Fálkinn


Fálkinn - 06.03.1959, Qupperneq 5

Fálkinn - 06.03.1959, Qupperneq 5
FÁLKINN 5 um og laukamynduðum turnum er að- eins tveggja hæða há, með löngum súlnaröðum og smágörðum með gos- brunnum. Haglega gerðar smíðajárns- grindur eru fyrir dyrum þess hluta liallarinnar, sem forðum var kvenna- búr sjahsins. Inngangurinn þangað vflr kallaður „Inngangur að liinu for- boðna“ og héldu geldingar þar vörð í tið hinna gömlu keisara. Eftir borðhaldið fylgdi Soraya gest- um sínum um salakynnin og sýndi þeim hið ótrúlega safn dýrra gripa. sem þar var saman komið. Að vísu var höll þessi rænd í orrustunum sem liáðar voru um völdin í Persíu fyrir hálfri öld, en svo mikið var þó skilið eftir, að það nægir til þess að vestur landabúi fái stýrur í augun. Krúnugimsteinarnir eru rikiseign og flestir geymdir i kjallara þjóð- bankans. Þeir sem enn eru i höllinni eru geymdir í rammlæstum klefa, og aðeins sýndir tignustu gestum. Dýr- asti krúnugripurinn er kóróna, sem nefnist „Haf úr ljósi“, með þúsund- um demanta og annarra dýrra steina. F'ramanvert er hún skreytt páfugla- fjöðrum. En í sölunum er það Páfugla- hásætið, sem fólk tekur fyrst og fremst eftir. Það var sagt að drottn- ingu væri ekki um að sýna gestum þann sal, því að það var þjóðtrú, að Páfuglahásætið væri óheillaboði. Hásæti þetta er bekkur úr skíru gulli, alstráður eðalsteinum og for- hengi úr perlum fyrir framan. Við bekkinn er stóll úr smelltu gulli með drekamyndum og gimsteinum.. Sagan segir að Nadir sjah hafi rænt þessu hásæti frá stórmógúlnum indverska eftir blóðbaðið í Dehli, er 400.000 manns var brytjað niður. En Allah refsaði hinum blóðþyrsta sjali. Hann var myrtur undireins og liann liafði náð í hásætið. Kadjarar, sem ríktu lengi í þessu hásæti voru reknir frá rikjum af Reza mikla, föður núver- andi sjalis. Og Soraya kvað hafa haft beyg af liásætinu. Kannskc hefir hún hugleitt hvað mætti fá fyrir það af krónum og aur- um til að draga úr hungri fátækl- irxganna. Páfuglahásætið kvað vera 00 milljón dollara virði! Konurnar grétu á götunum í Teher- an þegar fréttist um hjónaskilnaðinn. Soraya var vinsæl i Persiu fyrir feg- urð sina og líknarstarfsemi, og skiln- aðurinn vakti sorg um allt land. Soraya er nú 25 ára og getur ekki gifst aftur fyr en þrír mánuðir og tiu SKRÍTLUR. Greppur leikari var að falast eftir herbergi hjá frú Hagbarð, en lnin var ekki sérlega lirifin af þeirri stétt manna. — Góða frú, sagði leikarinn, þér gctið treyst því sem ég segi, að síð- asta húsmóðir mín hafði miklar mæt- ur á mér. Hún grét þegar ég fór. — Það kemur alls ekki til þess hérna. Ég læl alltaf borga húsaleiguna fyrirfram. —O— dagar eru liðnir frá algerum laga- skilnaði. Hún er dóttir núverandi persneska sendiherrans i Vestur- Þýskalandi, en móðir hennar er þýsk. Settist Soraya að hjá þeim i Köln er hún kom frá Persíu. Nú er liún á ferðalagi um Ameríku til að ná sér eftir hjúskaparraunirnar. Það er full- yrt að hún og sjaliinn unnist hugástum eftir sem áður. Síðast lét sjahinn tvö ár líða frá skilnaðinum þangað til hann fékk sér nýja drottningu, en nú kvað stjórnin reka á eftir honum, að liann giftisl sem allra fyrst. — Á hverju lifir þessi ungi maður? — Ilann lifir á að skrifa. — Ekki vissi ég að liann væri rit- liöfundur. — Nei, liann cr það ekki. En hann skrifar lieim eftir peningum. KOMIV, SEM var múruð inrti lifandi. 42. 1) í Montsegur-hallargarðinum i Dayphiné stóð á sínum tíma steinkross með þessari áletrun: „Lucie de Pracontal: 25. júní 1715. — Þann dag giftist Lucie greifanum de Quinsona. En það dró úr gleðskapnum er hin unga brúður ætlaði að brjóta apríkósukjarna og skipta möi.dlunni milli sín og mannsins síns. Þvi að í söniu svifum brotnaði hringurinn, sem hún hafði fyrir stuttu sett á fingurinn á sér. „Þetta veit á illt!“ sagði hún og varð hrædd. Gestirnir reyndu að eyða þvi. Skömmu síðar kom þeim lijónun- um saman uni að fara í feluleik, þvi að nóg var af skúmaskotum í höllinni. 2) Þetta þótti liesta skemmtun, og þegar leikurinn hafði staðið í klukkutíma var kallað að nú skyhlu allir koma fram úr felustöð- unum. Og allir skiluðu sér — nema Lucie. Það-var kallað á hana og leitað hátt og lágt, en liún fannst livergi. Eftir tveggja mánaða leit var liætt að leita i nágrenninu. Foreldrar og maður Lucie voru óhuggandi og fluttu á burt til Valence, en faöllin stóð óbyggð. 3) Árið 1750 kom ungur greifi, de Rabasteins í liöllina, sem þá var farin að hrörna, ásamt nokkrum vinum sínum. Þeir snæddu málsverð í garðinum og til þess að gera sér eitthvað til dægra- styttingar á eftir liugkvæmdist þeim að fara i feluleik i liöllinni. Rabastein lenti inni i þröngum, dinimum gangi og er liann þrýsti sér upp að veggnum fann hann að hann lét undan og leynihurð opnaðist. Hann fór inn um dyrnar og skellti hurðinni eftir sér; varð nú fyrir honum stigi úr steini ofan i kjallaraklefa. Ofurlitla skimu lagði inn um rifu i veggnum. Hann þreifaði fyrir sér og þegar augu hans fóru að venjast myrkrinu sá liann borð með tveimur stólum livoru megin. í öðrum stólnum sat ung kona með lokuð augu, angurblitt bros liafði stirðnað á vörunum og hörundið var skorpið eins og á múniíum. 4—5) Hann liafði lesið áletrunina á steinkrossinum og heyrt um afdrif Lucie. Skildi hann þvi undir eins að þarna væri liorfna brúðurin. Ekki var liann neitt liræddur við líkið. Ilitt óttaðist hann meira, að hann yrði fyrir sömu örlögunum og Lucie. Hann sat þarna lokaður inni í sólarhring, en það varð honum til liapps að köttur hallarvarðarins kom inn um rifuna á klefanum. Hann náði í liann og batt vasaklútinn sinn um magann á honum og kött- urinn liljóp út söniu leið og þá fór félaga Rabasteins að gruna margt. Hann gat líka látið heyra til sín gegnum rifuna.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.