Fálkinn - 07.06.1946, Blaðsíða 14
14
FÁLKINN
Hér sést að húsin beggja megin gö'unnar eru orðin alelda (L.: Simson
ELDSVOÐINN Á ÍSAFIRÐI.
Framhald af bls. 3.
Júlíusar Helgasonar og Leósverslun
í húsinu auk ibúðanna. Hin húsin
sem brunnu voru eins o,g áður er
sagt Hafnarstræti 4 og 6. Eigendur
Hafnarstrætis (i vor uklæðskerameist
ararnir Kristján Tryggvason og Ein-
ar Guðmundsson. Gjöreyðilagðist
hvert herbergi í húsinu og fáu einu
var bjargað. í Hafnarstræti 4 bjó
Þórður Jóhannsson, úrsmiður, sem
var staddur í Reykjavík, er þetta
skeði. I liúsinu var verkstæði
Þórðar og sölubúð Böðvars Svein-
bjarnarsonar. Á efstu hæð í- húsinu
bjó Sóley Þorsteinsdóttir, ekkja, með
börnum sínum og móður sinni.
Missti hún nær allar eigur sínar.
Einnig skemmdist nokkuð hús Elías-
ar Kærnested, skósmíðameistara,
Jónasar Tómassonar bóksala og
Eiísar Pálssonar, kaupmanns.
Slökkviliðsmennirnir gengu rösk-
lega fram og meiddust sumir illa,
enda er slökkviliðið ekki vel búið
tækjum.
Bæjarstjórn ísafjarðar boðaði þeg-
ar til fundar og kaus 5 manna nefnd
með séra Sigurði Kristjánssyni sem
formanni. Nefndin á að annast fjár-
söfnun handa hinum bágstöddu. —
Bæjarstjórnin ákvað að leggja fram
20.000 'kr. í söfnunina, og vitað er,
að ekki aðeins ísfirðingar, heldur
og allir íslendingar munu bregða
við fljótt og vel eins og þeirra er
vani, l>egar slíkar hörmungar dynja
yfir einhverja samborgara eða jafn-
vel aðrar þjóðir.
Það ríkir mikil sorg í ísafjarð-
arkaupstað, og jafnvel lítil börn
una ekki við leik sinn. Hinir full-
orðnu drjúpa höfði og syrgja með
þögninni. Og við skiljum öll, hvc
átakanleg sjón það hlýtur að vera
fyrir áhorfendur að vita af frænd-
um og vinu-m inn í brennandi húsi,
fullvissir um að ógerningur er að
bjarga þeim.
í bæjarfélagi ísafjarðar hefir ver-
ið liöggvið skarð, sem lengi mun
standa „opið og ófullt“, eins og
Egill Skallagrímsson kvað eitt sinn,
er sorgin knúði á hjá honum.
STJÖRNUSPÁ.
Framh. af bls. 5.
sambandi við landbúnaðinn og flutn-
inga á afurðum.
ísland. — í heild er afstaðan nokkuð
sterk, því allar plánetur eru yfir
sijóndeildarlirirtg. Ulanríkísmálin
mjög á dagskrá, því nýja tunglið er
í 7. húsi og Merkúr er þar með-
verkandi og bendir á umræður mikl-
ar um þau atriði.
1. hús. — Mars ræður liúsi þessu.
— Framtaksvilji mikill meðal al-
mennings. Ófyrirséð atvik geta birst,
sem henda á óánægju og örðugleika.
2. hús. — Júpíter ræður húsi
þessu. — Er þetta góð afstaða með
tilliti til banka- og fjármálastarf-
semi og tekjur ríkissins munu auk-
ast, því afstöður til hans eru góðar.
Þó getur slæm afstaða til Satúrn
bent á tafir i viðskiftamálum.
3. hús. - Satúrn ræður Inisi
þessu. — Samgöngur eru undir töf-
um nokkrum og blaða- og bókaút-
gáfa og póstur og fréttaflutningur er
háð þeim áhrifum.
4. hús. — Júpíter ræður húsi
þessu. — Hefir hann góð áhrif á
landbúnaðinn og veðrátta ætti að
vera mild. Þó gætu tafir nokkrar
átt sér stað vegna áhrifa Satúrns
og orsakað örðugleika.
5. hús'. — Mars ræður húsi þessu.
— Örðugleika nokkurra verður varl
í sambandi við leikhús og skemmt-
anir og konur og börn geta orðið
fyrir aðköstum. Eldur gæti komið
upp í skóla eða í skemmtistað.
<>. hús. — Venus ræður húsi þessu.
Hagfeld afstaða fyrir verkamenn og
þjóna og vinnandi lýð almennt. —
Heilsufarið \ ætti að vera sæmilegt.
7. hús. — Venus ræður einnig
utanríkismálum. Ættu þau að vera
undir heppilegum áhrifum. Þó gæti
slæm afstaða frá Neptún hoðað örð-
ugleika nokkra, en þó er ekki víst
að þeirra verði verulega vart.
