Fálkinn - 22.01.1954, Side 4
4
FÁLKINN
Clark Gable og konurnar hans
Clark Gahle hefir verið heppinn í leik — en óheppinn i ástum og einka-
lífi. Milljónir kvenna mundu ekki geta hugsað sér neitt yndislegra en fá
að verða konan hans. En spyrjið þær sem reynt hafa.
I. GREIN.
Fyrsta hjónabandið.
Clark Gable kvæntist i fyrsta sinn
1924. Brúðurin var 17 árum eldri en
hann, hún stóð á fertugu en hann var
23. ára. Hún hét Josephine Dillon og
kenndi leiklist og Clark varð nemandi
liennar. Þannig kynntust þau. Henni
fannst hann hafa alla þá kosti til að
bera, sem gætu gert lífið yndislegt,
og hann þóttist finna að liún hefði lífs-
reynsluna sem hann vantaði. En þar
var varla á öðru von en þetta færi
illa. Enda skildu þau fljótt.
Clark Gable er fæddur i Hopedale
— Vonardal — í gömlu bjálkahúsi frá
tíð hinna fyrstu landnema í „The
Middle West“. Þar ólst liann upp i
fásinni og aðeins 15 ára fór hann að
heiman til að freista gæfunnar. Það
hefir tekist svo, að nú er hann kon-
ungur í kvikmyndaríkinu. Og aðal-
gatan í fæðingarbæ lians, Hopedale,
heitir „Clark Gable Avenue".
En gæfuna liefir liann ekki fundið
enn. Hann hefir ekki enn fengið að
njóta ])ess heimilislífs sem hann þráir,
og þó hefir liann kvænst fjórum sinn-
um. Hann er fyrir skömmu skilinn
við síðustu konuna, Sylvíu.
Hverjuni er um að kenna? Honum
eða konunum? Margir velta þessu
fyrir sér, bæði vinir lians og ýmsir
af þeim mörgu, sem aðeins þekkja
hann úr kvikmyndunum. Og hann
hefir spurt sjálfan sig að þessu sama.
En til ])ess að finna svar verður
að skyggnast aftur i tímann, til fyrsta
hjónabandsins.
hún ekki að vænta neinnar hjálpar
og henni væri hollast að reyna að
gleyma ættarnafninu sínu. Dyr heim-
ilisins yrðu henni lokaðar framvegis.
Hún trúði á Clark.
En Josephine liafði alls ekki hugsað
sér að knýja á dyr foreldra sinna sem
iðrandi syndari. Hún liafði séð Clark
fyrst er hún var að stjórna hátíða-
leiksýningu i Oregon og lieillaðist
fór hún með hann til Los Angeles
til að kenna honum.
Samstarf er vel til þess fallið að
nálægja tvær sálir •— og í þessu til-
felli kom fleira til sögunnar. Josep-
hine þóttist finna hjá Clark Gable allt
það, sem gerði lífið einhvers virði og
Clark þóttist auðgast af Hfsreynslu
Josepliine. Hann gat talað við liaha
á annan hátt en við kunningjana, án
þess að finna til minnimáttarkenndar.
Clark Gable og fyrsta konan hans, Josephine Dillon, sem var 17 árum
eldri en hann.
Josephine Dillon var fertug, eins
og fyrr segir. Hún var af mikilsmetnu
og ríku fólki. Faðir hennar var dóm-
ari í Hollywood og bræður hennar
voru Hka í virðingarstöðum. En það
gekk alveg fram af fjölskyldunni
þegar Josephine, sem var með allan
hugann í listum, og hafði aldur til
að vera orðin ráðsett manneskja, kom
heim og sagðist vera gift grænjaxli,
sem ekki átti nokkurn einasta dollar
og hafði undanfarið unnið við bor-
vélar á ohusvæðum. Fjölskyldan lét
Josophine vita að héðan i frá þyrfti
af leiknum. Hún þóttist viss um, að
þarna vær meira leikaraefni en allir
hinir, sem hún var að leiðbeina, Dag-
lega fékk hún heimsókn ungra pilta
og stúlkna sem vildu komast að leik-
húsum, og hún lijálpaði þeim eftir
bestu getu. En Clark Gable varð hún
að lijálpa. Hann mátti ekki standa
við borunarturnana lengur. Það var
ekki aðeins ótvíræð leikgáfa hans sem
réð þessu og sannfærði hana. Hún
vildi trúa á hann — án þess að hún
vissi fyrst í stað hvers vegna. Og svo
Það var eitthvað annað en að tala
við jafnöldrur sínar!
IV2 dollar í dagkaup.
Gablehjónin leigðu sér lítið hús.
