Fálkinn - 29.11.1946, Síða 11
FÁLKINN
11
Guðrún Ósvífursdóttir
Ein þeirra lcvenna, sem sérhver
íslendingur, sem kominn er til vits
og ára, kannast við að sögusögn,
er Guðrún Ósvífursdóttir. Saga
hennar er svo kunn, og nafn lienn-
ar svo fast í meðvitund allra, að
það ljómar ef til vill skœrast meðal
íslenskra kvenna fyrr og síðar.
Saga Guðrúnar byrjar á þvi, aS
frænda liennar, Gest Oddleifsson í
Haga, ber að garði, meðan hún
dvelur i föðurhúsum. Þar eð hún
vissi, að Gestur var allra manna
vitrastur, þá biður hún liann að
ráða fyrir sig draum er hana hafi
dreymt. Gestur gerir það, og segir
hana munu giftast fjórum sinnum.
Sá fyrsti verði lienni ósamboðinn,
og hún slíti þeim samvistum. Ann-
ar verði henni góður maki, en hans
njóti ekki lengi við. Sá þriðji verði
veginn, en sá fjórði verði mikill
höfðingi, sem bera muni ægishjálm
yfir sveitunga sína.
Siðan fjallar Laxdæla saga um
þaS, er draumaráðning Gests ræt-
ist, og ber hún því með sér for-
lagatrú og draumatrú, eins og svo
margar íslendingasögur.
Guðrún giflist fyrst Þ'orvaldi Hall-
dórssyni frá Garpsdal í Gilsfirði,
en skildi við hann eftir stutta sam-
búð. Annar maður liennar var Þórð-
ur Ingunnarson, sem var veginn
eftir góða sambúð við Guðrúnu. —
Síðan hefst örlagaríkasti þátturinn
' í lífi liennar. Hún kemst í kynni
við Kjartan Ólafsson í Hjarðarholti
son Ólafs pá, og þau trúlofast. -—
Kjartan fer til Noregs og biður Guð-
rúnu að bíða 3 ár eftir sér. Bolli
Þorleiksson, fóstbróðir Kjártans, fer
með honum, en kemur aftur til ís-
lands á undan Kjartani. Segir hann
Guðrúnu, að Kjartan geri sér dælt
við Ingibjörgu konungsdóttur og
muni ekki hugsa til íslandsferð-
ar í bráð. Guðrún reiddist við þessi
tiðindi, en lét sér þó hvergi bregða.
Ilún giftist Bolla, en skömmu sið-
ar kemur Kjartan upp til að leita
gjaforðs síns. Þegar hann fréttir
hvernig málum er komið, giftist
hann annari konu, sem reyndist
honum mjög vel, en fáleikar miklir
voru milli Guðrúnar og hans, því
að þau sáu mjög mikið hvort eft-
ir öðru. Síðan eggjar Guðrún Bolla
til að vega Kjartan með lijálp
bræðra sinna. Út af þvi spiúnast
svo langvinnar deilur og víg, sem
Laxdæla saga getur mjög ítarlega
Um. Bolli fór sömu leið og Kjartan,
og Guðrún lét sér ekki bregða, þótt
hún væri nærstödd, er hann var
veginn. Eftir þetta dreif margt á
dag'a Guðrúnar. Hún lét gera kirkju
að Helgafelli og giftist höfðingjan-
um Þorkatli Eyjólfssyni. Síðan eru
Helgafell og Guðrún Ósvífursdóttir
svo óaðskiljanleg nöfn, að menn
minnast beggja, ef þeim dettur ann-
að i hug. Líf sitt endaði hún sem
einsetukona og létst að Helgafelli,
þar sem hún hvílir nú.
ÆVi GuÖrúnar var stórbrotin, en
skaplyndi hennar enn stórbrotn-
ara. Hún tekur tíðindunum um víg
Kjartans eins og þau komi henni
ekki mikið við, þó að hún undir
niðri elslci hann. Hún hafði meira
að segja livatl til vígsins, því að
hún hafði ekki getað unnað neinni
konu að njóta Kjartans. Ást, af-
brýði, öfund, hatur og hefnigirnd
eru tilfinningar , sem bærast í
brjósti hennar, en luin dylur þær
sumpart hið ytra með festulegri
framkomu sinni. Hún missir aldrei
stjórn á sér, lieldur kemur alltaf
fram sem hin tignarlega kona, sem
er fædd til að stjórna — en hún
prýðir sig með allskonar djásnum
og virðist hafa talsverða liégóma-
girnd undir niðri, en slikt er ein-
mitt mjög ríkt í kveneðlinu. Og síð-
ast i sögu Guðrúnar er þess getið,
að hún hafi svarað þvi til, er hún
var spurð, hverjum af mönnum sín-
um liún liafi unnað mest: „Þeim var
ég verst, er ég unni mest.“ Þarna á
hún við Kjartan, sem hún giftist þó
aldrei, og sýnir þetta ljóslega, að
hún hefir ávallt borið ástarhug til
hans, cn vegna þess, hve skammt er
á milli ástar og haturs hjá stór-
brotnum sálum, þá hvatti lnin til
vigs hans.
