Fálkinn - 30.07.1948, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Tuttngn og tveir íslendingar taka þátt í Ólppíuleiknnum
Ölympíufararnir koma lil London. Björn Björnsson og dóttir, Stefán Þorvarðarson séndiherra
Ben. G. Waage, Ölafur Sveinsson og Erlingur Pálsson sjást lerigst til hægri.
Ólympiulcikarnir í London C‘ru
nú að hefjast, og mannkynið bíður
óþreyjufullt úrsiitanna. Grikkir
kveikja Ólympiueldinn á ginnheig-
uni stað og l'yllast íþróttaáhuga,
þótt borgarastyrjöhl geysi í landinu.
Bretar og Bandaríkjanienn eru í
Ólympiuönnum, þótt Berlínardeilau
raski svefnfrið Bevins og Trumans.
íslensku blöðin birta daglega íþrótta
g'reinar og Ólympíu-spádóma, þótt
sildin sé þetta hvað styggust. Söm
er sagan um allan heim. Aliir hugsa
og tala um Ólympíuleikana í svefni
sem vöku. Rússar einir eru iðnir
við kolann. Þeir dorga aðeins á
stjórninálasyiðinu, en láta sér litlu
skipta, þótt spjáírungar nokkrir hói
sér saman til leika i London! Ósam-
kpmulagið i heiminum er svo mikið,
að stórveldin gete ekki mæst öll í
einu í drengilegri íþróttakeppni.
íslensku keppendurnir á Ólympíu-
leikúnum verða 22. Þeir eru:
Anna Ólafsdóttir, 15 ára, 100 og
200 m. bringusund.
Kolbrún Olafsdóttir, 15 ára, 100
m. baksund.
Þórdís Árnadóttir, 14 ára, 200 m.
bringusund.
Ari Guðmundsson, 20 ára, 100 og
400 ni. frjáls aðferð.
Atli Steinarsson, 1!) árá, 200 m.
bringusund.
Guðmundur Ingólfsson, 19 ára, 100
ni. baksund.
Sigurður Jónsson (K.R.), 25 ára,
200 m. bringusund.
Sigurður Jónson (H.S.Þ.), 23 ára,
200 m. bringusund.
Ásmundur Bjarnason, 19 ára, 4x100
m. boðhlaup.
Finnbjörn Þorvaldssön, 24 ára, 100
m. lilaup, langstökk, 4x100 m. boðhl.
Haukur Clausen, 19 ára, 100 og
200 m. lilaup, 4x100 og 4x400 m.
boðhlaup.
Magnús Jónson, 20 ára, 4x400 m.
boðhlaUp.
Óslcar Jónsson, 23 ára, 800 og 1500
m. hlaup.
Páll Halldórsson, 22 ára, 4x400 m.
boðhlaup.
Reynir Sigurðsson, 20 ára, 400 m.
hlaup og 4x400 m. boðlilaup.
Jóel Sigurðsson, 23 ára, spjótkast.
Sigfús Sigurðsson, 26 ára, kúluv.
Torfi Bryngeirsson, 22 ára, stang'-
arstökk.
Stefán Sörenson, 22 ára, þrístökk.
Trausti Eyjólfsson, 20 ára, 4x100
m. boðhlaup.
Yilhjálmur Vilmundarson, 19 ára,
kúluvarp.
Örn Clausen, 19 ára, tugþraut og
100 m. hlaup.
Hvernig keppnin mun ganga ls-
lendingunum skal hér engu spáð um,
þótt líklegt megi telja, að tugþraut
Arnar verði okkar besta grein.
Haukur, Sig. Þingeyingur, Finn-
björn o,g Stefán Sörenson ættu líka
að geta náð góðum áröngrum í sín-
um greinum. Þó má búast við að
Finnbjörn geri tæplega sitt besta,
þar sem g'ömul meiðsli hans hafa
eitthvað tekið sig upp.
Til hægri:
Fjögurra ára sundhetja, — en
kemst ekki á Ólympíuleikana. —
Frakkar eiga flestum öðrum
þjóðnm betri sundmenn og
sundmeyjar, sem miklar vonir
eru tengdar við á Ólympíuleik-
unum. Þessi litla stúlka, sem
er aðeins k ára gönml og heitir
Martine Menut, þykir þegar orð-
in efnileg sundmær, og nýlega
sýndi hún hjörgunarsund með
hrúðu á opinheru sundmóti.
Var þessi mynd tekin við það
tækifæri. Hún verður náttúr-
lega ekki send á Ólympíuleik-
ana.
Ólympíuflaggið við hún. Mynd
þessi er frá Richmond Park við
London, þar sem mörg þúsund
íþróttamenn frá 61 landi húa,
meðan á Ólympíuleikjunum
stendur. Búið er að draga ól-
ympiska fánann að hún í lok
hinnar hátíðlegu athafnar við
opnun Ólympíuhæjarins.
Ólympíufarar boðnir velkomnir.
— Þegar fyrstu Ólympíufararn-
ir frá Ceylon komu til London
og settust að í Richmond Park,
bauð ólympiski yfirkokkurinn
þá velkomna með því að af-
henda þeim þessa furðulegu
köku, sem er að gerðinni iil stæl-
ing á grísku leiksviði.
Ólympíufararnir á Reykjavíkurflugvelti.