Fálkinn - 06.09.1946, Síða 11
FÁLKINN
XI
Hófleysi tískunnar. — Ættum við ttð
fteygja fermingarúninum okkar og
genga þá braut, sem þessi ungfrú
visar? Eða eru þetki einhverjir
skammvinnir kvennaduttlungar, sem
duglegur úrsmiður hefir skemmt sér
við að fullnægjá.
Er það satt?
1. Að hætti manni við að fá liúð-
orma, sé betra að hreinsa húðina
með kremi en með vatni og sápu?
2. Að hárin á fótleggjunum verði
grófari séu þau rökuð af?
3. Að best sé að snyrta sig á kvöld-
samkvæmi í rafmagnsljósi?
4. Að liressandi baðvatn geti dreg-
ið svitaholurnar saman?
5. Að örvhentir bursti tennurnar
fastar hægramegin í munninum og
því verði þær sterkari en vinstra
megin ?
(i. Að betra sé að reyta augnabrún-
irnar heldur en að raka þær?
7. Að forðast beri mjólk og kart-
öflur vilji maður grennast?
8. Að neyta þurfti grænmetis með
liverri máltíð til ])ess að forðast
bætiefnaskort?
9. Að strónusafií grenni mann?
10. Að fallegur limaburður valdi
mestu um hvort fötin fara vel?
11. Að neglurnar vaxi meira ef
bbrin er olía í naglrótina?
12. Að skvetta skuli ilmvatni á
liálsinn en ekki kjólinn?
13. Að reyna skuli varalit með
])ví að strjúka honiun um neðan-
verðan úlnliðinn?
14. Að maður geti ekki losnað við
flösu án þess að hreinsa greiðu,
hárkamb og hárnálar um leið og
hárið?
15. Að það sé gott fyrir hárið að
bursta það 100 sinnum á dag?
16. Að augnvatn sé sjálfsagður
hlutur á snyrtiborðinu?
17. Að augnaliárin vaxi sé laxer-
olía borin á þau?
Ný stjarna? — Nú eru kvikmynda-
félögin í Hollywood aftur byrjuð að
senda sérfræðinga sina um alla Ev-
rópu i ,,sjörn;deit“. Einn þeirra
kom með þessa ungu austurrísku
stúlku, sem heitir Ilka Windisch.
Nú fær hún tækifæri lil að spreyta
sig í Hollywood oy eftir útlitinu
að dæmu þá ætti allt að lcika í lyndi
fyrir henni.
Svör.
1. Nei. Sé manni liætt við húð-
ormum, er húðin l'eit og er því
betra að þvo hana úr vatni og sápu.
2. Nei. Rakstur hefir sömu verk-
anir og önnur liárlosmeðul.
3. Já. Á sama hátt skal dagsnyrt-
ing fara fram í dagsbirtu.
4. Nei. Baðvatn verkar aðéins
skamma stund.
5. Já. Gæt þess að bursta eins vel
vinstra megin.
6. Já, Hárin vaxa ekki eins fljótt
aftur séu þau reitt.
7. Nei. Hvorttveggja eru þýðing-
armikil matvæli jafnvel fyrir þá
sem eru að megra sig.
8. Nei. Venjulegt fæði hefir mestan
hluta ársins inni að halda öll nauð-
synleg bætiefni. En af B2 bætiefni
fær maður stundum of litið, en það
er mjög áríðandi fyrir húðina, aug-
un og hárið.
9. Nei. Ef ekki er drukkið svo
mikið af honum að jafnist heilli
máltíð.
10. Já. Fallegur limaburður er
mest verður vilji maður vera ásjá-
legur.
11. Nei. Almenn vellíðan hefir góð
áhrif á naglvöxtinn.
12. Já. Sletti amður ihnvatni á
fötin geta þau fengið bjetti og jafn-
vel vonda lykt.
13. Já. Húðin á úlnliðnum hefir
næstum sama lit og andlitið.
14. Já. Flasa er smitandi og alll
sem snertir liá íð og hendurnar
verður að vera hreint, ef lækning
á að brennast,
15. Já. Það gengur fljótt liafi mað-
ur sinn burstann í hvorri hönd.
10. Nei. Nota augnvatn ef yður
finnst það fallegt cn besta fegrunar-
meðal fyrir augun er nógur svefn,
reglusemi og hreint loft.
17. Það hefir ekki gefið mikinn
árangur ef til vill vegna þess að
þvi hefði ekki verið haldið nógu
lengi áfram í senn.
I\ 11
MiÆ
Konur í japanska þinginu. —
Nú, þegar lýðræðissnið er kom-
ið á stjórnarfárið í Japan, liafa
konur fengið rétt til að sitja
á þingi. Hér eru fyrstu konurn
ar, setn kosnar hafa verið á
þing þar, að ganga til sæta
sinna í þingsalnum. Nöfnin eru
skráð á litlar, svartar súlur. —
Merkir tónsnillingar:
Framhald af bls. 6.
liann að stjórna hljómsveitum nokkr-
um sinnum í senn, þar sem leikn-
ar voru óperur hans eða óperettur.
En þetta voru aðeins eins og örstutt-
ar uppstyttur á milli ömurlegra
hrokviðrisskúra. Örbirgðin alltaf á
næsta leiti, þó að þessi veslings fjöl-
skylda hefði öðru hvoru í sig og
þá fáeinar vikur í senn. Loks fékk
hann þó fasta stöðu sem liljóm-
sveitarstjóri við lítið leikhús i Ber-
lin. En ])ar var við lítið að fást
sem við lians hæfi væri. Enda var
hann þá líka alveg þrotinn að kröft-
um. Lést hann, saddur lífdaga, hinn
21. janúar 1851, daginn eftir að hin
síðasta ópera lians „Die vornelimen
Dilettanten var sýnd i fyrsta skipti
í Frankfurt við mikinn fögnuð á-
heyrenda.
Almenningur sá um seinan, hví-
líkt tómlæti Lortzing hafði verið
sýnt. En nú var hafist handa og
honum veitt hin virðulegasta útför,
að viðstöddu miklu fjölmenni, og
stofnað var til samskota handa ekkju
hans og börnum, sem svo vel tókst,
að þeim var tryggð áhyggjulaus fram
tíð.
Óperur hans eru enn sýndar (eða
voru þangað til styrjöldin hófst) á
öllum leikhúsum Þýskalands, sem
gamánóperur sýna, og surnar þeirra
eru sýndar á ári hverju víðsvegar
um lieim, og þó einkum „Czar und
Zimmermann", „Der Waffensclimied
„Wildschutz“ og „Undine“ og eiga
eflaust enn eftir að veita mönnum
glaðar stundir.