Fálkinn


Fálkinn - 07.06.1946, Blaðsíða 9

Fálkinn - 07.06.1946, Blaðsíða 9
FÁLKINN 9 krána og fá þar tár á flösku? spurði ég- — Drekka á verðinum? Ertu brjál- aður? hrópaSi hann. — Jæja, jæja, sagöi ég hugsandi. — Þá sleppum við l>ví. En svona haustnótt er þó bæði löng og köld. — Þeim sem á verði stendur er aldrei kalt ,sagði hann, og svo jórtr- aðist hann i burtu. Jafnskjótt og hann var úr augsýn, stungu þeir Hans og Jens byssun- ofan í bátinn lijá óþekkta sjómannin- um og Hans bjóst til ferðar eftir flöskunni. — Hvert ætlar þú? spurði ég og brá sverðinu. Stingdu þessum smjörspaða niður hjá þér, sagði liann, — auð- vitað að sækja vökustaurinn. Hann fór, og þegar hann kom aftur skiftum við nóttinni í þrjár vaktir þannig að tveir áttu frí með- an einn stóð vörð vopnaður sverð- inu. Eg tók fyrstu varðstöðuna, en hinir hnipruðu sig undir sandhól og breiddu seglræksni ofan á sig. Auðvitað hefði verið miklu þægi- legra að leggjast fyrir undir stór- seglinu i bátnum. En þeir höfðu einhvernveginn enga löngun til þess vegna liins ókunna, sem þar gisti. Nú var máninn kominn upp og skein á ströndina, hátinn og seglið, sem óþekkti sjómaðurinn hvíldi und ir. Eg gekk aftur og fram, fram og aftur með sverðið undir liandleggn- um, en hendurnar í buxnavösun- um. Eg athugaði sjóinn og skýja- farið til þess að gera mér grein fyrir því livaða vindátt mundi verða næsta dag. Og ég ieit á hátinn þar sem hann hvíldi undir seglinu. Eg hugleiddi andstreymið og fallvalt- leik lífsins, einkum fyrir sjómann- inn, sem aldrei veit hvar sigling- in kann að enda þegar hann legg- ur úr höfn. Og því meir sem ég hugleiddi þetta því erfiðari varð mér varðstaðan. Eg hugsaði með hjartans þakklæti til Hans, sem útvegað liafði flöskuna, því að nú gat ég þó alltaf fengið mér brjóst- birtingu úr henni. Eg geng' til Iians og tek flöskuna upp úr úlpuvasa hans. Eg fæ mér dálítinn dreitil og ætla að því búnu að stinga flöskunni aftur i vasann. Þá opnar liann augun og segir: Gerðu svo vel og slepptu allri feimni. — Eg hélt að þú svæfir, Hans, segi ég. — Þetta er köld nótt. — Hvernig fer uin þig? Illa, svaraði hann. — Og það er allt honuni að kenna þessum herjans óþekkta sjómanni. Því léstu liann ekki síga í djúpið aftur eins og ég vildi? — Guð minn góður, Hans. Við höfum þó mannlegar tilfinningar í brjósti. Já, og bara að eitthvert gagn væri þá að því fyrir okkur, svar- aði Hans. Svo reis liann á fætur og við horfðurii hvor á annan góða stund. Veistu um hvað ég var að hugsa meðan ég lá þarna? spyr hann. - Vera má að ég geti getið þess, svaraði ég. — En veistu livað ég var að hugleiða? Það skyldi þó aldrei hafa verið um slígvélin hans? spurði Hans. Svo stóð hann á fætur og fór að herja sér. Við gengum að bátnum og Hans lyfti seglinu svolítið ofan af fótun- um á hinum óþekkta. — Þetta eru ný og góð stígvél, segir hann. — Sjáðu þau í friði, segi ég. — Eg þori að sveija mér upp á það að engin sála hefir tekið eftir því hvort hann var í stígvélum eða ekki, segir Hans. Eg vék mér frá til að athuga hvort Jens svæfi. Þegar ég kom aftur að bátnum og leit á stígvélin, sem gljáðu vot í björtu tunglskininu, get ég ekki neitað því, að mér virtust þetta sannarlega verulega góð stíg- vél. — Nei, þetta gengur ekki, segi ég. Hann er þó