Fálkinn - 26.11.1948, Qupperneq 5
FÁLKINN
5
SJÖ MILLJÓN EIGINMENN VANTAR!
í dag eru í Þýskalandi 7 milljón
konur, sem aldrei giftast. Ein af liverj-
uni þremur uppkomnum konum er
dœmd til þess að verða piparmey eða
lijákona einlivers, þrátt fyrir að fjöl-
kvœni sé bannað með lögum. Og
þetta stafar ekki af fólksfækkun, því
að i rauninni hefir aldrei verið þétt-
hýlla i Þýskalandi en nú.
Þjóðverjar liófu styrjöldina 1939
undir þvi yfirskini að þá vantaði „lífs-
rúm“ og þetta „Lebensraum“ ætluðu
þeir að taka af grönnum sínum. En
Þýskaland var alls ekki þéttbýlt fyrir
stríðið í samanburði við ýms önnur
lönd.
Fólkinu fjölgaði alls ekki jafn ört
og ætla mátti af áróðursfregnum nas-
ista. Sannleikurinn var sá að fjölg-
unin hægði á sér, eins og í öllum öðr-
um iðnaðarlöndum Evrópu. Þjóðverj-
ar áttu við betri lífskjör að búa en
flest lönd, að undanteknum einstaka
löndum í Vestur-Evrópu og Bandaríkj-
var orðinn lama í Kumbum-
klaustri, í bænum sem hann fædd-
ist í. Svo átti hann líka bræður,
8 og 12 ára og eina gifta systur.
Hinn 23. nóvember var hann vígð-
ur til munkareglunnar ásamt ein-
um bræðra sinna. En hin hátíð-
lega athöfn, sem fram fór í sam-
bandi við krýninguna" var haldin
13. febrúar 1940 í viðurvist full-
trúa erlendra ríkja. Meðal þeirra
var- sendiherra Breta, sem færði
hinum nýja Dalai Lama gullúr og
spiladós að gjöf.
Hvað liggur fyrir þessum 13 ára
gamla dreng? Næstu fimm árin
á hann að fá þá sérstöku mennt-
un, er geri hann hæfan til að taka
við ríkisstjórninni. Þetta er mesti
greindarpiltur og einkar virðuleg-
ur í allri framgöngu. Samkvæmt
erfðavenjunni má Dalai Lama
aldrei snerta við kvenmanni. Af
þeirri ástæðu hefir móðir hans
orðið að slíta samvistum við hann
en munkarnir ganga honum í
móður stað. Henni hefir þó tekist
að fá nokkra ívilnanir og breyt-
ingar á venjunni. Að vísu fær hún
ekki að búa i höllinni, sem dreng-
urinn er í, heldur í húsi skammt
frá, og henni er veitt athygli þeg-
ar hún kemur á almanna færi.
Einstöku sinnum fær hún að hitta
drenginn og tala við hann í hallar-
garðinum.
Að því að íbúafjöldann snertir
þá er Tíbet ekki land sem skiptir
miklu máli fyrir umheiminn. En
það er stórt og liggur miðsvæðis
í Asíu inni á milli þriggja stór-
velda — Rússlands, Indlands og
Kína. Og það er ekki að vita nema
eitthvert þessara landa vilji ásæl-
ast hið dularfulla kynjaland
Búddamunkanna.
Eftir próf. Robert Strausz Hupe.
uniim. Árið 1930 voru það undir 08
milljónum, sem bjuggu á hinum 560
þús. ferkílónietrum þýska ríkisins.
Vegna styrjaldarinnar er landrými
Þjóðverja orðið fjórðungi minna nú
en var fyrir stríð, nefnilega 355 ])ús.
ferkm. og íbúarnir eru 66 milljónir.
Þegar herfangarnir eru allir komnir
heim og þýskt fólk af landsvæðunum
sem Þjóðverjar misstu, er komið
inn fyrir nýju landamærin, má gera
ráð fyrir að íbúafjöldinn verði yfir
70 milljónir. Vegna þessa liafa lífs-
kjörin versnað svo, að í þýsku borg-
unum verður þeim helst líkt við það
sem er sumsstaðar í Asíu. í fyrsta
skipti í sögu Þýskalands má nú draga
í efa hvort landið geti framfleytt fólk-
inu, sem byggir það.
í síðustu liundrað ár hafa jafnan
verið fleiri konur en karlar i Þýska-
landi. Árið 1936 voru þar t. d. 34,8
milljón konur og 32,8 milljón karlar
— konurnar 2 milljónum fleiri. — í
Þýskalandi nú eru 36,6 milljón konur
og 29,3 milljón karlar — konurnar
7.3 milljónúm fleiri. Verðið sent Þjóð-
verjar urðu að greiða fyrir tilraunina
til þess að nú heimsyfirráðum, er tal-
in vera að minnsta kosti 3,3 milljón
mannslífa — langflest karlmenn. Og
svo verður að minnast þess að fjöldi
situr í fangabúðum enn. Á utanrikis-
ráðherrafuridinum i Moskva var það
upplýst af sigurvegurunum að lijá
þeim væru enn 2,7 miljón Iierfangar,
sem væru látnir starfa að endurreisn
eyddu héraðanna. Barátta Þjóðverja
fyrir „Lebensraum“ hefir þannig kost-
að landið um 6 milljón karlmenn. —
Þessar liorfnu sex milljónir voru úr-
val karlmannanna, menn á aldrinum
20 til 40 ára, sem hæfastir voru til að
efla atvinnulifið og viðlialda þjóðinni.
