Fálkinn - 04.05.1956, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
bæta ofan á þá. Látum okkur taka
tillit til þess, sem barnið óskar sjálft.
Næst kom að Kelly dómara. ÞaÖ
fór þys um salinn áöur en hann byrj-
aSi. Álieyrendur voru auSsjáanlega aS
livísla um hvernig þetta mál mundi
fara.
Toni starði á nýja manninn, sem
átti aS ráða örlögum hans. Og svo
tók Kelly til máls, hann talaði stutt
og fræðilega og röddin var ekki óvin-
gjarnleg.
■— Striðið lætur eftir sig srnánar-
bietti, sem aldir þarf til að fjarlægja,
og þvi miður geturn við ekki bætt úr
öllu því ranglæti, sem framið liefir
verið. Það er enginn hægðarleikur
að fjarlægja barn frá fólki, sem það
hefir talið föður sinn og móður. En
hins vegar eiga börn miklu hægara
með að venjast breytingu en fullorðið
fólk. Þess vegna er full ástæða til að
halda, að drengurinn mundi von bráð-
ar venjast nýja landinu, sem hann er
eiginlega ættaður frá, og sem hann
er tengdur böndum blóðsins. Hann
í'ær að sjá margt nýtt. Hann eignast
nýja vini og áður en varir verður
hann jafn nákominn konunni, sem er
hin rétta móðir hans, og hann er fóst-
urforeldrum sinum núna. Þess vegna
tel ég að Ivan eigi að fara til Jugo-
slavíu með hinni réttu móður sinni.
Spennan meðal áhorfenda óx. Nú
réð skoðun þriðja dómarans úrslit-
unum.
Það varð ekki annað séð en að kon-
urnar tvær létu sig engu skipta það
sem fram fór, þó að úrslitin mundu
gereyða Iífsgæfu annarrar þeirra. Þær
sátu báðar álútar með hendurnar i
fanginu, en hugur þeirra hvarflaði
milli fortiðarinnar og nútímans.
McGarry dómari var alvarlegur á
svip er ihann stóð upp. Ilann vissi það
sjálfur, að orð hans voru úrslitaorð
í málinu. Allir einblíndu á hann.
— í vandasömum málum kemur það
oft á daginn, að sannleikur er ofur
einfaldur — svo augljós að ekki þarf
að rökræða hann. Hér eru móðir og
sonur, tengd böndum blóðsins. Barnið
er líka hluti af látnum föður sínum,
sem li'fir áfram í þessu barni. Móðir
sér syni sinum farborða meðan iiann
er barn. En þegar hann er kominn
til vits og ára kenmr til hans kasta
að hjálpa móSur sinni og vernda hana.
Á þessu augnabliki kynni það að þykja
eðlilegast, að drengurinn fengi að vera
hjá fósturmóður sinni, af því að hún
hefir aliS hann upp, annast um hann
og verið stoð hans og stytta. En hann
er orðin tiu ára, og bráðum keniur
sú tíð að hann þarf ekki að njóta ást-
ríkis og umönnunar heldur sýna öðr-
um það. Ef rétturinn afræður að Ivan
Slavko hverfi lieim til móður sinnar,
þá leggjum við skyldurnar við móð-
urina á lierðar syninum, fremur en
við leggjum móður á herðar ábyrgS-
ina á syni sínum. Ég er sannfærður
um, að hún er hætt að líta á hann
eða hugsa til hans, sem smábarns. Og
ég er enn sannfær.Sari um, að vegna
þess að hann hefir notið svo mikils
ástríkis hjá fósturforeldrum sínmn
muni 'hann vera fær um að sýna móS-
ur sinni ástríki — henni sem þarfnast
þess svo mjög, eftir allt, sem hún hefir
orðiS að líða ...
Inga tók höndunum fyrir andlitið.
En þrátt fyrir sársaukann og harminn
fannst henni léttir, að þetta skyldi
vera afstaðið.
Dökku augun i Sonju voru full af
tárum, og hún liafði ekki augun af
dómstjóranum þegar hann stóð upp
til að kveða upp dóminn.
