Fálkinn


Fálkinn - 28.01.1949, Blaðsíða 9

Fálkinn - 28.01.1949, Blaðsíða 9
FÁLKINN 9 hinn notalega sljóleika meðvitundar okkar. Fjandinn hafi það! Víst sjá- um við þetta, en við þurfum einsk- is með. Látið okkur í friði. Okkur liður ágætlega hér. Er þetta kannske viti? Helst litur út fyrir það. Og hvað svo? Næsta morgun sást rönd út við sjóndeildarhringinn, hún var álíka breið og ritblý. Það var land. Eyj- an Barbados í litlu Antillaeyjunum. En vatnsskammturinn okkar klukk- an tíu þýddi samt meira fyrir okk- ur en sá fjarlægi möguleiki, sem við eygðum þarna. Dagurinn dragnaðist áfram, og ég byrjaði að horfa til lands með vaknandi áhuga. Nú var liægt að greina lítil hús, steingerði og tré. Við sáum hvernig brimið brotnaði við ströndina. Regndemba skall yfir okkur þegar síðasta dagssltiman var að hverfa. Við hnipruðum okkur saman til að verjast kulda þessarar votu næt- ur og gleymdum liinu fyrirheitna Jandi. í dögun næsta morgun heyrðum við daufan hávaða úr fjarlægð. Hann smánálgaðist og fór hækk- andi, og að síðustu ætlaði hann al- veg að rífa eyru okkar. Skip kom siglandi á fullri ferð fyrir nesið og stefndi beint á okkur. Mér varð óglatt af æsingu og ég lokaði aug- unum. Slíkur liávaði sem þessi gekk alveg fram af þeim, sem í tíu daga höfðu ekki heyrt annað en þytinn i storminum og skvampið i öldunum. Þegar ég opnaði augun aftur heyrði ég ekkert annað en skvamp- hljóðið frá tundurspillinum sem seig áfram við hlið okkar og beindi að okkur vélbyssunum sinum. Breskur rauðbirkinn sjóliðsfor- ingi i skinandi hvítum og i>letta- lausum einkennisbúningi kallaði til okkar: „Við tökum konuna fyrst um borð.“ Eg fann enga löngun til þess að hreyfa mig. Það var miklu auð- veldara að sitja þar sem ég var komin. En þeir biðu mín. Varlega eins og ég væri úr gleri renndi ég mér niður í austurinn og drógst yfir að borðstokknum á bakborða og stóð þar. Það var likast því sem kné mín hefðu misst allt samband við líkama minn. Og ökklarnir á mér voru likastir þvi að vera úr hlaupi. Þetta voru ekki mínir fæt- ur, sem ég stóð ú. Og þarna stóð ég og athugaði lengdina á kaðal- stiganum upp i tundurspillinn. Það voru sex þrep. „Haldið þér áfram,“ sagði óþol- inmóð rödd við eyrað á mér. Selur licfði átt lóttara með að klifra upp kaðalstigann en ég. Mér var rétt hendi ofan af skipinu. „Getið þér komist þetta?“ „Já, já, það er ekkert að mér,“ svaraði ég svo rólega sem mér var unnt. Mér kom það ú óvart að ég skyldi vera orðin jafn hás og nú kom í ljós. Rödd mín var eins og krákugarg í samanburði við hina flauelsmjúku rödd sjóliðsforingjans. „Einn tebolla?" spurði foringinn, þegar við vorum loksins komin of- an í káetuna. „Og eina sigarettu? Verið þér eins og heima hjá yður.“ Svo fór hann burtu og ég var ein eftir. Alein! — Smurð i óhreinindum sat ég á rúminu og hélt báðum liöndum fast um rúmbríkina. Þarna i horninu var handlaug. Eg starði vantrúaraugum á krana, sem merkt- ir voru KALT og HEITT. Eg gat tæpast skilið hvað það þýddi. Skömmu síðar komum við í höfn og vorum flutt í land. Einhver lcona sagði við mig: „Nú eigið þér að fá heitan mat að borða.