Fálkinn - 08.06.1956, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
Can-can dansinn í þriðja þætti.
Ævar Iívaran (sendiherrann) og
Þuríður Pálsdóttir (Velencienne).
Þjóðleikhúsið»hafði frumsýningu á
óperettunni „Kátu ekkjunni" eftir
Lehár síðastliðið föstudagskvöld. Hús-
fyllir var og sýningunni ágætlega tek-
ið. Lítill vafi er á þvi, að mikil aðsókn
mun verða á sýningum Þjóðleikhúss-
ins á óperettunni, sem margir telja
eina þá bestu, sem samin hefir verið,
enda er tónlistin létt og heillandi, svo
sem alkunna er.
Hinn danski leikstjóri og ballett-
meistari Sven Áge Larsen hefir sett
óperettuna á svið, en honum til að-
stoðar hefir verið Baldvin Halldórs-
son. Það er vandasamt verk að stjórna
sýningum sem þessum, ekki sist þegar
naumur tími hefir verið til undirbún-
ings, en sá búningur, sem Káta ekkjan
hefir verið færð í í Þjóðleikhúsinu
virðist í besta lagi.
í tvö meginhjíutverk óperettunnar
voru fengnir gestir erlendis frá, þau
Stína Britta Melander og Einar Krist-
jánsson, sem óþarfi er að kynna. Þau
hafa bæði sungið í óperuhlutverk-
um i Þjóðleikhúsinu áður. Stina Britta
Melander fer með hlutverk Kátu ekkj-
unnar á íslensku, og jivingar það
nokkuð framsögn hennar, en annars
JBtina Britta Melander í hlutverki Hönnu Glawari — kátu ekkjunnar.
Anna Brandsdóttir í hlutverki ástar-
guðsins.
er söngkonan glæsileg og hrífandi í
hlutverki sínu og syngur sig inn í
lijörtu áhorfenda. Einar Kristjánsson
fer einnig vel með hlutverk Danilos
greifa.
Onnur helstu sönghlutverkin hafa
þau á hendi Þuriður Pálsdóttir og
Magnús Jónsson. Þuríður fer með
lilutverk Valencienne sendiherrafrúar,
en Magnús með hlutvcrk de Rossilons
baróns elskhuga sendiherrafrúar-
innar.
Þeir Ævar Kvaran og Lárus Ing-
ólfsson fara með helstu gamanhlutverk
óperettunnar og tekst báðum mjög vel
að ná hylli áhorfenda. Ævar er mjög
lifandi í hlutverki hins treggáfaða
sendiherra, Mirko Zeta, og Lárus Ing-
ólfsson slær á áður þekkta strengi í
hlutverki kansilistans.
Einar Kristjánsson sem Danilo greifi.
Þorsteinn Hannesson fer með titið
hlutverk af smekkvísi, og auk þess
eru nokkpr smærri hlutverk, kór og
dansflokkur. Sérstaka athygli vöktu
hinir fallegu dansar í öðrum og þriðja
þætti, en þá hefir leikstjórinn samið
í samráði við Lisu Kæregaard og Erik
Bidsted. Einkum var dans þeirra
Bryndísar Scliram og Jóns Valgeirs
Stefánssonar heillandi. Gefur hann
góðar vonir um ])að, að þessi svo til
nýja listgrein hér á landi sé í mikilli
framför. Það er mjög þýðingarmikið
atriði, að dansarnir í sýningum sem
þessari séu vel uppbyggðir, og hér
hefir vel tekist til. Þeir gefa sýning-
unni fyllingu og móta mjög heildar-
svip hennar.
Hljómsveitarstjóri er dr. V. Ur-
bancic og leiktjöld og búninga liefir
Lárus Ingólfsson teiknað.
Á TRÖPPUM HVÍTA HÚSSINS. — Forseti Indónesíu, Soekarno. er um
þessar mundir í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum. í för með honum
er sonur hans 12 ára gamall, Guntur að nafni. Ilér sést Eisenhower taka
á móti feðgunum á tröppum Hvíta hússins.