Fálkinn - 24.03.1950, Qupperneq 15
FÁLKINN
15
Bókarfregn:
Vinirnir
Remarquc — og þú veit að þetta
er héillandi bók. Remarque og hinn
undarlegi niður tragedíunnar fer að
hljóma i eyrum þér. Hin stríðsherj-
aða jörð 1918, blandin blóði, bund-
in lífi liinna hraustu sonu aldarinn-
ar, lnin bar undarlegan ávöxt. Tónn
lífsins varð annar, viðlag daganna
nýtt. Remarque er eitt gleggsta dæm-
ið um þá uppskeru. Verk lians er
þrungið þeim djúpa niði, sem vér ei
getum lokað eyrunum fyrir. Von-
leysi, lifstregi, uppgjöf, og þó eitt-
hvað, sem knýr til átaka, eitthvað
sem hrópar, það má ekki koma fyr-
ir aftur. Enda var hann ekki talinn
heppilegur í uppeldisstofnunum und-
ir hið siðara stríð. Svo jákvæður
var tónn hans þrátt fyrir vonleysi,
að dauðapostular Hitlers brenna
verk hans. Hann skírskotar til hins
mannlega, sýnir okkur ágæti hins
venjulega manns, og svo þau öfl,
sem lífi hans ráða. Andstæður álf-
unnar, fólkið og lífið.
Forlag Pálma H. Jóssonar sendi
okkur Vinina fyrir jólin, og við
tókum að iifa með þeim, áhyggjur
þeirra urðu okkar, gleði þeirra liin
sama. Sigrar kappakstursbíllinn,
Kalli, Kalli? Á þvi riður hamingjan.
Því meiri matur og þá má gera sér
glaðan dag, og þá má takast að
koma Pat á hressingarhæli. Vinirn-
ir byggja tilveru sína á bílum, ónýt-
um bílum og álíka valtur er grund-
völlur þessara ára. En þó vér í sög-
unni séum handgengnastir viðgerðar-
verkstæðinu Kosler og Co. vinum
Ottó og Lens og Lokkamp, þ e.
segjanda sögunnar og stúlkunni hans
hinni töfrandi Pat, sem þó ber
dauðann í hjarta, þá getur Remarque
með fáum orðum sýnt okkur inn í
veraldir fjölda annarra skyndi-
mynda, er segir allt. Götustúlkan,
sem fórnar sér fyrir litlu stúlkuna
sína. Veitingakonan frá Zaleweski,
skrifstofumaðurinn, sein af hættu við
við atvinnumissi, fórnaði öllu og
fremur sjálfsmorð daginn, sem liann
fékk bætt kjör og hækkaði í íign,
o. fl. En allt er á niðurleið, það
verður erfiðara og erfiðara að fá
bil til viðgerðar. Pat nálgast dauð-
ann, Lens fellur i götuuppþoti. Há-
marki nær tragedían þegar Kalla,
stolti vinanna og tilverugrunni, er
Jórnað í vonlausri tilraun að bjarga
Pat. Vinirnir éru dásamleg bók.—-
Þökk sé þýðanda, Oddnýju Guð-
mundsdóttur og útgefanda að gefa
okkur kost á að lifa með Vinum.
TILKYNNING
Vér viljum liérmeð vekja athygli heiðraðra viðskipta-
vina vorra á því, að vörur, sem lig'gja í vörugeymslu-
húsum vorum eru ekki vátryggðar af oss gegn eldsvoða,
og her vörueigendum sjálfum að brunatryggja vörur
sínar, sem þar liggja.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
SKIPAÚTGERÐ RÍIÍISINS
SKIPAAFGREIÐSLA JES ZIMSEN
ERLENDUR PÉTURSSON
Sýning norrænna
atvinnul jósmyndara
liefir verið opnuð í Listamannaskálanum.
Á sýningunni eru yfir 400 ljósmyndir eftir ýmsa
af þekktustu ljósmyndurum Norðurlandanna fimm.
Sýningin er opin daglega frá kl. 10 f. h. til kl. 23.
Ljósmyndarafélag Islands
Gils GúðmimdsSon.
( ni flagfiiin ogr vcgiiin
Eftir Jón Sigurðsson frá Ystafelli.
Undanfarandi hefir Jón Sigurðsson, bóndi á Ystafelli, flutt nokkur erindi
í Ríkisútvarpið. Hann kallar erindin „Um daginn og veginn“. Þau vöktu
óskipta athygli, en þóttu á hæstu stöðum full sannorð og berorð um stjórn-
arfar og óstjórn á mörgu hér á landi. í bókinni, sem komin er út í bóka-
verslanir eru sex erindi, og segir höfundur: Fjögur hin fyrstu af erindum
Þessum voru flutt í útvarpið óbreytt, eins og þau eru prentuð hér. Hið
fimmta var flutt með nokkur úrfellingum, en hinu sjötta var hafnað.
Bókin kostar aðeins 10 krónur.
Bókaverslun ísafoldar.
Frá nesjuiin, 5. Iicftii
Vinsældir þessa sagnasafns vaxa með hverju hefti. Veigamesta ritgerðin í þessu
nýja hefti er „Frá Ögurbændum“, eftir Kristján Jónsson frá Garðsstöðum. —
Kristján er landskunnur fræðimaður og skrifar skemmtilega. — Af öðru efni má
nefna: , Bændur í Önundarfirði 1801“, eftir Ólaf Þ. Kristjánsson. „Vættur í Holts-
seli“, skrásett af Magnúsi Hj. Magnússyni.
„Friðbert í Hraunkoti“, „Sæbólsbræður“,
„Faðir þilskipaútgerðarinnar á íslandi“,
„Reimleiki á Úlfsá“, „Rúnahellan á Þing-
mannaheiði“, „Skriðan mikla á Hestdal“
og „Grettisstillur“.
Bókin kostar aðeins 15 krónur.
m
Tvær nýjar bækur
frá Ísafoldarprentsmidju