8. hús. — Úran er í húsi þessu.
— Bendir það á óvænf dauðsfölí,
sem eigi orsök sína í meiðslum,
sprengingum og rafmagni og óvenju-
legum dauðdögum.
9. luis. — Mars er í liúsi þessu.
Örðugleikar i utanlandssiglingum.
Ágreiningur gæti komið til greina
i kirkju- og trúmálum og lögfræði-
legum viðfangsefnum.
10. hús. Neptún er í húsi þessu.
Bendir á örðugleika fyrir stjórn-
ina og áróður mikinn gegn ráðandi
mönnum og þeir munu lækka i áliti.
Kommúnistaáróður mjög áberandi.
11. luis. Júpiter er í húsi þessu.
- Er þetta frcmur góð afstaða og
bendir á umræður um lýðræðisleg-
ar framfarir og framkvæmdir í fjár-
hagslegu tilliti.
12. hús'. — Engin pláneta var i
12. liúsi og munu áhrif þess því
lítt áberandi.
Ritað 29./5. 1946.
Einar Fr. Jóhannesson og kona lians frú Margrét Albertsdóttir, Laugar-
nesvegi 64, eiga gullbrúðkaup lö. júní n. k.
Skrúögangan ú AnstnrveUi. (Ljósm.: Vignir).
Sjómannaðagurinn
Sjómannadagurinn síðastliðinn
sunnudag var bjartur, lilýr og fag-
ur, eins og nær allir dagar hafa
verið sem liðnir eru af þessu sumri.
Eri óvenjulítið bar á sjómönnum
við útihátíðahöldin og minna en oft
ast áður. Þeir voru veriju frennir
margir við skyldustörf sín á sjónum.
Nær allir togarar voru úti og margir
á veiðum, en þá eru skipshafnirnar
fullskipaðar, fjöldi vélbáta var og
úti — og sjómennirnir hafa engin
önnur sjónarmið en skyldustörfin,
jafnvel þó að samtök þeirra séu
að halda hátíð í landi.
Sjómenn og uppgjafarsjómenn
mættu undir fánum sinum við
barnaskóla Miðbæjar á tilsettum
tíma og gengu undir þeim og fjölda
íslenskra fána á Austurvöll. Það
var fríður hópur, þó að hann væri
ekki eins stór og í fyrra. Af svölum
Alþingishússins flutti biskupinn
minningarræðu um drukknaða sjó-
menn á árinu, en síðan var þögn í
eina mínútu. A sama tíma var lagð-
ur blómsveigur á leiði óþekkta sjó-
mannsins í Fossvogskirkjugarði. -
Þá flutti Emil Jónsson siglingamála-
ráðherra ræðu, en síðan talaði full-
trúi útgerðarmanna, Halldór Þor-
steinsson. Leikin vóru lög á milli
ræðanna.
Um kvöldið voru skenimtanir og
samkvæmi í samkomuhúsum bæjar-
ins. Aðal samkvæmin fóru fram í
Hótel Borg og Sjálfstæðishúsinu. Að
Hótel Borg talaði Aki Jákobsson
atvinnumálaráðherra, en Sigurj. Öl-
afsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavikur flutti ávarp. Þá voru
og ýms önnur skemmtiatriði, söng-
ur og fleira. í Sjálfstæðishúsinu
flutti Bjarni Benediktsson borgar-
stjóri ræðu og ýms skemmtiatriði
fóru fram. Var mikill mannfjöldi í
þessum samkvæmum og fóru þau
öll hið besta fram. — í þessu sam-
bandi er rétt að geta þess, að það
kom fram í ræðu borgarstjóra, að
liinu fyrirhugaða dvalarheimili aldr-
aðra sjómanna er ætlaður staður i
Laugarnesi, en þann stað hafa sjó-
menn líka óskað að fá undir það.
Á laugardagskvöldið fóru fram
keppnir í nokkrum íþróttagrein-
um. Varð keppnin i kappróðrinum
almenn og tóku 16 skipshafnir þátt
í henni, þrátt fyrir það að sjó-
menn væru óvenjulega fámennir i
landi þennan dag. Skal þess getið
sem dæniis um álnigann, að skips-
menn af tveimur skipum, Geir og
Tryggva gamla, höfðu verið settar
í land á Austfjörðum, en skip þeirra
fóru þaðan til Englands. Skipshafn-
irnar koniu hingað með Ægi á
laugardag og höfðu því ekki sest
í kappróðrarbátana fyr en til keppn-
innar kom. Sýnir þetta viljann og
kappið. Sigurvegarar i kappróðrin-
um urðu skipsverjar á Skutli og
Fiskakletti. í stakkasundi voru
aðeins ljórir þátltakendur og í
hjörgunarsundinu aðeins þrír. Er
þetta allt of lítil þátttaka. í reip-
togi kepptu aðeins tvær skipshafnir:
Júni og Esja og vann Júni eftir