Fálkinn - 19.08.1955, Side 10
10
FÁLKINN
VitÍd þér...?
að radium-geislun getur gerbreytt
jurtagróðrinum?
Við tilraunir í Ameriku, þar sem
jurtir höfðu verið gróðursettar í
hringi, kringum staur, sem radiumút-
geislun kom frá, kom það i ijós, að
jurtirnar næst staurunum drápust, en
þær fjarlægustu urðu ekki fyrir álirif-
um af geislunum. En þar á milli náðu
jurtirnar óeðlilega miklum vexti, og
sumar fengu alveg nýja eiginleika. —
Tilraununum verður haldið áfram, að
reynt að breyta jurtunum í þá átt,
að þær verði til meiri nytja en áður.
að flugvélin er öruggara en nokk-
uð annað samgöngutæki?
Hagskýrslur sýna að banaslysum
í flugi fer sífækkandi. Árið 1954 flugu
flugæélögin 51.200 milljón farþega-
kílómetra, og í öllu þessu flugi fórust
aðeins 427 manns, eða sem svarar
ein manneskja á hverja 120 milljón
farþegakílómetra. Að meðaltali ætti
maður því að geta flogið 120 milljón
kílómetra slysalaust, eða sem svarar
3000 sinnum kringum jörðina.
að í Bandaríkjunum eru 51 mill-
jón talsímatæki í notkun?
En Amerikumenn hafa fleira, sem
þeir geta hlustað á heima hjá sér. í
Bandaríkjunum eru til dæmis 35 mill-
jón grammófónar, 117 milljón út-
varpstæki og 30 milljón sjónvarps-
tæki. — Hvenær fær aumingja fólk-
ið næði til að hugsa?
PÍNA, PUSI OG SIGGI SVARTI
1. mynd: Sjáðu, Joko. Þarna eru aparnir. Viltu ekki vera með þeim? —
2. mynd: Jú, það verður gaman. En við skulum spyrja manninn fyrst. — 3.
mynd: Má iiann Joko vera liérna hjá hinum öpunum. — Já, hann má það. —
4. mynd: Dýravörðurinn lokar Iiann inni hjá hinum öpunum. — Þetta er
spennandi! — 5. mynd: Aparnir horfa á hann. Svo kallar einn: — Godajinn,
Joko! Komdu! — G. mynd: Og svo fara þeir að leika sér. — Hérna finnst
Joko gaman að vera. — 7. mynd: Vertu sæll, Joko. Nú verðum við að fara.
En við komum aftur. — 8. mynd: Nú fer vel um Joko. :— En hvað eigum við
að gera við hana Uglu.
Churchill hefnir sín.
Þegar Winston Churchili varð átt-
ræður í fyrra var honum gefið mál-
verk eitt mikið af sjálfum sér, sem
hinn frægi málari Sutherland liafði
málað. Mynd þessi hefir vakið miklar
deilur og ýmsir telja hana hið mesta
afskræmi, og andlitið á Churchill lfk-
ast því, sem sir Winston liefði gert
í buxurnar. Sjálfur hefir hann ekki
viljað segja álit sitt á myndinni. En
hann kvað hafa boðist til að mála
mynd af frú Kathleen Sutherland,
konu málarans, og er því spáð að hún
verði ekki sem frýnilegust. — Churc-
hill hefir iðkað málaralist í frístund-
um sínum áratugum saman, og er
talinn góður landslagsmyndamálari.
I ! i • ! : !'
Hagfræðileg rannsókn hefir leitt í
ljós að 36% af öllum ibúum Frakklands
fara aldrei i kvikmyndahús, þó að
Frakkar framleiði sjálfir listrænustu
myndir í heimi. Þeir vilja heldur nota
peningana i mat og vín. — En að með-
altali horfa Frakkar á níu kvikmyndir
á ári, en Englendingar hins vegar 25.
Marlene Dietrich var í vetur ráðin
til þess að syngja vísur á dýrum
skemmtistað í Las Vegas. Fyrir fram-
an hana var loftsnerill, sem þyrlaði
pilsi hennar og hárinu, og þótti þetta
hin besta skemmtun. En eftir tvö
kvöld lagðist hún veik í kvefi. Hún
þoldi ekki allan vindganginn.
í námu í Brasiliu hefir fundisl
ametyst, sem missir hinn einkennilega
fjólubláa lit og verður grænn, þegar
hann kemur undir bert loft. Steinn
þessi er mjög sjaldgæfur ennþá, og
þar af leiðandi afar dýr.
Frú Mobbs frá Taree, sem er þorp
fyrir utan Sydney, hefir fengið skiln-
að frá manninum, eftir að hún liafði
kært hann fyrir eftirfarandi: Hann
hafði barið hana með sóp, af því að
hún skammaði hann fyrir að sparka
í kúna þeirra. — Barið hana með
skóflu, fyrir það að hesturinn þeirra
hafði slegið hann. — Lamið hana
margsinnis í hausinn með axarskafti,
í vonsku út af því, að drifreimin hljóp
af hverfisteininum hans. — Sparkað
í liana framan á legginn af því að
honum fannst liún stýra dráttarvél-
inni klaufalega. — Hún hafði tekið
öllu þessu með þögn og þolinmæði,
en þegar liann gaf henni langt nef
og kallaði hana „relluskjóðu" fór hún
heim til móður sinnar.
Það er engin synd að kyssa, segir
hæstirétturinn í Wien. Piltur nokkur
hafði verið kærður fyrir að lcyssa 14
óra telpu, að því er virtist gegn vilja
hennar. Málið hefir gengið alla leið
til liæstaréttar og er úrskurður lians
ó þessa leið: Að kyssa- stúlku getur
ekki talist refsivert athæfi. Ráðandi
venja hefir gert kossinn friðhelgan
og hann er einn þáttur í þjóðlífinu.
— Láttu ekki á neinu bera, — hún
mamma heldur að það sé hún sem
stýrir!
... og hérna er ein með söng ferju-
mannsins á Volga.
... og þegar ég hafði sett bílinn
saman aftur hafði ég átta smástykki
afgangs ...