Þau voru sæl þó að þau hefðu úr
litlu að spila, þó að margar vikur
kæmu eftir eina feita. Og þó að sjáan-
legt væri að Clark yrði að bíða tals-
vert lengi eftir frægðinni. Josepbine
tókst ekki að útvega honum annað en
annars flokks hlutverk á smáleikhús-
unum. Og Clark hafði eiginlega Htið
gagn af henni, því að leikhússtjórarnir
tóku ekki mark á meðmælum hennar,
þvi að hún var ástfangin.
Eftir margar árangurslausar tilraun-
ir fékk hann statistastarf hjá kvik-
myndafélagi fyrir venjulegt kaup —
hálfan annan dollar á dag og ókeypis
fæði, og þakkaði fyrir. En smám sam-
an fór hann að reyna fyrir sér upp
á eigin spýtur og hætti að treysta á
það sem Josephine sagði og gerði. Og
hún gekk þess ekki dulin að hann
var farinn að ganga sinar eigin leiðir.
Hinn 4. desember 1930 undirritaði
Clark Gable loks sanining um fyrsta
virkilega blutverkið sem hann fékk
hjá Metro-Goldwyn-Mayer. Viku síð-
ar var sex ára brúðkaupsafmæli
Josephinu og hans. Clark kom heim
með blóm og á yfirborðinu virtist allt
vera óbrcytt. En Josephine lél ekki
blekkjast. Hún fann að l)etta var að-
eins fyrir siðasakir gert.
Þetta sama kvöld spurði hún, eins
og af tilviljun: „Heldurðu ekki, Clark,
Clark með Hedy Lamarr.
að þér væri fyrir bestu að vera laus
og liðugur?"
Nokkrum mánuðum seinna voru
þau skilin, og Josephine gerði ekkert
til að halda í hann. Það varð ekkert
hneykslismál úr þcim skilnaði. Við
blaðamennina, sem gerðu aðsúg að
Josephine til að fá hana til að segja
eitthvað ljótt um Clark, sagði hún
aðeins: „Við liöfum skilið með besta
samkomulagi. Ég hefi ekkert að áfell-
ast Clark fyrir. Hjónaband okkar
hefir verið gott, en við teljum ba:ði
hyggilegast að slíta því áður en það
gæti orðið slæmt.
Þegar við giftumst hefir lionum
vafalaust ekki dottið í hug að slitna
mundi upp úr hjónabandinu. En ég
þekki hann að því að gera alltaf ])að
sem honum dettur í hug.
Cary Cooper og Itonald Colman.
Hann kvæntist aftur skömmu eftir
að hann hafði fengið skilnað við
Josephine. Nýja konan hét Bhea Lang-
ham og tók mikinn þátt í samkvæmis-
Hfinu í Texas. Hún var „aðeins“ ell-
efu árum eldri en Clark og orðin
amma nokkrum sinnum, en ekki var
hægt að sjá það á henni. Hún var ekki
ósvipuð Josephine en miklu fjörugri
og andríkari. Clark lærði mikið af
henni og hún heflaði af honum van-
kantana.
Hann leigði hús Gretu Garbo í
Chevy Chase, en þcgar fram i sótti
sat frú Rhea oftar og oftar ein heima,
])ví að Clark sat löngum hjá nágrönn-
um sínum, Gary Cooper og Ronald
Colman og talaði um veiðar, byssur,
kappsiglingar og hnefaleik.
En Rhea hafði hugsað sér hjóna-
band sitt og Clarks með öðru móti,
og Clark viðurkenndi fyrir sitl leyli
að þegar lijón befðu jafn ólík áhuga-
mál og þau, væri ekki hægt að byggja
nema ótrygga brú milli þeirra þó að
þau væru öll af vilja gerð.
Þegar Clark kom heim úr Suður-
Anieríkuferðalagi 1935 staðfesti hann
orðróminn, sem kominn var á kreik:
Rhea Langham og liann ætluðu að
skilja. En þessi hjúskaparslit gengu
ekki eins greitt og í' fyrra skiptið. Að
visu var Rhea engu síður áfjáð en
hann að fá skilnaðinn, en hún vissi
að hann var áfjáður líka og fannst
hann geta borgað dálitla fiilgu til að
fá ósk sína uppfyllta. í fjögur ár —
meðan Clark var sihækkandi stjarna
og lék á inóti Jean Harlow, Gretu
Garbo, Joan Grawford og Claudette
Colbert — hélt reipdrátturinn áfram
út af skilnaðinum og harðnaði enn
meira er ]>að vitnaðist að Clark ætlaði
að kvænast konunni sem hann hefir
elskað mest: Carole Lombard!
í næsta blaði: Clark og Carole
Lombard giftast. Hún ferst í flugslysi
og hann gerist hermaður.