Fálkinn - 22.01.1954, Blaðsíða 2
2
FÁLKINN
Helíkopter-flugvélar hafa komið að góðu haldi við flutning slasaðs fólks af snjóflóðasvæðunum, og einnijí
hefir þetta farartæki reynst öðrum betra til þess að koma björgunarsveitum í skyndi þangað, sem þeirra hefir
verið þörf. Skíðamenn hafa einnig- yfirstigið hinar ótrúlegustu torfærur í björgunarstarfi sínu. Hér á myndinni
sést ein helikopter-flugvélin, sem send var frá Sviss til björgunarstarfa í Vorarlberg.
Snjóflóðin
í Ölpunum
Gífurleg snjóflóð liafa orðið í Ölp-
uniun að undanförnu, einkuni í Austur-
riki, og fjöldi manns hefir beðið bana,
en auk þess hafa hundruð manna
nieiðst alvarlega og misst heimili sín.
Hjálp hefir borist víða að og margir
liafa lagt líf sitt í hættu við hið tor-
sótta björgunarstarf. Mestu snjóflóðin
urðu í Vorarlberg i' vesturhluta Aust-
urríkis, þar sem þorpið Blons grófst
algjörlega í snjóskriðu. Þar björguð-
ust nolckrir cftir að hafa legið 2—3
sólarhringa grafnir undir skriðu.
Meðal þeirra voru tvær ungar stúlkur
og gamall bóndi. Mikill fjöldi skiða-
manna kom á vettvang í Vorarlberg,
m. a. frá Þýskalandi. Reyndust þeir
hinir duglegustu í björgunarstarf-
inu.
y.v.v.'.w.'i
Cáíið
nylonsokka yðar
endast hehningi
lengur.
Hér koma góð tíðindi um nylon-
sokka: Nylife er nýtt skolunarefni
til þess að varna að í þá komi
lykkjufallsrákir. Þær orsakast
tíðast af því, að þræðirnir hafa
hnökrað, og nylon dregst auð-
veldlega saman í hnökra sökum
þess að garnið er svo slétt og hált.
að lítið þarf til þess að þræðirnir
dragist til.
NYLIFE VERKAR SEM HÉR SEGIR: Þegar þér látið nylonsokkana
yðar niður í Nylife, sest á hvern þátt í þræðinum ósýnileg himna af
efni sem nefnist polycrol og gerir hann óhálan. Grípa þá þræð-
irnir hver annan og dragast ekki lengur auðveldlega til. Er því þar
með varnað að hnökrar myndist, og þá einnig lykkjufallsrákirnar.
Endast þá sokkarnir helmingi
lengur. * Nylife varnar gljáa, sem
ekki þykir fallegur. * Nylife lætur
sokkana falla betur aö fæti og
varnar því, aö saumarnir aflagist.
* Nylife getur engum skemmdum
valdiö á sokkum yöar og breytir
livorki lit né þéttleika yrjónsins.
UNTREATED
PROTECTED
REYNSLUPRÓF SÝNA
HVAÐA ÁHRIF
NYLIFE HEFIR:
Þetta sokkapar var þvegið á
venjulegan hátt, en aðeins annar
sokkurinn var skolaður í nylife.
Báðir voru þeir dregnir yfir gróf-
gerðan sandpappír við alveg sömu
skilyrði. Þessar myndir, sem ekk-
ert voru lagaðar til, sýna hve
furðulegur árangur varð.
Útvegið yður Nylife þegar í stað.
Ein flaska er nóg í 25 þvotta. Nylife
læst hjá lyfsölum og i búðum.
Nylife
Litlu munaði, að stórslys yrði, er skriða féll á farþegalest í Sviss fyrir
nokkrum dögum. Snarra'ði eimreiðarsctjórans afstýrði því, að farþega-
vagnarnir sjálfir lentu í meginþunga skriðunnar. Þegar eimreiðarstjórinn
sá skriðuna koma, setti hann neyðarhemlana á og stökk út um gluggann á
einu augabragði. Bjargaði hann þannig Iífi sínu naumlega, en eimreiðin
gjöreyðilagðist. Farþegana sakaði ekki, því að farþegavagnarnir lentu að
mestu leyti utan við skriðuna, vegna þcss, hve eimreiðarstjórinn var lljót-
ur að liemla.
Vörn sem dugði.
Frú Annie Horski í Savannah lög-
sótti Goca-colafirmað jjar á staðnum
og krafðist 20.000 dollara í bætur fyrir
]jað að hún hafði fundið kakkerlakka
í flösku af jjessum ágæta tískudrykk!
Verjandinn hélt þvi fram að frú
Horski hefði ekki getað orðið mcint nf
þessu skordýri, þó það hefði flotið
ofan i hana, og þessu til sönnunar tók
hann kakkcrlakka úr vasa sinum og át
hann fyrir augunum á dómaranum.
Þetta var tekið gott og gilt og frú
Horski féklc enga dollara.
— Ég veg alltaf orð mín áður en
ég tala.
— Já. Og þú dregur ekki af vigt-
inni.
Hótelstjórinn sá skóburstarann
liggja á hnjánum fyrir utan eitt
gestaherbergið og vera að bursta skó.
— Veistu ekki að þú átt að bursta
skóna gestanna niðri i kjallara? sagði
hann byrstur.
— Jú, það veit ég vel. En Skotinn
þarna inni vill ekki sleppa reimunum.