Fálkinn - 30.11.1956, Síða 15
FÁLKINN
15
ORÐSTÍR ÍSLENDINGS.
Framhald af bls. 2.
Féllu 388 handrit úr leik, svo aðeins
fjögur verkanna kom lil greina við
úrslitadóminn.
í dómnefndinni við fyrstu könnun
tónverkanna áttu sæti:
Mlle. Naida Boulanger, ein al' fræg-
ustu tónlistarmönnum Frakklands og
heimsfræg sem tónlistarkennari, svo
og Gian Francesco Malipiero, fræg-
asta tónskáld ítala og Necil Kazim
Akses, helsti tónlistarfrömuður
Tyrkja.
í úrslitadómnefnd, sem kom sam-
an í Monte Carlo 18. og 19. apríl 1955
áttu eftirfarandi 12 heimskunnir tón-
listarmenn sæti:
Fyrrnefnd Naida Boulanger, sem
var formaður dómnefndarinnar, Necil
Kasim Akses, fyrrnefnt tyrkneskt
tónskáld, George Auric, franskt lón-
skáld og tónlistargagnrýnandi, með-
limur og meðstofnandi „félags hinna
6" („Le Six“), Aaron Copland, eitt
þekktasta tónskáld Bandaríkjanna,
Arthur Benjamin, tónskáld og hljóm-
svcitarstjóri í Sidncy (Ástralíu),
Frank Martin, svissneskt tónskáld,
Niels Viggo Bentzon, eitt þekktasta
tónskáld Dana, Andrzej Panufnic,
pólskt tónskáld og hljómsveitarstjóri,
Ernesto Halffter, spánskt tónskáld
og hljómsveitarstjóri, Sir Lennox
Berkeley, eitt þekktasta tónskáld
Breta, Pablo Casals, heimsfrægur
spánskur celloleikari og Alexander
von Spitzmiiller, austurrískt tónskáld.
Yfirumsjón með dómaðgerðum hafði
með höndum Pierre prins af Monaco,
scm stofnaði til verðlaunanna, 1000
dollara að upphæð, auk þess sem full-
trúi Olyinpíuráðsins átti sæti í nefnd-
inni, en einnig án atkvæðisréttar.
íslenski þátttakandinn i samkeppn-
inni var Þórarinn Jónsson, tónskáld,
og var tónverk hans eitt þeirra, sem
komu fram við úrslitakeppnina, þrátt
fyrir að hann hafði samið tónverk
við sitt eigið frumsamið ljóð, á þýsku,
þar sem honunl var ókunnugt um að
ákveðið hafði verið í þátttökuskilyrð-
ununi að styðjast bæri við ljóðatexta
eftir Pindar. Kanslari Olympíuráðs-
ins telur það vera heiður fyrir Þór-
arinn að verk hans kom fram við
úrslitadóminn.
Verk Þórarins hlaut 10 áritanir
hinna 12 manna dómnefndar í úrslita-
keppninni. Sigurvegari var Michal
Spisak, pólskt tónskáld, húsettur i
París, og nemandi Nadiu Boulanger.
Hlaut hann 11 atkvæði hinna 12
manna dómnefndar.
Polignac prins, faðir Rainiers
fursta af Monaco hefir ekki skaðast
á því að sonur hans giftist Grace
Kelly. Koníakkið sem hann framleiðir,
„Prins Polignac-Cognac" selst helm-
ingi betur en áður, siðan furstinn
giftist.
Á siðasta fjárhagsári, sem lauk 30.
júni, varð reksturshallinn á norsku
ríkisjárnbrautunum 98.7 milljón
norskar krónur. Er ógerningur að
lækka þcnnan halla nema með þvi að
taka upp oliukyndingu á brautunum
eða rafvirkja þær, en hætta alveg við
kolakyndingu. Að hækka taxtana þyk-
ir ekki jiorandi vegna samkeppninnar
við bifreiðarnar, sem undirbjóða
járnbrautirnar á mörgum hinna styttri
lciða.
Orðrómur gengur um það að Greta
Garbo ætli að fara að leika á ný. Eru
nú liðin fjórtán ár síðan hún lék
síðast — það var í myndinni „Léttúð-
uga konan“ árið 1942. Ýmsar hestu
myndir hennar eru sýndar við og
við ennþá, svo sem „Kristin drottn-
ing“, „Ninotsjka" og „Kamelíufrúin".
En það er talið vafasamt hvort Garbo
græði nokkuð á þvi að fara að leika
aftur. Síðan hún stóð upp á sitt besta
hefir ný lcynslóð vaxið upp, sem tign-
ar sínar nýju gyðjur — svo sem Ava
Gardner, Marilyn Monroe og Audrey
Hephurn. Það þykir vafasamt hvort
Gretu Garbo tækist að lirifa fólkið
núna því að smekluirinn er breyttur.
Og ef henni mistækist mundi hverfa af
henni ljóminn, sem hún nýtur enn
af fornri frægð sinni.
Dómari einn i Georgia í Bandarikj-
unum kom of seint í réttinn. Hann
afsakaði sig með því að hann hefði
ekki vitað betur en að réttarhaldið
ætti að byrja klukkan 10 en ekki kl.
9. — Siðan hófst athöfnin og það
fyrsta sem dómarinn gerði var að
dæma sjálfan sig í 25 króna sekt
fyrir hverja mínútu, sem hann hafði
komið ol' seint. Þetta urðu yfir 1200
krónur.
George Grogniet, fimmtugur Belgíu-
maður, var að rifna af stolti (og
kviðfylli) er liann var kjörinn heims-
meistari i eggjaáti fyrir skömmu.
Hommi tókst að innbyrða 44 soðin
egg á hálftíma.
i Japan var nýlega haldin „vika“
til að innprenta unglingum að hirða
vcl tennurnar i sér. Þessari tilstofn-
un lauk með allsherjarsýningu i
stærsta skemmtigarðinum i Tokío.
Þar burstuðu 40.000 krakkar tenn-
urnar, en stór lúðrasveit lék undir
á meðan.
£
Trúlofunarhringir
Ijósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Damas, Tissot, Certina.
Laugavegi 50. — ReyTcjavík.
Rinso þvær áva/t
og kostarySur minna
Þér getið náð dásamlegum árangri með
því að nota Rinso — raunverulegt sápuduft. —
Rinso er ekki aðeins ódýrasta þvottaduftið
heldur einnig það drýgsta og fer vel með
þvott og hendur.
Hið þykka, mjúka Rinso þvæli hreinsar vel
án þess að riudda þurfi þvottinn mikið, en
nuddið slítur þvottinum einna mest.
Best fyrir þvott og hcndur
X-R 256. 7-1225-55