— DómsniSurstaðan er sú — með
tveimur atkvæðum gegn einu — að:
Ivan Slavko, skal verða júgoslavnesk-
ur þegn á ný, og móðir hans, Sonja
Slavko, verður meðráðamaður hans,
samkvæmt 11. grein i tilskipun Sam-
einuðu þjóðanna um endurheimt barna
á ríkisborgararétti. Dómnum verður
ekki áfrýjað. Réttinum er slitið.
NÝTT HEIMILI. — NÝ ÁBYRGÐ.
Inga stóð við borðið, þar sem Toni
sat þungbúinn og alvarlegur. Hún var
i þann veginn að loka ferðatöskunni
hans. Franz stóð hjá henni með skíði
Tonis i höndunum.
— Toni, sagði Inga, — þú verSur að
reyna að borða svolítið, þaS er ekki
orðið langt þangaS til þá átt aS fara.
— Þú hefir vonandi ekki gleymt
frimerkjunum þínum, sagði Franz og
reyndi að gera röddina létta og ó-
þvingaða.
Toni hljóp út og kom aftur með
frímerkjabókina sína og öskjuna með
lausu frimerkjunum. Augun voru
blinduð af tárum og liann henti öskj-
unni þvert yfir gólfið.
Inga tindi saman frímerkin og tók
bókina upp af gólfinu. MeS skjálfandi
höndum lagSi hún hvorttveggja ofan
í töskuna og lokaði henni. Mínúturnar
liðu og skilnaðarstundin nálgaðist.
Ekkert þeirra þorði að minnast á það.
Öll þrjii höfðu þau einsett sér að láta
eins og Toni ætti að fara i skólaferð
og ekki verða að heiman nema fáeina
daga. En þegar Franz hnyklaði brún-
irnar og leit á klukkuna, vissu þau
að nú varð ekki biðið lengur.
Franz tók töskuna og Inga gekk
þungstíg niður stigann, með höndina
á öxlinni á Toni.
Úti var glaða sólskin eins og hvorki
myrkur eða sorg væri til í veröldinni.
Allir félagar Tonis stóðu fyrir utan
dyrnar til að kveðja hann, og Max
rétti honum blóm. Þeir fylgdu honum
nokkurn spöl áleiðis til stöðvarinnar,
en svo var eins og hvíslað væri að
drengjunum, að ekki væri vert að
trufla þessi þrjú, sem voru að skilja.
Þau stóðu þögul á stöðinni og þar
var Sonja og beið þeirra. Og í síð-
asta sinn tók Inga toni í faðm sér og
brosti með tárin i augunum og leiddi
hann til móður hans ...
Lestin var komin á hreyfingu. Toni
starði í sífellu út um gluggann. Sonja
hallaði sér aftur i sætinu og horfði
á hann. Hún skildi hvernig honum
var innanbrjósts. Þegar liann leit á
hana eftir dálitla stund, brosti liún
lil hans og hún sá að liann reyndi
að brosa á móti, en það tókst illa. Var
það undarlegt? Ennþá var i huga hans
mynd af einu móðurinni sem hann
vissi lil að hann ætti, fyrr en fyrir
stuttu.
Sonju langaði til að segja Toni hve
innilega glöð hún væri og hve heitt
luin óskaði að liann yrði glaður lika
og leiddist ekki í nýju heimkynnunum.
Þegar hún var aS stama upp úr sér
þessum fáu þýsku orðum, sem hún
kunni, til að segja honum þetta, gat
hann ekki stillt sig um að brosa. Svo
varð þögn á ný.
LestarvörSurinn kom inn. — Far-
miðana! sagði hann stutt.
Sonja fór að leita í töskunni sinni,
en fingurnir voru óstyrkir og fálm-
andi, og hvernig sem hún leitaði gat
hún ekki fundið miðana.
Toni horfði á hana er hún leitaði
og leitaði i öngum sinum i töskunni.
Farmiðarnir hlutu að vera þar, hugs-
aði hann með sér, hálfvegis ergilegur.
Stjörnulestur
eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungt 10. maí 1956.
