Fálkinn - 28.01.1949, Síða 14
14
FÁLKINN
LEIKARAM YNDIR — LEIKARARABB
Sterkur leikari. — Þessi sterki
maður hefir ekki aflraunir að
atvinnu heldur er hann fransk-
ur leikari og lieitir Charles
Moulin, og er að æfa sig í hand-
vigtum vegna hlutverks sem
hann á að leika í og reyna á
kraftana.
lVlVlV/V<V
Laurence Olivier besti leikarinn.
Kvikmyndagagnrýnendur i New
York hafa valið Laurence Olivier
besta leikara ársins 1948 fyrir leik
sinn í Hámlet. Bestu mynd ársins
töldu þeir Treasure of Sierra Madre
en Hamlet kom næst. Besta leik-
kona ársins var talin Olivia de
Havilland.
/V/VMM/V
Athyglisverð mynd.
Two Cities kvikmyndafélagið er
að gera athyglisverða kvikmynd um
ástandið í Hamborg eftir stríðið.
Skrýtið mál.
í nýrri enskri mynd eru leikar-
arnir David Tomlinson, Harold
Warrendcr og Hugh Cross látnir
tala einkennilegt mál. Ensk orð eru
notuð en stöfuð aftur á bak, svo að
t. d. ,1 love you“ verður „uoy
evol I“.
lV/V(V/V/V
Eitt atriði — sex persónur —
einn leikari.
Hinn fjölhæfi enski leikari Alec
Guinness, sem lék Gyðinginn Fagin
í Oliver Twist, fer með 9 lilutverk
i nýrri mynd frá Ealing Studios.
Einu sinni eru C persönur á leik-
sviðiniu í einu, og Alec Guinness
leikur þær allar.
ítölsk dís í enskri kvikmynd. —
Helsta leikkona ltala, Valentine
Cortese leikur aðalhlutverkið í
enskri kvikmynd, sem heitir
„Glerhúsið“ og byggist á þjóð-
sögu sunnan úr Dólómítölpum.
Þetta er fyrsta ítalska leikkon-
an, sem leikur í enski kvik-
mynd eftir stríð.
GULLÆÐIÐ.
Frh. af bls. 5.
júlí 1848 til loka þess árs var
grafið fyrir 5.5 milljón dollara
i Sacramentodalnum. En svo
kom verðbólgan. Verðlag og
vinnulaun hækkaði úr öllu hófi.
Méltunnan sem kostaði 20 doll-
ara í júní var komin upp í 65
dollara í september.
Amerikumenn dreymdi stóra
drauma um allt það, sem hægt
yrði að gera með gullinu frá Kali-
forníu. Blöðin í New York birtu
glæsilegar framtíðarhugmynd-
ir. Með gullinu frá Kaliforniíu
yrði hægt að gera borgina rika
og fagra — og stærslu borg í
beimi. Því að það var amer-
íska alríkið sem átti öll svæð-
in, að fráskyldu þessu litla, sem
Suter kapteinn átti. I Wash-
ington ræddi stjórnin um hvern
ig helst ætti að hagnýta gull-
námurnar, og livernig ætti að
fara að því að lialda uppi lög-
um og rétti i Kaliforníu. Það
var rætt um hvernig haga skyldi
stjórn þessa nýja fylkis, og 1850
lauk hjálendustöðu Kaliforníu
og hún var tekin í tölu sam-
bandsríkjanna. Og nú var far-
ið að spjalla um þá liugmynd,
að grafa skurð gegnum Pan-
amaeiðið, og hugmyndin um
járnbraut vestur yfir þvera
Ameríku kom fram i fyrsta
skipti. Eitt blaðið í New York
komst svo að orði, að járnbraut
arlagning frá New York lil San
Francisco væri Herkúlesarþraut
sem yrði að bíða betri tíma.
Gullfundurinn í Sacramento-
dalnum spurðist um allan heim
og þótti sæta tíðindum. Ev-
rópa logaði þá i byltingum og
var misjafnlega litið á livers-
konar þýðingu Kaliforníugull-
ið gæti haft á umheiminn. 1
dönsku blaði frá þeim tima
segir, að Evrópa „standi á hyl-
dýpisbarmi og inegi búast við
að skríllinn nái þar yfirráðum
eða hún liverfi aftur í myrkur
iii -''*«(
Af ófyrirsjáanlegum ástæðum féll framhald af prjónadálki í 2.
tbl. Fálkans niður, og eru lesendur beðnir velvirðingar á því.
