Fálkinn


Fálkinn - 28.01.1949, Blaðsíða 7

Fálkinn - 28.01.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN 7 Til hægri: Janúar-útsala. — / Veatur-Ev- rópulöndunum hafa verslanirn- ar haft meiri og fj.ölbreyttari varning að bjóða núna um jólin en nokkru sinni fyrr frá stríðs- tokum. Stafar það aðallega af Marshall-hjálpinni, sem þessi lönd eru aðnjótandi. Og það er nú í fyrsta skipti síðan fyrir stríð, að vöruútsala er i versl- unum eftir nýárið. — Mynd þessi er frá stórverslun í London. ■ Stórt skip. Stærsta farþega- skip, sem smíðað hefir verið eftir stríðið, er enska Atlants- hafsskipið „Caronia“, sem er 3'r.000 lestir. Aðeins einn reyk- háfur er á skipinu, en hann er líka sá stærsti í heimi.— Litlu deplarnir sem sjást á myndinni eru mennirnir, sem eru að mála reykháfinn. Hornreka. — Ilann kann ekki sem best við sig þessi, enda ekki von, því að hann hefir í ðgáti lent innan um hóp af bolabítum á hundasýningunni. Prinsessur í firðsjá. / breska sjónvarpinu var nýlega hægt að sjá tvær prinsessur dansa „can- can“. Það voru þær tvær, sem sjást hér á myndinni, Memeti og Desta, prinsessur af Abess- iníu. Að sögn eru þær komnar af drottningunni af Saba. Fyrir örkumlamenn. — Á bif- reiðasýningu í London gefur að líta þetta farartæki, sem er ætl- að örkumlamönnum. Fer miklu betur um þá hér en í venjuleg- um sjúkravögnum. Ástralíuför Bretakonungs var frestað á síðustu stundu vegna veikinda hans, eftir að allur undirbúningur hafði verið gerð- ur. Hér sést áhöfnin af einni konungsflugvélinni, er hann ætlaði að nota til ferðalagsins um álfuna. Áhöfnin er að at- huga leiðirnar á uppdrættinum. Þýskar Garbo-ur. — Óvenjuleg samkeppni fór tuýlega fram á ameríska hernámssvæðinu í Berlín. Stúlkurnar tóku sig nfl. saman um að finna þá, sem væri líkust Gretu Garbo. — Hérna sjást þær þrjár, sem þóttu líkastar. Dreymir við hljóðfærið. — Arth- ur Rubinstein, sem talinn er með mestu píanósnillingum heimsins sést hér við hljóðfærið er hann hélt hljómleika í Al- bert Hall nýlega. Veisla í UNO. — Forseti þings sameinuðu Jyjóðanna, Herbert Evatt utanríkisráðherra Ástr- alíu, sést hér vera að heilsa Pierre de Gaulle borgarstjóra í París, í veislu sem UNO hélt í Chaillot-höllinni.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.