Fálkinn - 13.07.1956, Side 3
FÁLKINN
3
Janet og maharajahinn
Tiío í IHoskva
Nýlesa héldu þau Janet Ilicks og
liinn tvítugi maharajah Mymensingh
brúðkaup sitt í bænum Braintree í
Essex, og þannig lauk fyrsta kaflan-
um í ástarsögu af því tagi, sem venju-
lega gerist aðeins í skáldsögum.
Kynni þeirra Janet og Mymensingh
liófst fyrir nokkru í London, en þar
starfaði Janet við móttöku gesta á
gistilnisi, sem maharajahinn dvaldist
á. Síðar flaug hún til Kalkútta til að
hitta þennan unga mann, sem hafði
heillað hana. Eftir nokkra dvöl þar,
hvarf hún heim aftur til þess að biðja
foreldra sína um leyfi til að giftast
Indverjanum.
Myndin er tekin af brúðhjónunum
eftir giftingarathöfnina. Þau ætla að
setjast að í Kalkútta.
Það virðast allir vera í sólskins-
skapi á þessari mynd, sem tekin var í
Moskvu, þegar Tito marskálkur kom
þangað i heimsókn ásamt konu sinni.
Þeim hjónunum var tekið með kost-
um og kynjuni, og hefir öðrum útlend-
ingum ekki verið tekið þar jafnvel,
svo að menn muni. — Lengst til vinstri
á myndinni er Vorosjilov forseti, sið-
an frú Tito og Tito marskálkur, en á
Ferscetisrtiherrir brtsku sflmveldislandiinna
Forsætisráðherrar bresku samveld-
islandanna héldu nýiega ráðstefnu í
London, og þá var þeim meðal annars
boðið að sitja veiziu hjá Elísabetu
drottningu. — Á myndinni eru, talið
frá vinstri: G. Strijdom, Suður-Afriku,
Mohamed Ali, Pakistan, S. G. Holland,
Nýja-Sjáiandi, Louis St. Laurent, Kan-
ada, Anthony Eden, Stóra-Bretlandi,
Elísabet II. drottning, R. G. Menzies,
Ástralíu, Pandit N'ehru, Indlandi, Solo-
mon Bandaranaika, Ceylon og Mal-
vern lávarður, Rhodesiu og Nyasalandi
í Afríku.
milli þeirra sést höfuðið á Malenkov.
Við hlið Titos gengur Krusjev, aðalrit-
ari kommúnistaflokksins og Bulgan-
in forsætisráðherra.
Umferðarslys eru hvergi fleiri í
heiminum, að tiltölu við fólksfjölda,
en i Vestur-Þýskalandi. Árið 1954
fórust alls 11.655 manns i umferðar-
slysum þar, en 316.993 meiddust og
verða margir þeirra örkumlamenn
ævilangt. Tala dánarslysa á hverja
10.000 bíla varð 796 í Vestur-Þýska-
landi og er það langhæst i veröldinni.
Næst kemur Holland með 650 dauða-
slys pr. 10.000 bíla, þá Sviss með 558,
Bretland með 442 og Bandaríkin með
216. Hinn gamli háskólabær Heidel-
berg hefir þann vafasama heiður að
vera mesta slysaborg i heimi. Þar urðu
220 dauðaslys á hverja 10.000 íbúa, en
209 í Frankfurt og 202 í Bonn.
70 ára varð 12. júlí Oddur Ólafsson
Kárastíg 10. Hann hefir undanfarin
ár verið starfsmaður við sjúkrahús
Hvítabandsins. — Dvelst hann nú á
heimili sonar síns, Gíslla að Garð-
yrkjustöðinni Brúnalaug, Eyjafirði.