Fálkinn


Fálkinn - 26.11.1948, Blaðsíða 15

Fálkinn - 26.11.1948, Blaðsíða 15
FÁLKINN 15 REYKJAVÍK FYRR OG Þetta er jólabók Reykvíkinga! Biskup segir þar meðal annars í formálanum: „Mörgum bæjum, bæði stórum og smáum, er það sameiginlegt, að elsta saga þeirra er myrkri hjúpuð, svo að miklum erfiðleik- um er bundið, ef ekki ómögulegt, að gera sér þess fulla grein, hvernig þeir eru í upphafi orðnir til.“ Biskup hafði mikinn hug á að varðveita sögu Reykjavíkur. Honum hefir með mikilli eljusemi tekist að safna og gera myndir af Reykjavík, svo að segja frá fyrstu byggð. Megin tilgangur bókarinnar var sá, að sýna með myndum þróunarferilinn frá öndverðu til vorra daga. Þessi nýja bók, Reylcjavík fyrr og nú er framhald hinnar fyrri. Fyrsti kafli bókarinnar, fyrsta byggð bæjarins, eru myndir úr eldri bókinni, síðan koma gamlar ljósmyndir og teikningar frá Reykjavík, og loks Reykjavík í dag. En fram- an og aftan við bókina eru myndir af auglýsingunum, sem Jörundur hundadagakonungur birti hér, þann tíma sem hann sat að völdum. Auglýsingarnar, sem myndirnar eru gerðar eftir eru í bókasafni Gunnars Hall kaupmanns. Formála skrifar Vilhjálmur Þ. Gíslason skólastjóri, en Páll Jónsson auglýsingastjóri valdi myndirnar. Otgáfan er gerð í samvinnu við Reykvíkingafélagið. /" NU Saga Reykjavíkur í myndum írá íyrstu byggð til vorra daga. Arið 1937 gaf Isafoldarprentsmiðja út bók eftir dr. Jón Helgason biskup, sem hét: „Reykjavik 1786-1936, þætt- ir og myndir úr sögu bæjarins“. Bókin var gefin út af tilefni 150 ára afmælis Reykjavíkur. Isafoldar

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.