Fálkinn - 19.08.1955, Page 4
4
FÁLKINN
Gary Cooper — eins og hann er sjálfur.
KVENNAGULLIÐ
Qnry Cooper
T'\AGINN út og daginn inn standa
langar biðraöir fyrir utan kvik-
myndastöðvarnar í Hollywood. Það
eru hin svonefndu „extras“ — þolin-
móður og þrálátlir skari, setn bíður
eftir fyrsta tækifærinu til að fá að
vera með í kvikmynd. Vesældarlegur
hópur skjátulegs fólks, sem vinnur
sér inn fimm dollara þá sjaldan það
fær að vera með bóp, setjast á Iiest-
bak og ríða nokkra faðma ... fá ofur-
litla nasasjón af ævintýrinu, sem í
kvikmyndunum felst ... Það er eins
og það þreytist aldrei á að bíða. Því
að stundum kemur það fyrir að einn
af þessum mörgu dettur í lukkupott-
inn og verður heimsfrægur. Þess vegna
er um að gera að bíða og vona.
En þeir eru fáir, sem vinna í þessu
happdrætti. Samt eru það sögurnar
af þessum fáu, sem valda þvi, að fjöld-
inn bíður við dyr ævintýrsins ár eftir
ár. Sögur eins og sú, sem gerðist af
Gary Cooper fyrir þrjátiu árum. Þá
var hann einn af þeim sem beið í
stóra hópnum. Hann tók þátt í upp-
þotum og götubardögum, var einn í
þeim nafnlausa fjölda, sem myndar
umgerð um hina fáu útvöldu, og vann
fyrir sultarkaupi í mörg ár.
Einu sinni þurfti Fox Film að nota
hesthúsmann í Tom-Mix-mynd.
— Ég gaf mig fram, segir Gary. —
Og svo borguðu þeir mér 10 dollara á
dag, fyrir að ríða hesti dálítinn spöl
og detta af baki — hvað eftir annað
og æ ofan í æ. Tom Mix hefir tæp-
lega vitað, að ég var með í þessari
mynd. En ég bafði gætur á honum.
Hann sat betur á liesti en flestii
menn, að öðru leyti var lítils krafist
af honum. Mér var sagt að hann fengi
17.000 dollara á viku. Og það voru
fleiri en ég, sem fóru að velta þvi
fyrir sér, hvort við gætum ekki gert
þetta alvog eins vel og Tom Mix.
Þetta var árið 1925. Sama árið
tók leikstjórinn Hans Teisler — hann
var sérfræðingur i kúrekamyndum —
eftir þessum háa og herðabreiða unga
manni, og datt í img að hann gæti
verið góður í „wild-west“-hlutverk.
Þannig varð Gary Cooper kúreka-
hetja.
Gary Cooper var skapaður í svona
hlutverk. Hann var fæddur í bænum
Helena í öræfunum í Montana, árið
1901. Og í æsku hafði Iiann jafnan
verið á preríúnum. Síðan liafði hann
gengið nokkur ár í skóla í Englandi.
Og svo fór hann heim á búgarð fjöl-
skyldunnar aftur. Hann var alltaf á
hestbaki. Gary elskaði útilifið — og
gerir enn.
Hann gelck nokkur ár í háskóla og
gerðist svo teiknari hjá btaði þarna
á staðnum. Þegar liann liafði dundað
við þetta í fimm ár fannst honum að
hann mætti til að leggja land undir
fót og freista gæfunnar. Og svo fór
hann til Los Angeles og ætlaði að
gerast blaðamaður. En ritstjórarnir
voru ekkert hrifnir af þcssum út-
blásna preríustrák og því sem liann
afrekaði með blýantinum.
ÚR AUGLÝSINGUM
f KVIKMYNDINA.
Coop, sem hann var kallaður, lagð-
ist ekki svo lágt að skrifa föður sínum
og biðja um peninga. Hann hafði farið
að heiman til að sýna að Iiann væri
sjálfbjarga! Svo réðst hann sem aug-
Iýsingasafnari til blaðs og jafnfram!
innheimti hann reikninga. Þá frétti
hann af því, að kvikmyndafélögin
borguðu geypikaup og fór þangað. í
nokkur ár svelti hann heilu hungri
sem statisti, en fékk þó smáhlutverk
við og við.
Loks lét Samuel Goldwyn hann
leika kúrekahlutverk i mynd sem hét
„The Winning of Barbara Worth“ og
borgaði honuin 50 dollara á viku. Hann
lék á móti Vilmu Banky, og það gerði
gæfumuninn. Næst fór liann til
Paramount og þar fór vegur hans vax-
andi og það orð komst á, að hann
gæti leikið alls konar hlutverk. Þar
lék hann m. a. með Clara Bow. Þetta
var 1927.