í Potsdam-Þýskalandi eru ekki
nema 2 menn á móti liverjum 3 kon-
um á aldrinum 20 til 40 ára. Fyrri
styrjöldin og árin ]>ar á eftir höfðu
valdið stórhreytingu á siðferðislnig-
myndum almennings, ekki síst að því
er snerti kynferðismálin. Áróður nas-
ista fyrir mannfjölgun, sem ekki tók
neitt tillit til eldri skoðana fólks á
kynferðismálum, varð siður en svo til
að laga það, sem aflaga liafði farið i
skoðunum almennings á heimilinu
sem kjarna þjóðfélagsins. Ekkert
hendir til þess í dag að hin vaxandi
lausung liafi verið stöðvuð, lieldur
virðist Þýskaland fjarlægj'ast enn meir
ljær skoðanir sem rikjandi eru í kyn-
ferðismálum i Vestur-Evrópu.
Hin snögga og mikla fækkun karl-
manna á besta aldri hefir alvarlegar
afleiðingar fyrir atvinnulíf Þjóðverja
á komandi árum. Miðlungs-Þjóðverj-
inn er eldri núna en hann var 1936
og þessvegna lilutfallslega stærri hluti
af þjóðinni, sem ekki er starfandi fyr-
ir framleiðsluna. Sú staðreynd að
þýskur iðnaður framleiðir nú aðeins
30 til 45% af því sem hann gerði fyrir
stríð, stafar fyrst og fremst af eyði-
leggingunum og því að verksmiðjurn-
ar hafa verið rifnar niður og fluttar
burt. En hún stafar lika af því að
hráefni vantar þvi að innflutningur-
inn hefir minnkað svo stórkostlega og
al' óstjórn. En versti þröskuldurinn
í vegi efnahagslegrar viðreisnar
Þýskalands er sá, að gott starfsfólk
vantar. Púlsvinnumenn liða ekki að-
eins af matarskorti, heldur eru það
að miklu leyti konur og gamlir menn,
sem starfa að endurreisn þýska iðn-
aðarins og það veldur þvi að hún
gengur enn hægar en ella niundi.
Fæðingum, sem fækkaði stórum á
striðsárunum, fjölgaði ekki þegar
styrjöldinni lauk. Jafnvel enn cru
þær færri en fyrir stríðið. Barna-
dauðinn, sem fyrir stríð var minni
i Þýskalandi en víðast annarsstaðar
var tvöfalt meiri árið 1946 en 1936.
Fyrir siðasta ár eru engar tölur til,
en það er líklegt að matarskortur,
léleg húsakynni og skortur á sjúkra-
húsum og læknislijálp hafi komið
- ý«Js5
C (
þyngst niður á þeim, sem veikastir
voru fyrir, börnunum. Félagsmála-
og efnahagsástæður og svo það að
Þjóðverja skorti um það bil 10% á
að geta endurnýjað sjálfa sig þegar
harnafjölgunaráróður Hitlers stóð
sem liæst, bendir í þá átt að Þjóð-
verjum muni fara stórlega fækkandi
eftir 10 til 20 ár.
En um langt skeið verður íbúafjöldi
Þýskalands samt of mikill. Nú eru
íbúarnir 185 á hvern ferkm. og landið
því eitt af þeim þéttbýlustu í Evrópu.
Ástæðan til þessa eru fólksflutning-
ar þeir, sem orðið hafa og fá hliðstæð
dæmi eru til um. í ákvæðum Potsdam-
samþykktarinnar segir, að 6,6 milljón
Þjóðverjar skuli sendir heim úr þeim
liluta Þýskalands sem Pólverjar og
aðrir fengu. Hingað til hafa yfir 5
milljón Þjóðverjar verið „rifnir upp
með rótum“ úr austurþýsku liéruðun-
um, Súdetalöndum, Rúmeniu, Júgó-
slavíu og öðrum austrænum löndum.
Og hálf önnur milljón á eftir að flytja.
— Heimsending hinna svokölluðu
„volkedeutsche" — „kynbræðranna“
utan Þýskalands, sem hafa orðið verst
fyrir barðinu á nasismanum, hefir
skapað liin miklu vandræða þrengsli,
sem Þjóðverjar verða nú að ráða bót
á í landi því, sem sigurvegararnir
skildu þeim eftir.
Það voru þessir „volksdeutsche“
sem tóku nasismanum opnum örmum
og sórust í fóstbræðralag við heima-
nasistana, og þetta er skýring á Pots-
dam-samþykktinni. Og nasistar sjálf-
ir áttu upptökin að þjóðflutningum i
stórum stil. En i Potsdam-Þýskalandi
er innstreymið nýtt vandræðamál í
ofanátag við öll önnur vandræði, sem
ósigurinn bar í skauti sínu. Innflytj-
endurnir eru allsendis ókunnir lifn-
aðarháttunum eða afkomumöguleik-
unum í Þýskalandi. Þeir eiga ekkert
sameiginlegt með Þjóðverjum annað
en málið. Og það einkennir ])essa
flóttamannaskara, að þar eru miklu
fleiri konur en karlar og miklu fleira
af göndu fólki en ungu. Margt af
þessu er bændafólk, en í Vestur-
Þýskalandi — en þangað sækja flestir
— er ekkert til af óræktuðu landi
handa þessum innflytjendum að setj-
ast að á.
Töfraleyndardómur
„stjarnanna“
birtist yður:
„Hin væga Lux handsápa gerir húðina
hreina og yndislega", segir hin heill-
andi Jean Kent. Hin einfalda aðferð
mun einnig gera það sama við yður. Að-
eins að þvo sér með Lux liandsápu úr
volgu vatni og skola síðan með köldu,
og þér verðið frá yður numdar af hin-
um nýja fegurðarblæ á hörundi yðar.
HIN ILMANDI HVÍTA SÁPA KVIKMYNDASTJARNANNA.
X-LTS 692-939-50
a LEVER product