Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1953, Blaðsíða 3

Fálkinn - 02.10.1953, Blaðsíða 3
FÁLKINN 3 Rófoert Arnfinr.sson, Bryndís Pétursdóttir, Inga Þórðardóttir og^ Einar Pólsson í hlutverkum sínum undir lok annars þáttar. Þjóðleikhúsið: „Einkalíí“ Nit er nýtt leikár liafið hjá Þj<’)ð- leikhtisinu, og fyrsta nýja leikritið, seni tekið er til meðferðar, er Einka- líf (Private Lives) eftir Noél Goward, en jafnframt liafa tvö af sýningar- leikritmu siðasta starfsárs- verið sýnd Inga Þórðardóttir sem frú Prynne og Einar Pálsson sem Chase, sviðs- mynd úr 2. þætti. nokkrum sinnum. Það eru Tópaz og Koss i kaupbæti. Noel Coward er fyrir löng'u orðinn heimskunnur maður, ekki aðeins fyr- ir leikrit sín og revýur heldur einnig fyrir tönlist sína og kvikmyndir, sem Einar Pálsson og Bryndís Pétursdóttir sem herra og frú Chase. hann bæði liefir leikið í, stjórnað og byggt upp. Og loks má ekki gleyma því að hann er frábær leikari. Þýðingu leikritsíns Einkalíf liefir Sigurður Grimsson gert, en Gunnar H. Hansen annast nú leikstjórn í fyrsta skipti í Þjöðleikhúsinu. Leiktjöld lief- ir Magnús Pálsson gert. Leikendur eru aðeins fimm. Inga Þórðardóttir leikur Amöndu Prynne, Róbcrt Arnfinnsson Victor Prynne, Róbert Arnfinnsson og Inga Þórðar- dóttir sem herra og frú Prynne. mann hennar, Einar Pálsson Elyot Chase og Bryndís Pétursdóttir konu lians. Hildur Kalman leikur þjónustu- stúlku. — Leikurinn gerist i Frakk- landi. Tvenn hjón, seln nýlega hafa verið „pússúð saman“, eru á brúð- kaupsferð. Anianda (Inga Þórðardótt- ir! hefir áður verið gift Elyot (Einar Pálsson) og gamlar endurminningar rifjast upp hjá þeim, þegar þau lútt- ast. Leikurinn byggist mjög á fyndn- um — jafnvel tvíræðum ■— tilsvörum, en ekki verður sagt, að um sé að ræða rismikinn gamanleik. Þættirnir eru þrír. Miðþátturinn er langdreginn og upptúggukenndur, en meiri hraði er í þeim fyrsta og síðasta. Meðferð Hutverka er góð, leiktjöld prýðileg, þýðfng lipur og leikstjórn að flestu leyti ágæt, en efni leikritsins gefur ekki möguleika til annars en að skapa miðlungs gamanleik. * Dnuimmurn i Dlisseldorf 1950 - 09 hvernig reynt hefir verið oð sftýro imnn Ur grein Dr. Hans Gerloffs, háskólakennara, sem birtist í janúar 1953 í blaðinu „Ný vísindi“ í Ziirich. Cíaðreyndir í málinu. I Dússeldorf-Flingern eru á þriðju hæð i leiguhúsi nokkru m. a. tvær eins herbergis íbúðir. Einn veggur skilur íbúðirnar að. I annarri íbúðinni bjó kona með syni sínum, þá 12 ára, og aldraðri móður. í hinni juggu göm- ul hjón. Kl. 1,1.30 að kvöldi miðvikudagsins 18. janúar 1950 vöknuðu ekki aðeins þeir, sem bjuggu í þessum íbúðum, heldur fólkið í öllu húsinu við feyki- legan hávaða. Eftir þvi, sem ibúar hússins skýrðu frá, var hávaðinn tengdur ákveðnum vegg i húsinu — veggnum, sem aðskildi fyrrgreindar tvær íbúðir. íbúum hvorrar ibúðar- innar um sig fannst sem slegið væri þungt högg á vegginn hinu megin, þó þannig ,að höggið virtist livíla með jöfnum þunga á honum öllum. Beggja vegna féilu myndir og munir af veggn- urn. Veggir hússins titruðu og hurðir skelltust. ‘Sams konar hávaði endur- tók sig sólarhring eftir sólarhring. Einkennandi fyrir hinn ])unga hávaða var það, að uni það bil, er honum lauk hverju sinni, komu venjulega þrjú snögg, en greinileg högg, hvért á fætur öðru. Stundum voru þau fleiri — allt að sex — en einu sinni aðeins citt bylmingshögg. Fyrstu næturnar stóð hávaðinn í um það hil þrjá stund- arfjórðunga. Eitt kvöldið hófst liann klukkustund fyrr en venjulega. Fjórðu nóttina byrjuðu lætin kl. 2.30 og hættu ekki fyrr en klukkan 7 um morguninn. Þessa nótt voru lögregluþjónar heila klukkústund við rannsóknarstörf í húsinu. Athuguðu þeir hvern krók og kima hátt og lágt og allt það, sem þeim datt í hug, að gæti valdið hinum kyn- lega hávaða. Látunum linnti ekki. meðan þeir voru