Alþjóðayfirlit.
Föstu merkin, eða tregustu í áhrif-
um, eru yfirgnæfandi. Merki höfuð-
skepnanna eru jöfn í áhrifum, þó eru
loftsmerkin þróttmest, þótt ekki séu
þau yfirgnæfandi. — Venus er við
hádegismark íslenska lýðveldisins. Er
það frekar góð afstaða og bendir á
friðsæl áhrif og góðæri, en þó gæti
orðið vindasamt. — Tölur dagsins
eru: 1+5 + 5 + 6=17 = 8. Þetta er tala
Satúrns. Bendir á festu og íhald. Ven-
usarafstaðan ætti að benda á bætta
fjárhagsafstöðu, jafnvel þó að hún hafi
slæmar afstöðu Sólar og Tungls og
Mars hefir þá góða afstöður til Sat-
úrns og Neptúns. Að óvæntum leiðum
ætti að koma aðstoð.
Lundúnir. — Nýja tunglið í 9. liúsi.
Siglingar og viðskipti við nýlendurn-
ar og samvinna ætti að verða frekar
áberandi og veitt ákveðin athygli. —
Neptún í 3. liúsi. Hætt er við urg og
jafnvel verkfalli í flutningum og
járnbrautum og truflanir gætu átt sér
stað í þeim greinum. ■— Mars i 6. húsi.
Barátta og urgur meðal verkamanna
og uppþot gæti átt sér stað á herskipi.
— Merkúr í 10. húsi. Andstaða stjórn-
arinnar kemur í ljós í gegnum blaða-
skrif og umræður. — Úran og Jiipíter
í 11. húsi. Urgur út af þingmálum og
meðferð þeirra, þó gæti áhrif Júpíters
eitthvað dregið úr. — Plútó í 12. húsi.
Saknæmir verknaðir gætu komið í
ljós i sambandi við góðgerSarstofn-
anir og starfsemi þeirra.
Berlín. — Sól og tungl i 9. húsi.
Utanríkisverslun og siglingar undir
áberandi áhrifum og koma örðugleik-
ar nokkrir í ljós, sem valda truflunum.
— Neptún í 2. húsi. Athugaverð álirif
á bankastarfsemi og peningaveltu og
truflanir gætu ált sér stað, sem koma
frá þinginu og ákvörðunum þess. —
Satúrn i 3. húsi. Samgöngur, flutning-
ar undir sæmilegum áhrifum, en
bókaútgáfa og blaða undir truflunum
og verkföll gætu átt sér stað. — Mars
í 5. húsi. Leiklist og leikarar undir
slæmum áhrifum, verkfall gæti átt
sér stað. Eldur gæti komið upp í leik-
húsi eða skemmtistað. — Venus í 10.
húsi. Afstöðurnar frekar slæmar.
Stjórnin á í örðugleikum vegna sumra
Loks gat hann ekki stillt sig lengur.
Hann tók töskuna af henni og eftir
örfáar sekúndur tók liann farmiðana
upp, sigri hrósandi, og rétti lestar-
verðinum þá. Um leið og hann gerði
þetta fannst honum, að þetta mundi
hún aldrei hafa getað gert án hans
hjálpar. Það var gott að hann skyldi
vera nálægur til aS hjálpa henni.
Þegar lestarvörðurinn hafði klippt
miðana rétti hann móSurinni þá aft-
ur. En hún brosli og hristi höfuðið
og sagði eitthvað sem Toni skildi ekki.
En hann vissi hvað hún meinti: hvort
hann vildi ekki geyma farmiðana fyr-
ir hana?
Hann stakk þeim í brjóstvasa sinn,
íbygginn á svipinn. Augu þeirra mætt-
ust, og í fyrsta skipti fundu þau til
veiks en greinilegs votts um sam-
kennd.
Sonurinn hafði byrjað að bcra
ábyrgð á móður sinni ...
E n d i r .
framtaksmanna og vegna viðskipta
viS aðrar þjóðir og utanrikissiglinga.
