Fálkinn - 06.04.1956, Blaðsíða 5
FÁLKINN
5
frelsisdagurinn 5. maí 1945, en ekki
slapp Amalienborg heldur í það skipt-
ið. Var barist i tvo daga. Eftir á
fundust þýskar byssukúlur i þakinu
yfir svefnherbergi prinsessanna. Að-
eins yngsta barnið, Anne-Marie prins-
essa, sem fæddist 30. ágúst 1946, hefir
eklci upplifað hvað fyrir getur komið,
jafnvel á konunglegu heimili, þegar
erlendur ofbeldisher veður uppi í
landinu. Systur hennar eru styrjaldar-
börn en hún liefir aðeins séð heimili
sitt og foreldra á dögum friðar og
cndurreisnar.
Konungaskiptin í apríl 1947 höfðu
vitanlega í för með sér gagngerðar
])reytingar á tilveru hinna þriggja
konungsdætra. Þegar Frederik kon-
ungur og Ingrid drottning voru sest
í hásætið, byrjaði ævikafli, sem hafði
systrunum margt nýtt að bjóða. Fram
til þessa hafði fjölskyldan haft umráð
yfir einni höllinni á Amalienborg,
sumarbústaðnum í Graasten og svo
Jagtgaarden i Trend við Limafjörð á
Norður-Jótlandi, sem var einkaeign
krónprinshjónanna. Nú bættist við
Fredensborg-höll á Norður-Sjálandi,
höllin sem konungi hafði þótt vænt
um frá yngri árum, og honum finnst
yndi að búa i. Og ef til vill var það
þó allra mikilsverðast, að sjóliðsfor-
inginn Frederik konungur fékk nú
konungsskipið „Dannebrog" til fullra
umráða. Við þetta bættist svo liin
jótska sumarhöll Christians konungs
og Alexandrine drottningar, Marselis-
borg við Aarhus, sem ávallt er i eigu
hins ríkjandi konungs.
Jagtgaarden í Trend var brúðkaups-
gjöf dönsku þjóðarinnar til Frederiks
konungs og Ingrid drottningar. Jörðin
er 1000 tunnur lands, skógur og akur,
og er sá dvalarstaður fjölskyldunnar,
sem henni þykir vænst um. Um þessa
eign stendur svo sérstaklega á, að þar
getur konungur gert livað sem hann
vill við húsakynnin, skógana og gras-
elndið. Allar hinar hallirnar eru rík-
iseign, nema Marselisborg, og rikið
afhendir þær „konungi til afnota“
við hver konungaskipti. En Trend er
einkaeign konungsins.
Það er mjög auðvelt að skilgreina
daglegt líf konungsfjölskyldunnar.
Frederik konungur er „köbenhavner“
í húð og hár, og Ingrid drottning er
fyrir löngu orðin það líka. Hún er
orðin dönsk í öllu sínu dagfari. Jafn-
vel er hún orðin ímynd dansks glað-
lyndis og gamansemi. Hún mundi,
eigi síður en konungurinn, eigi geta
hugsað sér að búa annars staðar en
í Amalienborg. En þegar vorar kveður
fjölskyldan höfuðborgina. í lok
aprílmánaðar flytur hún til Frcdens-
borgar á Norður-Sjálandi og dvelur
þar þangað til í lok júní. Og þá tekur
við hin eiginlega sumardvöl i suður-
jótska bústaðnum í Graasten-höll, og
henni likur ekki fyrr en í kringum
1. september. Það scm eftir er hausts-
ins er aftur dvalið í Fredensborg, en
um miðjan nóvember kemur fjölskyld-
an aftur til Kaupmannahafnar. Þann-
ig er vorið og liaustið Norður-Sjá-
lands en sumarið Jótlands. En hér
er ekki sögð öll sagan. Því að öll
Danmörk er dvalarstaður konungs-
hjónanna yfir sumarið, engum lands-
hluta er gleymt. Það liefir smám sam-
an orðið föst regla, að konungshjón-
in dvelja um jólin, páskana og hvíta-
sunnuna í Trend, en oftar koma þau
við i Jagtgaarden biæði sumar og
haust.