maður þrátt fyrir allt og þó að hann sé dauður, þá á liann altlaf fötin sín. Ef við tök- um þau þá erum við að stela. — Er hann maður? hrópaði Hans. Nei, maður það er sá sem er lif- andi eins og ég og þú. Sá sem er dauður er ekkert, duft og aska, ryk og leir, eins og presturinn segir. Og sá sem ekkert er getur heldur ekkert átl. Eg stóð og liugleiddi þetta nokkra stund, en ég fann engan botn í því. — Sjáðu til, segir Hans. — Ef við tækjum úrið hans eða bréfin, ef hann þá hefir nokkur, þá væri slíkt þjófnaður, því að þá liluti eiga þefararnir, sem kom hér á morgun. En óþekkti sjómaðurinn er æfinlega grafinn i fötunum, sem hann er klæddur. Það veit ég. Og hvers- vegna ættuni við að láta ormana naga svona ný og góð stígyél? Það veit ég ekki! Eg brá hendinni bak við eyrað og spurði svo: — Hver ætti að fá stigvélin? Þú eða ég? Því að gagnlaust væri að skifta þeim. Hann leit á mig. Við getum varpað hlutkesti um þau. Hann laut niður og greip hnefa- fylli af smásteinum. Jafnt eða ójafnt? Nei, ég vil það ekki, sagði ég og lötraði burt frá honuni. - Þá vil ég, sagði hann. — Láttu mig liafa flöskuna, Hans. Eg tók vænan teig. Svo gengum við að bátnum og fórum að fást við liann. Hans fleygði seglinu til hliðar, en ég tók í annan fótinn. — Heldurðu að við náum þeim af? hvíslaði ég að Hansi. — Hvern fjandan hafið þið hér fyrir stafni? var spurt fyrir aftan okkur. Við stuklcum báðir til liliðar og sneru'm okkur við. Það var Jens, sem hafði vaknað og var sestur upp undir sandhólnum. Þetta dugar ekki! hvíslaði ég að Hansi. — Jens lekur eins og ný- smíðaður kláfur. Aldrei getur hann haldið sér saman tini nokkuru skapaðan hlut. — Við erum að skoða óþekkta sjómanninn, sagði ég við Jens. —- Er hann þá lifnaður aftur? spurði hann. Nei, ekki svo ég viti. Þá getum við haldið áfram að sofa, sagði hann og velti sér á hlið- ina. Eg leit á Hans, en nú var hann orðinn hræddur eins og' ég. Hann lötraði burtu og lagðist þegjandi við hliðina á Jensi. Þegar ég ætlaði að hreiða seglið aftur ofan á óþekkta sjómanninn skein máninn framan í hann alveg eins og sólin hafði gert i dag, og það var rétt eins og hann hann liorfði á mig og vildi segja: — Þjófur! Mér varð undarlega við. Aldrei fyrr hafði ég látið mér detta í hug að ræna nokkurn mann, og aldrei hefir mér dottið það í hug síðan. En þetta var nú líka alveg sérstakt með hann þennan. Þegar alls var g'ætt hafði hann enga þörf fyrir stígvélin sín lengur. En hvernig sem þetta var eða ekki var, þá laut ég nú yfir hann og sagði: — Fyrirgefðu félagi. Hafðu bara stígvélin þín í friði. Og góða nótt. — Ef þorskveiðin gengur sæmi- lega, Jiessa vertið, verða alltaf ein- hver ráð fyrir mig til þess að kaupa mér stígvél, svo að ég þarf ekki að stela þeim af dauðum stall- bróður. Og svo breiddi ég seglið aftur ofan á hann, og þá fannst mér, þó að ég' viti ekki hvort það var rétt, að hann lægi rólegri þarna þegar hann gat verið öruggur um eign sína. Já, allir viljum við líka helst búa að eignum okkar í friði. Þegar varðtími minn var liðirin, vakti ég Hans. — Hvað varð úr þessu með stíg- vélin? spurði hann. — Það sem Guð hefir sameinað eiga mennirnir ekki að sundurskilja, hvíslaði ég. Og ég held að þessi orð liafi liaft djúp áhrif á Hans, því að þessa nót hurfu engin stígvél. Þeg- ar