Fálkinn


Fálkinn - 28.01.1949, Side 4

Fálkinn - 28.01.1949, Side 4
Gullæðið í Kaliforníu SÓLFAGRAN janúarmorgun árið 1848 kom dálítið fyrir ameríska skógarhöggsmanninn James Marshall. Hann var að grafa skurð í bakka American River skammt norðar þar, sem nú stendur bærinn Sacramento i Norður-Kaliförníu, og kom þá auga á gylll smákorn, sem glitr- uðu í morgunsólinni. Marshall kallaði á félaga sinn fyrverandi kaptein í svissneska liernum, Johan Aug.usi Suter, sem hafði keypt sér stórt landsvæði þarna í óbyggðu skógunum í Norður- Kaliforníu, af mexíkönsku stjórninni og byggt þar virk'i, sem liann kallaði New-JIelvetia til heiðurs hinni gömlu ættjörð sinni. Suter kapteinn vildi ekki flana að neinu. Hann lét Mar- shall tína saman mildð af gylltu kornunum og berja þau saman i einn mola. Svo fletti hann upp í alfræðaorðabókinni sinni á bókstafnum g og las allt, sem þar stóð um gull. Svo gerði liann ýmsar tilraunir á gyllta molanum. Loks tók hann af sér gleraugun, þurrkaði svit- ann af enninu, leit á Marshall félaga sinn og sagði eitt orð: GULLl Þeir höfðu fundið gull — tákn auðæfa og afl þeirra hluta, sem gera skal, eftirsóttasta inálm, sem mannkynið þekkti. Og þessi fundur þeirra gaf til- efni til mesta gullæðis í mann- kynssögunni. Það var fyrir löngu kunnugt að Kalifornía átti margskonar málma i skauti sínu. Francis Drake hinn frægi sægarpur og landkönnuður, sem kom á Kali- forníustrendur um miðja 16. öld, lét svo um mælt, að i „hverri lmefafylli af sandi er silfirr og gull“. En hið frjósama land og auðæfi Kaliforníu svaf Þyrnirósusvefninum áfram þangað til á 19. öld. Það var leiðangur sent Fern- ando Cortez gerði út árið 1535, sem fann landið, og næstu þrjú hundruð ár var það eign Spán- ar, seiíi hirti lítt um það, því að það var svo langt undan. í lok 17. aldar fengu Jesúítar sérleyfi á mestum hluta Kali- forníu, en síðar var því skipt milli Dominikana og Francisc- us-munka. Hinir síðarnefndu tóku að sér að kristna villi- mennina í Norður-Kaliforníu og reyndu að fá spönsku stjórnina til að leggja rækt við landið, og sögðu að þar væri besta höfnin á vesturströnd Norður- Ameríku (San Francisco-fló- inn). En þeir höfðu annað að hugsa liáu Iierrarnir í Madríd. Kalifornía fékk að vera í friði þangað til fyrir liundrað árum; þangað komu ekki aðrir en trú- boðar og fáeinir landnemar. En svo breyttist þetta skyndi- lega árið 1848, er gullið fannst. Þegar Mexico braust undan oki Spánverja árið 1820, tók það Kaliforníu undir sína umsjá. En Bandaríkin höfðu líka á- girnd á þessu landi, ekki síst til að afstýra því að Rússar næðu fótfestu þar. Eftir tveggja ára stríð milli Mexico og Banda ríkjanna var friður saminn 11. mars 1848 og með honum fengu Bandaríkin yfirráð yfir Kali- forníu. Friðársamningurinn er eiginlega verslunarsamningur — Mexico fékk 15 milljón doll- ara fyrir að afsala sér réttinum til Kaliforníu. Hvorugur aðilinn vissi þá, að i landinu voru fundnar gullnámur, sem áttu eftir að gefa af sér hundrað- falda þessa uppliæð á einu ein- asta ári! — — — Þeir Johan Suter og James Marshall grófu gull fyir mörg hundruð dollara næstu daga þarna í New Hel- vetia. Þeir fengu menn til að hjálpa sér — aðallega mor- móna — og þeir sögðu kunn- ingjunum tíðindin, svo að þau bárust eins og eldur í sinu. Á ótrúlega stuttum tíma barst fréttin til Monterey, sem þá var höfuðstaður Kaliforniu, og í nýju borgina San Francisco, sem þá var verið að byggja, og í þorp og byggðarlög og út fyrir landamærin. Fólk hljóp upp til handa og fóta, tryllt af tilliugs- uninni um öll auðæfin, sem þarna væri hægt að ná, og fór þúsundum saman upp í skógana í Sacramentodalnum til þess að grafa upp auðæfin með ber- um liöndum. Það voru ekki ein- göngu venjulegir ævintýramenn og umrenningar, sem skunduðu þangað. Bændur tóku sig upp frá búum sínum, smiðirnir í San Francisco fleygðu frá sér heflinum og múrskeiðinni og hurfu frá hálfsmiðuðum Iiús- unum. Hermenn og liðsfoi’ingj- ar í setuliðinu gleymdu skyld- um sínum og öllum heraga og struku úr þjónustunni, liásetar á skipunum sem lágu í San Francisco og Montrey laumuð- ust í land þrátt fyrir alla varð- gæslu, og svo mikið kvað að þessu að skipin komust ekki úr liöfn vegna mannleysis en urðu að liggja þar sem þau voru kom in. Kaupmenn og handverks- menn lokuðu verslunum sínum og smíðastofum. Embætlismenn og sýslunarmenn urðu gullfar- aldrinum að bráð, ekki síður en aðrir. Ameríski herforinginn í Kaliforníu, Mason ofursti, liót- aði að taka gullleitarsvæðið her- skildi, ef ekki yrði séð um þá, sem eftir voru í bæjunum, fyrst og fremst konur og börn, gam- almenni og sjúklinga. Hann sendi stjórninni í Wash- ington ömurlegar skýrslur um ástandið og jafnframt varð hann að elda ofan í sjálfan sig, því að jafnvel vinnufólkið hjá honum liafði strokið upp í Sacramentodal. Úr þessari fjárhirslu jarðar

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.