“ Eg reyndi að imynda mér hvernig slíkt mundi vera, en brast hug- kvæmni til þess. Eg gat ekkert ann- að gert en að halda mér sem fast- ast i handriðið á landgöngubrúnni, sem mér virtist sveiflast ofsalega fram og aftur. Mér var hrollkalt og ég átti mér aðeins eina ósk: Heitt bað. Önnur kona rétti mér púðurdós. Eg hló að umhugsuninni um það livernig grímu púðrið mundi mála á mína börkuðu liúð. Konan rétti mér einnig varalit. Eg hristi höfuð- ið því að varir minar voru bæði sprungnar og bólgnar. „Þér lítið mjög vel út,“ laug hún af eintómum mannkærleika. Þegar ég að lokum var komin heim til einhverrar frú Herbert fékk ég uppfyllingu minna allra djörfustu drauma, er ég kom inn í baðher- bergið og sá liinn spegilfagra hún- að þess og græna baðkerið svo fullt af vatni að seitlaði út yfir barminn. Þetta var mér túkn allsnægtanna. Frú Herbert studdi mig inn í bað- herbergið. En vatnið var ískalt . . Eg dró fótinn að mér með kulda- hrolli. Frú Herbert sveipaði baðteppi utan uin mig og hvarf brott. Fljótar en vonir minar stóðu til kom hún aftur með fullan ketil af vatni og í fylgd með henni brosandi Barba- dos-stúlka, sein einnig' bar könnu með rjúkandi vatni. Áður en ég vissi af höfðu þær hellt þessu ofan i kaldavatnsliafið í haðkerinu. Eg þurfti ekki einu sinni að dýfa fingr- inum ofan i vatnið til þess að vita að það var ekki nema ilvolgt. Tilveran i björgunarbátnum var ekki nærri því eins flókin og þetia hugsaði ég hjálparvana. Þegar ég kom ofan í baðið reyndist það þó allt öðruvísi en ég hafði búist við. Og svo skemmtum við okkur við það að nú var ég þó farin það að ná mér að bað þýddi ekki allt fyrir mig lengur. Eg tólc mér þrjú böð hvert eftir annað. Eg vildi einnig um fram allt þvo hárið á mér. Eftir annað bað- ið, sem ég tók var vatnið nærri þvi jafn skítugt og eftir það fyrsta. Eft- ir þriðja baðið fann ég að ég var orðin nokkurnvegin hrein, og þá var ég lika orðin svo máttvana, að ég féllst á að láta staðar numið. Þegar ég að lokum yfirgaf bað- herbergið, sagði frú Herbert blið- lega við mig: „Eftir öll þessi böð hafið þér vafalaust gott af að hvíla yður ofurlítið." Eg var svimandi sæl, þegar hún fylgdi mér inn í herbergi þar sem tjöld voru dregin fyrir gluggana og nýuppbúið rúm beið min. Þakklát í buga skreið ég upp i rúmið og sökk niður á milli rekkjuvoðanna. Mér hefði fundist ég öruggari á gólfinu, en þetta gekk allt vel, þvi að ég liélt mér með öllum bmum fast við hinn trausta og óbifanlega rúm- stokk, — eins og ég og allir hinir 34 menn, sem deilt höfðu ógæfunni með mér á hafinu síðustu tíu sól- arhringana höfðu lært að gera. IVlW/V/VM Huer íann upp: dynamitið ? Árið 1848 hafði efnafræðingurinn Sobrero búið til efnablönduna nitró- glyserín, sem er gerð með því móti að glyserín er látið drjúpa í dropa- tali niður i blöndu af hreinni salt- péturssýru og saltsýru, við mikinn kulda. Þetta fljótandi sprengiefni, sem þannig myndaðist, var afar- hættulegt í meðförunum, því að bæði var því hætt við að springa og svo var það eitrað. Það varð verk Svíans Alfred Nobels (f. 1833, d. 1895) að gera þetta efni meðfæri- legt og nothæft. Faðir hans, Imman- uel Nobel, rak sprengiefnagerð i Heleneborg nálægt Stokkhólmi, og vann hann meðal annars að þvi á- samt sonum sínum, að gera nitróglys erín meðfærilegt, svo að hættulitið yrði að nota það. En þetta var mjög liættulegt tilraunastarf, eins og nærri má getta. Þann 3. september 1864 sprakk sprengiefnagerð Nobels í Heleneborg i loft upp og fórust þar margir menn, m. a. yngri bróðir Al- fred Nobels. Vöktu þessi tíðindi mikla skelfingu. Gamli Nobel lá rúm fastur þegar þetta gerðist, svo að Alfred varð einn að lialda fyrirtæk- inu áfram. Hann fékk hvergi grið- Jand svo að hann varð að koma sér upp nýrri rannsóknarstofu á pramma út í Málaren, og varð meira að segja að flytja hann stað úr stað þvi að grannarnir voru svo hræddir við jietta, þar sem næst var í i landi. En það var of hættulegt að nota nitroglyserín fljótandi og þess- vegna þurfti að binda það í ein- hverju þurru efni. En hvernig útti að fara að því, án þess að sprengi- máttur þess minnkaði? Þó hljóp til- viljunin undir bagga með Nobel. Lítil tunna með nitroglyserin hafði orðið