Og svo kernur það sem mest er um
vert — konungsskipið. í tíð Christians
konungs fór „Dannebrog" reglulega
ínilli Marselisborgar og Kaupmanna-
hafnar. Nú er það sjóliðsforingi, sem
er æðsti yfirboðari á konungsskipinu.
Frederik aðmíráll er oft á stjórnpall-
inum sjálfur, og hann hefir ekki
gleymt því sem hann lærði á sínum
tíma er hann var yfirmaður á tundur-
spilli, það sýnir hann oft með slyngri
stjórn er skipið er að athafna sig í
höfn. Aldrei í tíð danskra konunga
hefir hið danska konungsfley siglt
jafn langar leiðir og síðan 1947, er
F’rederik konungur tók við stjórninni.
Venjulega siglir „Dannebrog“ ekki til
Konungshjónin og prinsessurnar þrjár.
Amalienborg.
annarra landa, að undanteknu því að
skipið kemur oft til Helsingborgar,
er konungsfjölskyldan bregður sér til
„Sofiero“, sumarhallar sænsku kon-
ungshjónanna, til þess að heimsækja
föður Ingrid drottningar. Þó fór
„Dannebrog“ í ferðalag um Eystra-
salt og sænska skerjagarðinn 1953 og
kom við á 01and og Gotland. F.n í
úthöfin fór skipið 1952, er Frederik
konungur sigldi til Færeyja og Græn-
lands i heimsókn til stærstu eyjar
landsins — og heimsins. Droltning>-
in var i þeirri för en fór flugleiðis.
Konungurinn heimsótti Grænland sem
ungur maður með foreldrum sínum
fyrir 35 árum. Þegar liann kom í
annað sinni þekktu elstu Grænlend-
ingar hann vel og mundu eftir hon-
um. Á þeim niu árum, sem liðin eru
síðan konungur tók við rikisstjórn-
inni hefir konungsfjölskyldan lieim-
sótt að heita má hvern einasta fjörð
í Danmörku og hverja smáey í hinu
danska eyjalandi. Ef „Dannebrog"
kemst ekki inn á höfn er báti skotið
út og liásetarnir róa síðasta spölinn.
Konungurinn liefir gaman af að koma
i heimsóknir „óofficielt“ og án þess
að gera boð á undan sér. Ivonungs-
fjölskyldan „kommer helt ind pá
livet af menneske", eins og konungur
hefir sjálfur komist að orði. Bilið
milli konungs og þjóðar hverfur, og
það er talað um málin umbúðalaust.
Hálfan mánuð af hásumrinu er
„Dannebrog" algerlega lieimili kon-
ungsfjölskyldunnar. Þá er Graasten-
höll lokað, svo að þjónustufólkið geti
fengið sumarfrí, og kunungur, drottn-
ing og prinsessurnar dvelja á skips-
fjöl. Engin drottning hefir séð jafn
mikið af Danmörku og Ingrid drottn-
ing hefir gert, og það getur hún þakk-
að konungsskipinu. Að drottningin
hefir á svo stuttum tíma kynnst ölhi
landinu og öllum stéttum þjóðarinnar,
stafar fyrst og fremst af því að mað-
urinn hennar er sjóliðsforingi. Og
þetta er i fyrsta skipti í sögunni, sem
þrjú konungsbörn hafa boðið hörnum
viðs vegar á Jótlandi góðan daginn,
jafnvel i litlum, gleymdum afkimum
og á smáeyjum, sem konungar,
droltningar og prinsessur koma vcnju-
lega ekki á. [
Það er ekki mikill munur á dönsku
prinsessunum þremur og öðrum
dönskum börnum, að undanteknum
þeim eðlilega mun sem ávallt hlýtur
að vera. Þetta stafar fyrst og fremst
af þvi, að Fred;erik konungur og
Ingrid drotlning hafa frá öndverðu
verið sammála um að prinsessurnar
séu aldar upp eftir nákvæmlega sömu
regluni og önnur dönsk börn. Eftir
stutta barnaskólavist á Amelienborg,
þar sem ýmsir jafnaldra kunningjar
úr vinahóp foreldranna fá tilsögn með
þeim, eru þær látnar ganga á „Zahles
Framhald á bls. 14.