Fálkinn


Fálkinn - 08.01.1948, Blaðsíða 4

Fálkinn - 08.01.1948, Blaðsíða 4
4 FÁLKINN Blaðamannafélag íslands fimmtíu ára Það eru í rauninni engin stór- tíðindi þó að eitl af smæstu fé- lögum landsins verði fimmtugt, ekki síst þegar þess er gætt, að það liefií- stundum sofið svefni hinna réttlátu árum sam- an, og eigi verið athafnamikið þó að það væri að nafninu til vak- andi. En eigi að síður eru það meðlimirnir í þessu félagi, sem undanfarna áralugi hafa hafl veg og vanda af því að miðla fréttum, útlendum og innlend- um til allra læsra Islendinga, rökræða landsins gagn og nauð- synjar, ríí'ast um landsmál, bæjarmál og öll hugsanleg mál og veiða sálir lesendanna og lokka þær til fylgis við ákveðna skoðun. Um aldamótin síðustu voru engin dagblöð lil á íslandi en landsmálablöðin komu út einu sinni á viku að jafnaði, en fóru síðar að fjölga útkomu- dögum þannig að um 80 blöð komu á ári. Þá voru Isafold og Þjóðólfur stórveldin i landinu og Valtýskan og Heimastjórnin aðalstefnurnar. Þorsteinn Gísla- son hafði gefið út Island i nokkur ár, Jón Ölafsson Nýju Öldina og Fiallkonan var orð- in víðlesið blað, undir stjórn Valdimars Ásmundssonar. Og svo gaf Bríet Bjarnhéðinsdóttir út Kvennablaðið. Þá voru engir „blaðamenn" til heldur aðeins ritstjórar. Blöð- in voru ekki stærri en það að einn maður komst hæglega yf- ir að gefa þau út, enda fluttu þau jafnan mikið af aðsendu efni, fréttabréfum úr sveitun- um og enda frá útlöndum. Það var þriðjudaginn 't. janú- ar 1807, sem eftirtaldir ritstjór- ar komu saman á fund í litlu stofunni í norðvesturhorni Iðn- Bríet Bjarnhéðinsdóttir. aðarmannahússins til að stofna „Hið íslenska blaðamannafé- lag“: Björn Jónsson, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Jón Ólafs- son, Valdimar Ásmundsson og Þorsteinn Gislason. Hafa þau undirritað lögin öll nema Þor- steinn. En hinsvegar hafa fleiri undirritað lögin síðar, og sést á þeim nöfnum, að eigi hefir það verið bannað þá, að menn sem eigi höfðu blaðmennsku að aðalatvinnu, gerðust félagar, því að þar eru nöfn G. Björnson þá- verandi héraðslæknis og Sig- fúsar Einarssonar, en þessir menn voru báðir í útgáfustjórn blaða. Einnig bættust við blaða- mennirnir Einar Hjörleifsson (Kvaran),, Jón Jacobson síðar landsbókavörður, Guðmundur Finnbogason, Ari Jónsson (Arn- alds), Einar Gunnarsson og Jón Ilelgason (síðar biskup, ritstjóri „Verði ljós!“) Eru þá taldir allir þeir, sem að þvi er séð verður af fundarbókum liafa verið meðlimir Blaðamannafé- lagsins á hinu fyrsla tilveru- skeiði þess. Á framhaldsstofn- fundinum, sem haldinn var heima hjá Birni Jónssyni var Jón Ólafsson kosinn fyrsti for- maður félagsins. Fundargerðir félagsins hinar fyrstu eru hin merkileguslu plögg, og sýna, að félagið lief- ir ætlað sér að ráðast í stórræði. Fyrsta málið, sem félagið tek- ur til meðferðar er að koma á kjördómi í meiðyrðamálum, og það var Jón Ólafsson sem álli uptökin að þessu. Var lögð mikil vinna í þetta mál og nefnd utanfélagsmanna skipuð til þess að semja reglugerð um þennan kjördóm. I nefndinni voru: Jón Jensson yfirdómari, Guðmund- ur Magnússon læknir, Sighvatur Bjarnason þáv. bankastjóri, Björn Ólafsson augnlæknir, Sig- urður Briem póstmeistari, Ilann es Thorsteinsen málaflutnings- maður og Morlen Hansen skóla- stjóri. Þessi nefnd samdi mikinn lagabálk, sem siðar var þaul- ræddur og samþykktur breyt- ingalítið af Blaðamannafélag- inu. Aðalinntak hans var það, að í stað þess að slcjóta meið- yrðamálum til dómstólanna skyldi einkadómstóll gera út um deiluna með sætlum eða sektum. En það fór um framlcvæmd þessa máls líkt og framkvæmd laga á þjóðveldistimanum. Sá sem sekur var fundinn þurfti ekki einu sinni að gerast sekur skógarmaður. Hann þurfti ekki annað en að segja sig úr félag- inu og var þá laus allra rnála. Á þann liátt varð þetta nytsam- lega fyrirtæki banabiti félags- ins eftir nokkur ár. Fyrsti mað- urinn sem fékk dóm eftir þess- um lögum var Þorsteinn Gísla- son. Hann sagði sig úr félag- inu undir eins og dómurinn var fallinn. Fundir félagsins voru oftast haldnir heima lijá Birni Jóns- syni. Eins ber að geta um fé- lagið ó þessum árum: Það bafði sektir fyrir að mæta of seinl eða mæta ekki á fundum. Þær voru lágar, en þó komust sum- ir félagsmenn upp í tvær krón- ur vfir árið. Blaðamannaréttritunin. Annað aðahnálið á þessu tímabili hafði varanlegri áhrif en kjördómurlnn. Stafsetning hafði verið mjög á reiki um þær mundir, sem l'élagið var stofnað og söng þar hver með sínu nefi. Blaðamennirnir um aldamótin voru sumir afbragðs íslenskumenn og' ber þar eink- um að nefna Björn Jónsson, Jón Ólafsson og Valdimar Ásmunds- son, sem allir voru einkar mál- fróðir og skrifuðu kjarnmikið nlál svo af bar, einkum Björn. Nú sömdu þessir menn stafsetn- ingarreglur þær, sem síðar hlutu nafnið blaðamannaréttritunin, og hefir hún haft varanleg á- hrif á stafsetningu þjóðarinnar fram á þennan dag, þó að nokkrar breytingar hafi verið gerðar á henni í stafsetningu þeirri, sem nú er lögboðin. Eigi veit ég hvenær félagið hætti að halda fundi, en víst er að það var sofnað nokkru fyrir fyrri heimsstyrjöldina og bærði ekki á sér nokkur ár. En eftir styrjöldina hófst starfsemi þess á ný, aðallega fyrir atbeina Ól- afs Friðrikssonar, og var félag- ið nú nokkurnveginn vakandi fram á árið 1930. . Þorsteinn Jón Ólafsson. Björn Jónsson.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.