lek, svo að runnið hafði úr lienni i umbúðirnar ú tunnunni. Nobel uppgötvaði nú að umbúðirn- ar höfðu drukkið nitroglyserínið i sig og voru sjálfar orðnar að sprengi efni og það var ekki vandfarið með þær. Tókst Nobel nú að finna efni, sem drakk í sig mikið af nitroglyser íni hlutfalli við þyngd sina. Það var svokallaður kísilgúr. Þegar liann drekkur í sig sprengiefnið myndast einskonar leir, sem hefir sama sprengiefni og nitroglyserín. Nobel nefndi þetta nýja sprengiefni dyna- mit og hefir það siðan þótt jafn ómissandi til liernaðar og til frið- samlegra starfa. Mörg verkfræðileg fyrirtæki hefði verið ókleyft að framkvæma ef dynamítið hefði ekki verið til. Þessa uppgötvun gerði hann 1866. Níu árum síðar fann hann „sprengigelatin", sem er sam- band af nitroglyserini og kollodium, og var það sterkara en hrcint nitro- glyserín. Hér var það líka tilviljun- in, sem hjálpaði honum. Hann hafði fengið skrámu ú fingurinn og batt um hann traf, sem hann hafði vætt í kollodium. En hann fékk svo mik- inn verk í sárið, að hann varð and- vaka alla nóttina, og þá datt honum í hug, að kollodium væri kannske einmitt efnið, sem hann þyrfti á að lialda. — Nobel setti upp sprengi- efnagerðir viðsvegar í Evrópu og varð ríkur maður. Eins og kunnugt er gaf liann mestan hluta eigna sinna til þess að stofna sjóð, til verðlauna ágætustu vísindamönnum og skáld- um veraldarinnar. Ein verðlaunin og ef til vil þau frægustu eru friðar- verðlaunin, þeim til handa er á liðnu ári liafa starfað best að efl- ingu friðarins i lieiminum. Það er nefnd, sem kosin er af Stórþinginu norska, sem veitir þau verðlaun. Nobel, sem hafði varið ævi sinni til þess að uppgötva eitt hættulegasta drápstæki veraldar, var einlægur frið arvinur. Var það skoðun hans að verðlaun þessi gætu orðið til þess að greiða götu friðarins i heiminum, á þann hátt að stríðin yrðu svo ægi- leg að enginn vildi ráðast í þau. •— Sú skoðun reyndist þvi miður fjarri sanni. Skrítlnr Hann: — Hvenær sem ég sé liatt- inn þinn þá get ég ekki stillt mig um að hlæja. Hún: — Þá ætla ég að hafa hann þar sem þú sérð hann þegar reikn- ingurinn kemur. — Ert þú ekki sami drengurinn, sem kom hingað fyrir viku til að biðja um atvinnu en ég sagðist þurfa eldri dreng. — Jú. En ég er orðinn eldri en þá. Konan: — Hérna sé ég auglýsingu um nokkuð nýtt: linappalausa skyrtu. Hann: — Eg lield ekki að það sé neitt nýmæli. Eg hefi gengið í hnappalausum skyrtum í mörg ár! Hún: — Hve marga menn skyldi ég gera óhamingjusama þegar ég giftist? Hann: — Hve mörgum hefir þú hugsað þér að giftast? Stúlkan: ■— Hve mikið kostar leyf- isbréf til giftingar? Skrásetjarinn: — 21 sliilling. Stúlkan: — En ég hefi ekki nema 12 shillinga. Skrásetjarinn: Þá eruð þér heppin. Donald MacTavish og Hamish MacDougall eru að fara í veiðiför, og Hamish biður við bátinn þegar Donald kemur með nestið--------stóra körfu. Hamish rannsakar hvað í lienni er, tólf flöskur af viskí og eitt hrauð. „Þetta er gott, Donald,“ segir hann. „En livað seilarðu að gera við brauðið?" Hann var að tala um mannlegt eðli og sagði: — Þið gptið trúað þvi að fullkominn maður hefir aldrei verið til og verður aldrei til. Kunninginn svarar: — Það er auðheyrt, að þú hefir aldrei séð fyrri manninn konunnar minnar. Barnið horfði lengi á afa sinn og spurði: — Varst þú í örkinni hans Nóa, afi, þegar flóðið kom? — Nei, ekki var ég það, svaraði gamli maðurinn góðlátlega. — Hvernig stendur þá á að þú skyldir ekki drukkna? Ráðvandi bóndinn, sem raðaði öll um stærstu eplunum sinum efst i tunnuna, setti miða á lokið og skrif- aði á: — Opnist i hinn endann!

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.