morgnaði kom fólk niður á ströndina og þá var of seint að að- hafast nokkuð. Tollarinn kom nú, og við afhent- um byssurnar og sverðið, sem við höfðum heilsað svo tígullega með i glaða sólskini þegar hann kom. — Nokkuð gerst á verðinum i nótt? spurði hann. — Ekkert sem í frásögur er fær- andi, svöruðum við allir þrír. En við Hans litum livor á ann- an og stungum ,/tungubiroddinum út i kinnina, drógum augað í pung, en ég hnerraði og Hans sagði: — Guð hjálpi þér! Um hádegið kom vagn akandi ofan úr héraðinu. Þar kom amt- maðurinn. Hann hafði með sér skrifara og (vo aðra lierra. Auðséð var að þeir komu ekki fastandi, það er að segja amtmaðurinn og herrarnir, en ekki skrifarinn. Þeir komu niður á ströndina og amtmaðurinn benti á okkur og skýrði frá þvi að við værum fiski- menn. Annar herramaðurinn fór ofan í vestisvasann, og ég hélt að hann ætlaði að gefa okkur dal. En í stað þess dró hann þar eitthvað upp, sem líktist úrgleri og festi það fyrir annað augað á sér. Svo glápti hann á okkur góða stuud og skýrði svo hinum herranum, félaga sinum, frá l>ví a'ð við værum fiski- menn. Þvi næst byrjaði amtmaðurinn að yfirheyra okkur, og skýrði lierr- unum, sem sennilega liafa verið einhverjir tignir gestir hjá honurn honum, frá því, sem við sögðum. Eg ímyndaði mér lielst að þeir væru útlendingar vegna þess að alltaf þurfti að gefa þeim svona hjákát- legar skýringar á ölluin hlutum, en af þvi að þeir töluðu dönslcu dró ég þá ályktun að svo mundi ekki vera, en þeir mundu bara aldr- ei áður hafa séð fiskimenn eins og okkur. Eg þuldi alla romsuna um það hvar og hvernig við fundum likið. Að þvi loknu liófst rannsókn á hinum dauða. — Þetta kallar fólkið hér óþekkta sjómanninn, sagði amtmaðurinn til skýringar, og annar herramaðurinn skrifaði eithvað i vasabókina sína. Eg held að hann liljóti að hafa hafl lélegt minni. Við snerum öllum vösum hins dauða, en fundum þar ekkert nema skinnveski, sem var svo blautt og morkið að það drafnaði allt í sundur. Eg rétti amtmanninum, sem drcgið liafði glófa á hendur sínar, innihaldið, en skrifari lians skrá- setti allt sem í veskinu var. Þar var þýskur bankaseðill, sem amt- maðurinn virti á sjö danska dali. Þar var líka hluti af ensku bréfi, sem amtmaðurinn sagði að ekkert vit fyndist í, og auk þess nokkrir hollenskir koparpeningar. — Þetta var harla lítið, sagði amtmaðurinn, og þá hafði hann sannarlega rétl að mæla. Svo ræddi hann eitthvað við tollarann, líklega um jarðarförina, settist því næst í vagninn og ók af stað. Síðari hluta dagsins var óþekkti sjómaðurinn grafinn, spölkorn vest- an við þorpið. Nokkrir úr hópi okk- ar sjómannanna voru viðstaddir og horðu á þegar kapeláninn kastaði á liann moldarrekununi þremur. Við stóðum berhöfðaðir og drupum höfði í þögn. Og á meðan ég stóð þannig hugsaði ég um það að reyndar væri Framhald á bls. EF HÆGT ER AÐ ÞVO ÞAÐ - ÞÁ NOTIÐ RINSO Engin þörf á slriti við þvott- inn — engin þörf á skað- legn nuddi og klöppun, er slítur fatnaðinum svo fljótt. Rinso þvær þvottinn sjálft jafnvvl í köldu vatni. Það beinlinis þvælir úr honum ó- hreinindin og skilar hon- um hreinum, mjallhvitum og alveg óskemmdnm. Og Rinso er alveg jafn öruggt á mislitan þvott. Rinso X-R 712/1-786

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.