Fálkinn - 26.11.1948, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
C. A. Ehrensvard hershöfðingi,
herstjóri Svíþjóðar.
Margaret Rose Englandsprinsessa, sem um skeið hefir tekið að sér skyldur Elísabetar systur
sinnar, kom nýlega í heimsókn á barnaheimili i Kent. Hér sést prinsessan á hátískukjól vera
að tala við börnin.
Falskur Rússi. — Nýtega vakti
það uppnám við ameríska flota-
sýningu að þar mætti áhorf-
andi í rússneskum einkennis-
búningi. ,,Rússinn“ var nú samt
afhjúpaður; þetta var amerísk-
ur blaðamaður, sem hafði búið
sig svona til þess að ganga úr
skugga um hvort varúðarráð-
stafanir gagnvart útlendingum
væru í lagi. Iiér er verið að fara
með blaðamanninn til yfir-
heyrslu.
Jumbo á lofti. — Það er ekki
auðvelt að koma fíl á land af
skipi. Best er að nota bómur
skipsins, en þær þurfa að vera
sterkar til þess að þola þungann.
Verkfallsóeirðir í Frakklandi — Myndin er úr einum námubænum í Frakklandi þar sem verk-
fall stóð yfir. Verkamenn með rauða kommúnistafána hafa ruðst gegnum varnargirðingar
lögreglunnar og æða nú fram til þess að reka varðmennina á burt.
Til vinstri:
Séð í Ástralíu. Þetta sem
myndin sýnir er alls ekki al-
geng sjón í Ástralíu. Kengúran
er nfl. stygg og heldur sig sem
lengst frá fólki. En þessi á mynd
inni hefir alla sína ævi verið
húsdýr hjá fjölskyldu í Burn-
ley og fylgt börnunum í skól-
ann.
Til hægri:
Hreinar neglur. — Miklar kröf-
ur eru gerðar til flugþernanna,
ekki síst hvað hreinlæti snertir.
Á myndinni sést umsjónarmað-
ur vera að skoða neglurnar á
stúlkum, sem hafa sótt um flug-
þernustöðu.