Fálkinn - 29.11.1946, Page 7
FÁLKINN
7
Broddarnir í broddi fylkingar. — Ekki alls fyrir löngu skoraði
Walter Kolb, nýi borgarstjórinn í Frankfurt, á íbúa borg-
arinnar að gerast sjóilfboðaliðar í hreinsunarstarfinu í borg-
inni. Borgarstjórnin með borgarstjórann í fararbroddi tók
sig til og fór að hreinsa til í rústum Römerberg, hins gamla
merkis Frankfurt-borgar. Ætlunin er að 1000 borgarbúar leggi
fram vinnu sína um skeið til þessarar „lieiðursvinnu". Að
launum fá menn heiðursbréf frá Frankfurt-borg. — Mynd-
in sýnir Kolb borgarstjóra til hægri og Wilhelm Knothe,
formann þýska Sócialdemókrata-flokksins, í miðjhnni, við
vinnu sína.
Ný vegagerðarvél. — Hér sést ný
afkastamikil vél í vegagerð. Hún
fullgerir eins kílómeters veg á dag.
Samgöngumálaráðherra Bretlands
sést hér við stýrið á þessari nýju vé.l
„Helikopter“ bjargar mannslífi. —
Það hefir komið í Ijós, að „heli-
kopter“-flugvétar eru mjög hentugar
til björgunarstarfsemi, einkum á sjó.
Á myndinnt sést amerisk „heli-
kopter“—vél, sem liefir bjargað
skipsbrotsmanni af fleka, láta hann
síga niður í vélbát frá strandgæslu
liðinu.
Feðgar á ferð. — Emir Feisal, krón-
prins Saudi-Arabíu, sem setið hefir
Paleslinuráðstefnuna i London, tók
ungan son sinn með sér, til þess
að hann fengi að sjá sig um í heim-
inum. Ilér sjást þeir dást að stór-
merkjum Lundúnaborgar.
Kúrekalistir. — Það er ekkert auð-
hlaupaverk að ná villtum hestum,
lcggja á þ.á og fara á bak. En þetta
regnist kúrekunum ekki svo erfitt.
Þcir geta náð flestum hestum, hversu
villtir sem þeir eru, ef þeir aðeins
hafa kastreipi (lasso). Hér á mgnd-
inni sést kúreki sem hefir kastað
reipinu um annan framfót hestsins
og býr sig undir að sttjast á bak.
Markaður. — í eggptska bænum
Tanta, sem liggur í óshólmum Nitar,
eru á hverju ári haldnir stórir
markaðir í sambandi við hátíðir
Múhameðstrúarmanna í landinu. —
Ilér sjást börn Múhameðstrúarmanna
flgkkjast um manninn með töfra-
kassann.
Afríkulist. — Blámennirnir hafa
löngum verið hugfangnir af vélum
lwítra manna, og þessvegna er eðli-
legt að hugmgndaflug þ.eirra snúisl
oft um þessar vélar. Mgndir sýnir
afríkanska höggmgnd af konu við
saumavélina — einkennilegt sam-
bland Afríkuslíls og Evróputækni.
Endurreisn Póllands. — Viðreisnar-
starfið i Póllandi gengur hægt, því
að bæði er af miklu að taka og
slcortur er lika á vélum og hráefn-
úm. Fjöldi verkamanna verður því
að ganga að vinnu sinni með fá og
úrelt verkfæri. — Á mgndiiuii sésl
verkamaður vera að höggva til steina
í gatnagerð. Hann hefir 10 stunda
vinnudag, og klæðnaður hans ber
þess vott, að ríkið getur ekki borgað
há laun. \
Fíll í fótsnyrtingu. — Fílar eru
þrifin dýr, og þeir komast í vont
skap, ség þeir ekki vel hirtir í
sirkusunum. — Hér sést sirkusfíll
fá fótsngrtingu fgrir sýningu. —