N'æstu árin lék liann í fjölda kvik-
mynda og hlífði sér ckki. í „Marokko"
(1930) lék liann með Marlene Dietricli,
sem elti liann berfætt um eyðimörk-
iria. Árið 1933 lék hann i „Farewell
to Arms“ eftir Hemingway og 1935 i
„Synir Englands“, i „Marco Polo 1938
og sama árið í „Áttunda kona Blá-
skeggs“. Og þegar hann fékk að leika
í „The Devil and the Deep“ með
Charles Laughton og Tallulali Bank-
head, var það talið sönnun þess, að
liann væri kominn í hóp hinna fáu
útvöldu.
FÉ OG FRÆGÐ.
Gary Cooper fékk fyrstu heiðurs-
verðlaunin 1941. Þau voru veitt hon-
um fyrir leik hans sem „Sergeant
York“ í samnefndri mynd. Tveimur
árum siðar lék liann í „For Whom
the Bells Toll“ eftir Hemingway, sem
gerist í spönsku borgarastyrjöldinni
1930—39. Þar lék hann ameríska
sjálfboðaliðann Robert Jones, en
Ingrid Bergmann sænslui stúlkuna
Maríu. Þau urðu mjög vinsæl í þess-
um hlutverkum og léku saman aftur
í „Saratoga" (1946). Og 1952 fékk
Cooper Oscarverðlaunin fyrir „Higb
Noon“ (Sjeriffinn), sem þykir hans
besta leikafrek.
Ein af síðustu myndum Coopers ei
„Vera Cruz“, sem United Artists hefir
tekið. Þar leikur liann ævintýramann
frá Mexico, á móti einkennilegri leik-
konu, sem heitir Sarita Montiel.
„Sterka og dula karlmennið“ er
Gary Cooper jafnaðarlega kallaður
Að ytra útliti er hann fullkomin fyrir-
mynd þess, sem Amerikumönnum
finnst þeir eigi að vera. Hann er svo
eðlilegur og ótilgerður í öllum hlut-
verkum. Þegar hann er á hestbaki er
líkast og liann og hesturinn séu eitt
Áhorfandinn trúir þvi að liætturnar
sem hann sést í á hestbaki, séu jafn
alvarlegar og þær sýnast, vegna þess
að hann trúir því að Gary Cooper
sé það, sem hann sýnist vera.
Og þetta niun vera skýringin á þvi
að Cooper hefir tekist að halda fullum
vinsældum jafn lengi og raun ber
vitni, eða í 30 ár, og vera einn í hópi
hinna tíu vinsælustu kvikmyndaleik-
ara i heiminum! Cooper hefir leikið
i kringum 80 myndum, og mönnum
telst svo til að hann hafi dregið að
þessum myndum inngangseyri, sem
tiemur 250 milljón dollurum. Það mun
vera lieimsmet upp á sína visu, og
því ekki óeðlilegt að kvikmyndafé-
lögin berjist um liann.
ORÐFÁR MAÐUR.
Það myndast jafnan þjóðsögur uní
frægu leikarana í Ilollywood. En í
því tilliti er Gary Cooper undantekn-
ing. Heimilislíf hans og hjónaband er
lika einstakt í sinni röð í kvikmynda-
borginni. Cooper hefir verið kvænt-
ur sömu konunni í 22 ár, og lijóna-
bandið er farsælt. Frúin heitir Veron-
ina Balfe og var bæði rík og falleg.
Það var vegna konunnar, sem Gary
Cooper varð greið gatan inn í sam-
kvæmislífið á hærri stöðupi, ekki að-
eins i Beverley Hills heldur líka í
London og Paris og við Rivierann.
Það væri rangt að segja, að Gary
Cooper væri skemmtilegur maður í
viðtali. Það er erfitt að toga upp úr
honum nokkurt orð. Allir sem til
þekkja, hafa orð á þvi hve þegjanda-
legur hann sé. Hér er dálítil saga um
það:
Nýlega liittust Gary Cooper og liinn
duglegri skapgerðarleikari Walter
Brennan fyrir utan BKO Radio Studio.
Þeir höfðu þekkst síðan forðum, að
þeir löptu dauðann úr skel sem stat-
istar i Hollywood.
Nú keniur Cooper slangrandi niður
götuna og kemur auga á Brennan, sem
Cooper-fjölskyldan. Frú Veronica Balfe Cooper og Gary Cooper, sem hafa
verið gift í 22 ár. Dóttir þeirra er 17 ára og heitir Maria. Hún ætlar að leggja
fyrir sig lífræna efnafræði.