En þó að okkur finnist ævistarf
Guðrúnar blandið misgjörðum, þeg-
ar við lesum Laxdælu, þá hverfur
það allt fyrir þeirri persónu, sem
hún hefir að bera, og eflir leslur
bókarinnar situr þetta eftir hjá okk-
ur: Guðrún hefir verið kvenskör-
ungUr, sem livorki meðlæti né Tnót-
læti hafa bitið á.
Gólfteppi
Teppi eru dýr séu þau góð og þau
fást varla. Þessvegna er ráðlegast að
gera strax við bilanir áður en göt-
in verða svo stór að það verður
ekki hægt. Það er ekki mjög vanda-
samt og engin frágangssök að gera
það sjálf. Áhöld þarf engin, aðeins
nál og garn og stundum jave eða
taubút til að leggja undir áður en
stoppað er. Einkum ætti maður að
gæta þess að nota ekki rifna og
trosnaða stigarenninga því þeir geta
valdið slysum.
Sé brúnin trosnuð er best að
leggja kantbönd á teppiö þannig:
Þræð kantbandið undir brúnina svo
að það liggi jafnt henni og sauma
kappmellusaum fyrst 1 cm. langt
spor inn af brúninni svo tvö spor
% cm. og svo aftur 1 cm. spor o.
s. frv. með allri brúninni. Þá er
innri brúnin saumuð niður á röng-
unni og mega þau spor ekki sjást
að utan. Þurfi að stoppa, er best
að legg'ja teppið á milli tveggja stóla
og draga garnið sem þarf að hafa
sem líkastan lit, í gegn um bót sem
þrædd hefir verið undir, og láta
það koma í lykkjum eða linútum,
eftir því sem gerð teppisins er, og
festa vel bandiö svo ekki dragist
til. Gott er að færa teppin til á
gólfinu svo að þau slitni sem jafnast.
*****
Börnin lesa blóm i sumarblíðimni
COLA VWKKUR
íslendingasögur
Alþýduútgáfa
Sigurðar Rristjánssonar
Kr.
I. - 2. íslendingab. ok Landnáma 18.00
3. Harðar saga ok Hólmverja 6.25
4. Egils saga Skallagrímssonar 15.00
5. Hsensa-Þóris saga .......... 1.00
6. Kormáks saga ............... 4.00
7. Vatnsdæla saga ............. 4.00
8. Hrafnkels saga freysgoða 2.75
9. Gunnlaugs saga ormstungu 4.00
10. Njáls saga ...*........... 20.00
II. Laxdæla saga............ 14.75
12. Eyrbyggja saga ............ 8.00
13. Fljótsdæla saga ok
Droplaugarsona saga .... 7.00
14. Ljósvetninga saga ......... 5.25
15. Hávarðar saga ísfirðings .. 3.75
16. Reykdæla saga .......... 3.00
17. Þorskfirðinga saga ........ 1.50
18. Finnboga saga ............. 2.65
19. Víga-GIúms saga .......... 2.65
20. Svarfdæla saga ............ 2.70
21. Valla-Ljóts saga........... 1.20
22. Vápnfirðinga saga ......... 1.20
23. Flóamanna saga ............ 1.85
24. Bjarnar saga Hítdælakappa 3.00
25. Gisla saga Súrssonar .... 11.00
26. Fóstbræðra saga ........... 4.15
27. Víga-Styrs saga ok Heiðarv. 3.00
28. Grettis saga ............. 14.75
29. Þórðar saga hreðu ......... 2.25
30. Bandamanna saga ........ 4.80
31. Hallfreðar saga ........... 2.10
32. Þorsteins saga hvíta.... 1.30
33. Þorsteins saga Síðuliallss. 1.15
34. Eiríks saga rauða ok
Grænléndingaþáttr .......... 1.15
35. Þorfinns saga Karlsefnis.. 1.15
36. Kjalnesinga saga .......... 1.50
37. Bárðar saga Snæfellsáss .. 1.50
38. Víglundar saga ....'....... 1.50
íslendinga þættir 42 .......... 20.00
íslendingasögur samtals . .kr. 204.80
Ennfremur:
Sæmundar edda .... kr. 15.50
Snorra edda ........ — 18.00 33.50
Sturlunga saga I. kr. 16.00
Sturlunga saga II. — 18.00
Sturlunga saga III. — 16.00
Sturlunga saga IV. — 23.00 73.00
íslendinga sögur, Sæmundar
og Snorra edda, Sturlunga
saga I.- IV. samtals krónur . . 311.30
Bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar
Bankastr. 3 - Sími 3635 - P.O.Box 502