— Úran í 11. húsi. Tafir á framkvæmd
laga og meðferð þingmála.
Moskóva. — Nýja tunglið í 7. húsi.
Utanrikismálin undir áberandi athygli
og athugaverð í mörgum greinum. Taf-
ir og urgur. — Neptún i 1. liúsi. Af-
staða almennings óábyggileg og
heilsufarið ekki sem best. — Satúrn
í 3. liúsi. Tafir á rekstri járnbrauta
og kvartanir og ákærur út af mis-
tökum. — Mars í 5. húsi. Eldur gæti
komið upp í leikhúsi eða skemmtistað.
Urgur meðal leikenda. — Merkúr i 9.
húsi. Utanríkissiglingar og flutningar
og viðskipti undir l'rekar góðum áhrif-
um, en þó gætu tafir komið til greina.
— Venus í 10. húsi, ásamt Júpíter og
Úran. Ekki sterkar afstöður og má
því búast við ýmsum örðugum við-
fangsefnum hjá ráðendunum.
Tokyó. — Nýja tunglið í 5. húsi.
Leikhús, leikarar og skemmtistarf-
semi undir áberandi áhrifum. Örðug-
leikar vegna fjárhagsmálanna. —
Mars í 2. húsi. Bankastarfsemin undir
slæmum áhrifum og vandkvæði mikil
við að stríða vegna þeirra. — Merkúr
í 6. húsi. Afstaða verkamanna ætti
að vera sæmileg og mun stjórnin hafa
veruleg áhrif á það. — Úran í 7. húsi.
Örðugleikar gætu átt sér stað i utan-
ríkismálum og kemur það frá Rúss-
landi.
Washington. — Nýja tunglið i 11.
húsi. Örðugleikar í þingum, barátta
um fjárhagsmálin og viðskipli við iðn-
að og verslun. — Úran í 1. húsi. Ó-
ánægja og urgur meðal almennings,
verkföll gætu komið til greina. Tauga-
sjúkdómar áberandi. — Júpiter í 2.
húsi. Fjárhagsmálin ættu að vera í
góðu gengi og aukning innlaga. —
Neptún í 5. húsi. Óábyggileg afstaða
leikhúsa, leikara og skemmtistaða.
Rekstrarsvik gætu komið til greina.
— Satúrn í 6. húsi. Tafir á fram-
kvæmd hagsnmna verkamanna og
þjóna og rekstri. — Mars í 8. húsi.
MaSur sem ræður þungaiðnaði gæti
látist. Eldur í orkustöð.
ÍSLAND.
10. hús. — Nýja tunglið í 10. húsi.
— Hefir sterk áhrif. Stjórnin á í örð-
ugleikum ýmsum og hefir við mörg
verkefni að glíma, fjárhagsleg, við-
skiptaleg og stjórnmálaleg, einkum
við verkamenn.
1. hús. — Merkúr ræður lnisi þessu.
UmræSur miklar um aðstöðu stjórn-
arinnar og afrek hennar. Taugasjúk-
dómar gætu átt sér stað.
2. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
Umræður miklar um fjárhagsmálin og
tafir nokkrar munu koma i ljós i
rekstri bankanna og hætt við auknum
útgjöldum.
3. hús. — Neptún í húsi þessu. Urg-
ur og óánægja gæti komið til greina
i flutningarkerfinu og verkfall átt sér
stað.
4. hús. — Satúrn í lnisi þessu. —
Hætt er við töfum nokkrum í bú-
rekstri bænda og umræSur verða um
það og gagnrýni nokkur.
5. hús. — Satúrn ræður lnisi þessu.
Leikhús og skemmtanastarfsemi mun
undir fargi nokkru og tafir á fram-
kvæmdum munu koma í ljós.
6. hús. — Mars í húsi þessu. — Bar-
átta og urgur munu áberandi meðal
verkamanna og þénandi lýðs. Verkföll
gætu komið til greina ef til vill meðal
rafvirkja og raflagningamanna.
7. hús. — Júpíter ræður húsi þessu.
Utanrikismálin munu nokkuð áber-
Framhald á bls. 14.