Birtist framhaldið nú hér:
til ermin ér 44 cm. Prjóna þá ekki
lengur í liólk heldur fram og aftur
og byrja úrtökurnar: Fell 6 1. af
í byrjun slétta prjónsins og einnig
í byrjun brugðna prjónsins næsta.
Fell því næst af 1 I. i byrjun livers
næsta prjóns, en flyt síðan á
prjóna nr. 2 'é og prjóna 2 1. sam-
an, allan prjóninn á enda og bregð
svo næsta prjón. Fell af.
Tilhafningin: Breið öll stykkin
slétt milli blautra dagblaða og lát
þau blotna vel og jafna sig. Breið
þau svo á slétt til þess að þorna.
Kraginn: Sauma jjcysuna saman
á öxlunum. Snú réttunni á peysunni
upp og tak 90 1. upp i hálsmálinu
með prjónum nr. 2% og prjóna
samtímis slétt með bláa garninu.
Prjóna slétt þangað til kraginn er
2% cm„ prjóna svo 1 prjón rétt,
frá röngunni, þannig að myndist
garður. Það er til þess að kraginn
vefjist ékki og brúnin verði jöfn.
Tak þá bvíta garnið og prjóna slétt
2 cm. Sauma 7 stjörnur eins og sýnt
er á mynd 4 með bvíta garninu i
bláan kragann, og brjót hvíta fóðr-
ið inn á við og sauma það niður.
Bleyt kragann milli dagblaða. Sauina
peysuna saman og fest hnappana.
Gæt þess að hnapparnir mætist rétt
á börmunum.
Mgndirnar:
Mynda a. Peysa með norsku mynstri.
Mynd b. Sniðamynstur: I. bakið, II.
v. barmur, III. ermi.
Mynd c. Bekkirnir 1, 2, 3.
miðaldanna, ef hinar socialis-
tisku og konnnúnistisku hug-
sjónir festa rætur og breiöa lim
sitt að gagni út á meðal þjóð-
anna.“ Samkvæmt sama blaði
vonuðu margir Evrópumenn að
gullið i Kaliforníu mundi lokka
óróaseggina og hina óánægðu
vestur yfir Atlantshaf, svo að
Évrópa losnaði við hinn „hræði-
lega pauperismus og hinn eigi
síður hræðilega kommúnisma."
Enskir og franskir kaupmenn
litu hins vegar kaupsýsluaug-
unutn á þetta mál. Enski iðnað-
urinn gerði sér vonir um nýja
markaði, og vínkaupmennirnir
i Bordeaux sáu möguleika á þvi
að auka hnignandi veltu sína á
vínsölunni, er Kaliforníugullið
færi að hafa áhrif á kaupgetuna.
1 augum samtíðarinnar var
Kalifornía nýtt Eldorado. Á ár-
unum eftir 1848 liélt fólk áfram
að streyma þangað og náttúran
var gjöful við þá og jós af fjár-
sjóðum sínum, sem virtust ó-
tæmandi. Árið 1852 var grafið
gull fyrir 81.294.000 dollara. Svo
fór framleiðslan smálækkandi.
Gullnámurnar reyndust ekki ó-
tæmandi. Árið 1900 var grafið
gull fyrir 16 milljón dollara,
1930 fyrir 9 milljónir og 1945
fyrir 5 milljónir, þrátt fyrir alls-
konar nýtisku áhöld. Má þvi
heita að námurnar í Scaramen-
todalnum séu tæindar.
En Kalifornía er ríkara land
nú en nokkru sinni áður, þó að
liún hafi dregist aftur úr hvað
gullframleiðsluna snertir. Jörð-
in geymir fleiri auðæfi en gull.
Kaifornía á miklar olíulindir.
Og jarðvegurinn er frjósamur
og veðráttan ákjósanleg, svo að
Kalifornía er nú mesta ávaxta-
ræktarlandið i allri Ameriku.
Ungur og ábugasamur leikari,
sein hafði setið um að fá stór hlut-
verk, varð heldur en ekki upp með
sér er hann var beðinn um að taka
að sér aðalhlutverk leikara, sem
bafði orðið veikur. Hann símaði
þegar í allar áttir til að láta vita um
livað til stæði. En ekki fékk hann
nema eitt svar við skeytunum, og
það var frá kunnum rithöfundi og
ldjóðaði svo: — Þakka yður fyrir
aðvörunina!
M/W/W/VA/