við atluiganirnar. I næstu húsum gat enginn fundið eða heyrt neitt. Aðfaranótt 23. og 24. janúar var allt kyrrt, en næstu nótt ætlaði allt um koll að keyra. Lögregl- an var kvödd á vettvang með ýmis tæki. Ibúarnir fengu faglærða að- stoðarmenn til þess að athuga það, sem helst þótti nauðsyn á, t. d. veggi, skorsteina og allar leiðslur. Vatnspípa i kjallara liússins var endurnýjuð. í þeim vegg, sem hávaðinn virtist eiga upptök sin, voru engar leiðslur af neinni tegund. En allt að qinu hélt hávaðinn áfram. Þegar nýtt lögreglu- lið, slökkviliðsmenn og sérfræðingar vatnsveitunnar kömu á vettvang með alls konar tæki til þess að gera enn eina ýtarlega tilraun til þess að kom- ast fyrir orsökina, hætti hávaðinn. Fólkið varð engu nær. Allan febrúar og fram í mars hélt hávaðinn áfram næstum því á hverri nóttu. Þegar komið var fram í mars fóru höggin að verða þyngri og hávað- inn meiri — bæði á helgum dögum og virkura. Sprungur koniu í vegginn og á einum stað datt stykki úr steinin- um, svo að stór hola myndaðisl i vegginn. Ilún var 30 cm. í þvermál. 11. mars byrjuðu liöggin á gang- vegg, sem snerti fyrrnefndan vegg, sem aðskildi litlu íbúðirnar. Múrhúð- iii datt af, og fólkið varð að bera steinmylsnuna niður i fötuni. Slökkvi- liðið, sem kvatt var á vettvang, fyrir- skipaði, að veggurinn skyldi brotinn niður. Það kom á daginn, að svipað tiífelli hafði komið fyrir 1931, en þá hafði 30 cm. breið spilda á vegg nokkr- um molnað niður á gólf. í nokkurn tíma heyrðust engin högg, en síðan fór allt i sama horfið aftur, eirts og hin ósýnilegu máttarvöld vildu sína, livers þau væru megnug. Nú voru höggin hins vegar ekki kröftug og snögg og áður, heldur var um að ræða þrumu- kenndan hávaða, sem kom i bylgjum. Sprungur komu í veggi hér og hvar og múrhúðin féll í flekkjum úr loft- inu. Hinn 14. mars tóku högg að rriagn- ast í vegg, sem stóð ekki í neinu sam- bandi við fyrrgreindan vegg. Það var þunnur skilveggur milli tveggja sal- erna á miðhæð hússins. Á skammri stund molnaði hann niður upp í allt að því mannshæð. Nákvæm rannsókn leiddi ekkert í ljós um orsökina. Þeg- ar veggurinn hafði molnað frá gólf- inu, var liann brotinn niður og nýr veggur settur í. Hinn 17. mars hætti hávaðinn, og hafði þessi ófögnuður staðið í 2 mánuði. Ekýringartilraunir. 1. Eðlilegar skýringar: Hrekkja- hragð ungra eða aldinna virðist ekki koma til greina. Allur vitnisburður hnigur i þá átt og hin nákvæma rann- sókn lögreglunnar gerir það ólíklégt. Ilin líklega tilgáta, að hávaðinn staf- aði frá vatns- eða rafmagnsleiðslum, virðist einnig ósennileg eftir hinar nákvæmu athuganir. Hægt er að slá fram eðlisfræðilegri kenningu, þótt hún sc vafalaust langt sólt: Einhver vél í nágrenninu gat við ákveðinn snúningshraða sent frá sér loftbylgj- ur, sem veggurinn breytti í liögg og þrumukenndan hávaða. Það, sem i fljótu bragði gerir þessa tilgátu ó- sennilega, er það, að aðeins ákveðnir innveggir í húsinu titruðu mikið og sprungu. Eðlilegt fyndist mönnum, að útveggirnir yrðu fyrst fyrir loftsveifl- unum, en vísindamenn telja þó, að hitt geti átt sér stað. Að öllu athuguðu er þessi skýring þó mjög hæpin og ótrú- leg. Liklega verður að telja, að hcr hafi verið um , draugagang*' að ræða og skýringa verði að leita i sálrænum efnum. 2. Sálrænar skýringar: Þegar fyrir- hrigði verða ekki skýrð á vísindalegan eðlisfræðilegan hátt, þá er oft gripið lil þeirrar skýringar, að „draugur- inn“, ]). e. a. s. einhver framliðinn tjái sig í gegnum miðil á staðnum. Gengið er út frá því, að einhver vilji tjá sig í athöfnum á þeim stað, sem „draugagangurinn verður" — m. ö. o. sýna, að hann hafi komið á staðinn — en hann verði að gera það gegnum lifandi veru. Hinn framliðni leiti þvi líkama i miðli, sem óafvitandi helgar Framhald á bls. 14.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.