Fálkinn - 28.02.1947, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
t
George C. Marshall. — Það vakti ó-
hemju fögnuð viða um heim, að
Marshall, hinn frægi hershöfðingi,
skyldi verða eftirmaður James Byrn-
ees i embætti utanríkisráðherra U.
S. A. Hann þykir ákaflega sam-
vinnuþfjður maður og velviljaður.
Rúmenar taka ekki móðurhöndum á víxlurum svarta mark-
aýsins. Þeir eru settir í nauðungarvinnu, þar sem mikið ber
á þeim, svo að aðrir geti hent gaman að þeim. Efri myndin
sýnir nokkra sökudólga svarta markaðsins ganga eftir gölu
i Búkarest undir eftirliti lögreglunnar. Þer einu látnir bera
spjöld, sem segja hvers konar menn þeir séu og hafi nú
verið sendir til snjómoksturs. Neðri mgndin er af sökudólg-
unum, þar sem þeir eru látnir sligast undir þýfi sjálfra þeirra.
Parísarbúar hafa ekki síður gaman af snjókasti en við íslend-
ingar, og þeir hafa líka notað sér snjcana í vetur. Hér sjást
nokkrir vegfarendur á Place de l’Opera bregða á leik með snjó.
Attlee-hjónin halda silfurbrúðkaup.
Fyrir nokkru áttu Attlee, forsætfs- ^
ráðherra Breta, og kona hans silfur-
brúðkaup. Þeim barst fjöldi gjafa,
og m. a. teaskja úr silfri frá starfs-
fólkinu í Doivningstreet 10.
Meinlaus hópganga.. — A þessum
tímum, þegar. næstum allar hóp-
göngur eru æsinga- eða kröfugöng-
ur, þá er það ánægjuleg tilbreytni
að sjá meinlausa hópgöngu. Myndin
er af ítölskum stúdentum við há-
skólann í Rcm, þar sem þeir fagna
nýju ári með hópgöngu um borgina
í margskonar og marglitum fötum
og með „rús$a“ í hlekkjum í farar-
broddi. Það er venja stúdenta í
Róm að taka þannig móti hinum
nýbökuðu.
>