Fálkinn


Fálkinn - 30.07.1948, Side 14

Fálkinn - 30.07.1948, Side 14
14 FÁLKINN SKÁTAMÓTIÐ Á ÞINGVÖLLUM HEFST UM HELGINA Dagana 31. jálí—10. ágúst verður haldið fjömennt skátamót á Þingvöllum. Nokkur hópur erlendra skáta sækir mót þetta, einkum frá Danmörku, Englandi og Frakklandi. Mótstjóri er Páll Gíslason, stud. med., en með homun í mótstjórninni eru margir skátar, piltar og stúlkur. — Myndirn- ar hér að ofan eru frá skátamótinu á Þingvöflum 1938, en á jjví mættu skátar frá 7 löndum öðrum en íslandi. Efri myndirnar eru af skátahóp fyrir framan eitt Væringjahliðið, jiá aðalhliðinu uð tjaldborginni og loks af einum jiátttakanda frá hverju landi. Þeir eru laldir frá vinslri: Englendingur, Dani, Finni, Frakki, íslendingur, Hollendingur, Norðmaður og Svii. Að neðan frá vinstri: Hjálp í viðlögum, stútkur við matseld og skrifstofa undir berum himni. STÓRI SEÐILLINN. Frh. af bls. 11. var lýst ánægju yfir því, að hann hefði verið settur í autt sæti í bæj- arstjórninni. Allt var þetta auglýs- ing. Viðskiptin fóru að ganga betur, bæði hjá Henry og vátryggingar- félaginu. Menn sem ekki höfðu tal- að við Henry í mörg' ár leituðu nú til hans. Það hirt’ yfir á öllum víg- stöðvum. Viku eftir að Henry hafði fund- ið þúsund dala seðilinn, sat hann hjá unnustunni og var að semja skrá yfir húsgögnin, sem þau þyrftu til að stofna heímilið. Henry tók stóra seðilinn úr vasabókinni sinni. „Jæja nú verðum við víst að nota lukkuseðilinn okkar, þó gaman væri nú að geyma hann,“ sagði hann og leit nú í fyrsta skipti vandlega á Ideðihnn. „Hvert í heitasta!" hraut út úr honum. „Hvað er nú þetta? Á venju- legum seðlum eru rauðir silkiþræð- ir í pappírnum, en þarna eru bara rauð, prentuð stryk.“ Hann tók upp dollaraseðil og bar liann saman við stóra seðilinn. Þarna var ekki um að villast. Seðiliinn sem Ilenry hafði fundið, var falskur. Hann liorfði hugsandi á hann, en sagði loks brosandi: „Jæja, þarna feng- um við langt nef. Það er gott að við rifum þennan lista um hús- gögnin. Það er svei mér gott að við höfum ekki reynt að kaupa neitt fyrir stóra seðilinn. Þá hefði bær- inn fengið eitthvað til að liiæja að.“ „Henry,“ sagði unnustan. „Ef satt skal segja þá þykir mér vænt um að seðillinn skyldi vera falsaður. Nú getur enginn eigandi gefið sig frarn og þá g'etum við sett hann und- ir gler og í ramma og átt liann sem verndargrip. Þá skiptir einu hvort hann er ekta eða ekki. Þessi bleðill hefir kennt þér að treysta sjálfum þér og hjálpað þér fram á við. Þú hefir fengið launahækun, þú hefir selt fleiri tryggingarskírteini en nokkur annar siðustu viku, þú ert orðinn kunnur maður — það eitt er mörg þúsund dollara virði — og þú er kominn í bæjarstjórnina •— yngsti bæjarfulltrúinn í sög'u Fair- views, meira að segja. Og auk þess liefir bærinn rumskað út af þessu. Skilurðu það ekki? Seðillinn hefir gert sama gagn og liann hefði verið ekta.“ Henry þagði og starði niður á gólfið. Svo ieit hann upp. „Þú hefir rétt að mæla!“ sagði hann. „Nú skulum við halda áfram með liús- gagnalistann. Skrifaðu næst: ramma um stóra seðilinn “ ***** STJÖRNULESTUR. Frh. af hls. 5. 8. hús. — Satúrn ræður húsi þessu. -— Kunnur háttsettur maður eða öld- ungur gæti látist. 9. liús. — Júpíter ræður húsi þessu. — Siglingar utanríkis og flug milli landa ætti að vera undir sæmi- legum áhrifum og ganga vel, jafn- vel þó að slæm afstaða frá Merkúr dragi eitthvað úr. 10. hús. ■— Júpíter ræður einnig húsi þessu. — Stjórnin ætti að hafa góða aðstöðu jafnvel þó að Mars sé meðverkandi að nokkru leyti, ]jví Júpíter hefir góðn afstöðu til Sólar og Tungls. 11. hús. — Úran er í liúsi þessu. — Bendir á lagaleysur í frammi hafðar í sambandi við stjórnmál og ráðherrarnir verða að beita hyggni i framkomu og framkvæmdum. 12. hús. — Venus er í húsi þessu. — Góð afstaða fyrir heilsuliæli, spítala, betrunarhús og opinberar atvinnustofnanir og góðgerðarstarf- semi. Ritað 16. júlí 1948. Maðurinn, sem var selur. Frh. af bls. 9. — Lofið mér nú að fara. — Ekki held ég það. Ekki fyrr en þér hafið sagt mér livað þér eruð hrædd við. •— Ó, stamaði hún, ■—- hvers- vegna eruð þér í skinnbuxum? Hann hló, og hló enn er hann greip utan um liana og dró hana fram á brúnina. •— Verið þér ekki hrædd, sagði hann. Eg ætla ekki að fleygja yður fram af. En ef þær viljið endilega tala um brækur, þá lield ég að það sé hest að við setjumst aftur. ... Sjáið þér hve spegil- sléttur sjórinn er, sjáið þér lit- inn og birtuna í djúpinu! Hafið þér nokkurntíma séð noklcuð aðdáanlegra? Litið á himininn; lítið þér á fílinn, sem siglir þarna lijá; hann hefir engar áhyggjur — hversvegna ættuð þér þá að hafa þær? Framhald í næsta blaði. ------oOo----

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.