ára gömul telpa, sem gisti hjá þeim þessa nótt. Kristján kastaði telpunni og móður sinni niður í teppi, sem nokkrir menn höfðu strengt á milli sin fyrir neðan lnisið. Sigríður kastaði sér því næst niður á teppið, en Kristján varð fyrst að klifra niður á aðra hæð og kasta sér síðan út, þar sem teppið sást ekki af þriðju hæð fyrii' reyk. Fjölskylda Kristjáns var ný- flutt í Fell og voru eigur hennar óvátryggðar. Annar heimilisfaðir, Sigurlaugur Sigurlaugsson, verka- maður, bjargaði konu sinni og 5 börnum út um glugga og niður á skúr, sem var áfastur við hiisið. Komust þau út á náttldæðunum ein- um saman, og þau lijónin eitthvað meidd. Innbú þeirra var óvátryggt. Þannig var það og mcð fjölda ann- ara, að þeir björguðust á siðustu stundu allslausir. Fólkið sem brann inni var allt á þriðju hæð hússins. Þa voru hjónin Sigurvin Veturliða- son, sjómaður, þritugur að aldri, og Guðrún Árnadóttir, 20 ára. Þau eiga tvö hörn á lífi. Annað er sex ára gamalt og dvelst i Aðalvik, en hit er þriggja ára, og höfðu þau hjón- in komið því fyrir hjá kunningja- fólki sínu um nóttina til þess að geta farið á sjómannaskemmtunina. Þau voru nýkomin heim er eldsins varð vart. — Systkinin Hermann Bjarnason, 18 ára, og Sigriður Iiorg- hildur Bjarnadóttir, 4 ára, brunnu einnig inni. Þau voru fósturbörn hjónanna Hermanns Jóhannssonar, sjómanns, og Aðalfríðar Friðriks- dóttur. Hjónin voru á skemmtun- inni eins og fjöldi ísfirðinga. Sú fimmta sem fórst í brunanum var Bjarney Sveinsdóttir, tæplega 10 ára gömul. Hún bjó ekki í liúsinu, en liafði verið fengin til þess að gæta Sigríðar um nóttina. Foreldrar lienn- ar eru Sveinn Jónsson, verkamaður og Eyjólfa Guðmundsdóttir. Eigandi Fells var Finbjörn Finnbjörnsson, sem liafði þar málningarvöruversl- un. Einnig var raftækjavinnustofa ' Framh. á bls. l't. Signrvin Veturliðason

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.