Fálkinn


Fálkinn - 27.03.1959, Blaðsíða 11

Fálkinn - 27.03.1959, Blaðsíða 11
FÁLKINN 11 ★ Tískumgndir ★ STUTTUR PELSJAIÍKI ÚR NERTY. — Hann er til margra hluta hent- ugur, þessi jakki, enda bæði fínn og mjög fallegur. í leikhúsið, yfir kjól eða dragt er hann tilvalinn. Kósakkahúfan er af sama skinni. LITLA SAGAN. Flugferð ÞaS var einkum tvennt, sem cin- kenndi Áslák heildsala; i fyrsta lagi var hann frámunalega ágjarn, og i óðru lagi ótrúlega afturhaldssamur, svo afturhaldssamur að hann taldi liverja einustu framför i veröldinni blóðuga móðgun við sjálfan sig og sína hagsmuni. Þá sjaldan Áslákur heildsaii var i ferðalagi, hafði .hann sama lagið á sem faðir hans og afar — með járn- braut, kannske stöku sinnum með skipi, ef um stutta leið var að ræða. En flugferðir voru honum viður- styggð. „Það er tilgerð, og í allan máta óforsvaranlegt, var hann vanur að segja — að fólk ferðaðist í loftinu. Við mennirnir vorum settir á jörðina í þeim tilgangi að við héldum okkur við hana. Og auk þess er óguðlega dýrt að ferðast í flugvél.“ En svo gerðist það að Áslákur komst ekki hjá að fljúga. Það atvikaðist þannig, að bróðir hans, sem átti heima á vesturlandinu, bauð honuni heim til sín. Og boðinu fylgdi farmiði með flugvél. Áslákur heildsali var lengi vel á báðum átt- um. Þarna var þriggja vikna heim- boð i boði, og ókeypis far — að minnsta kosti aðra leiðina. Hins veg- ar var ógurlegt að hugsa til þess að eiga að fara upp í skýin. Hnnn hafði svarið að aldrei skyldi nokkur mátt- ur geta fengið hann til að fara upp í flugvél, en þessi gjafafarmiði var freistandi. Hann kostaði hundrað og fimmtíu krónur, upphæð, sem Áslák- ur mundi aldrei hafa lagt í jafn tví- sýnt fyrirtæki. Eftir langa andvökunótt komst liann þó á þá skoðun að hann skyldi brjóta í bág við skoðun sína — að- eins í þetta eina skipti. Annars mundi hann sem sé aldrei getað fyrirgefið sér, að hann hefði látið hundrað og finnntiu krónur fara til ónýtis. Þrátt fyrir liatur sitt á flugvélum og öllu þeirra athæfi, varð Áslákur að játa, að talsvert fleiri færust i bilslysum en flugslysum. Hann var að hugsa málið þangað til hálftíma áður en flugvélin fór. Sat heima í stofu með töskuna til- húna og farmiðann í hendinni, en köldum svita sló út um liann við til- hugsunina um ferðina. Hann leit á miðann og rak strax augun í „150 krónur“. Það var ófyrirgefanlegt að láta svo mikla peninga fara í súginn. Hann þreif töskurnar, baksaði með þær á næstu strætisvagnabiðstöð — hann leigði sér aldrei bíl — og ók á flugfélagsskrifstofuna. Hræðslublandin andúð greip Áslák heildsala er hann sá vélina. Honum mistókst að setja á sig sams konar svip og hinir farþegarnir, sem fóru um borð. Hann var sann- færður um, að einmitt svona eins og honum mundi lömbunum líða, er þau eru til slátrunar leidd. Hann reyndi að brosa til flugfreyjurinar, sem stóð ofan við stigann, en brosið varð að afkáralegum grettum. Hann kvaldist af hræðslu undir eins og hann var sestur. Honum fannst hann vera lóðaður inni i bhkkdós, sem enginn kæmist úr lífs. Nú fór kaldi svitinn að koma fram á enninu á honum, hendurnar rétt- ust og krepptust á vixl, og hjartað var eins og fallhamar. Hann tókst á loft í stólnum þegar hann heyrði að dyrunum var lokað og stiganum ekið frá. Nú var engin jeið opin til baka. Aklrei hefir nokkur sál unnið al- varlegra heit en Áslákur gerði núna. Aldrei skyldi hann koma inn í flug- vél framar. Nú fór annar hreyfillinn að mala, og svo hinn. Áslákur náði varla and- anum. Hann þorði ekki að líta út um gluggann. Hann nagaði neglurnar og pírði augunum, heitstrengdi að hafa þau lokuð meðan á fluginu stæði. Þetta var 55 minútna flug, hafði hon- um verið sagt. Nú var malið i hreyflunum orðið að öskri. Flugvélin titraði og Áslákur titraði enn meira. „Nú líður yfir mig,“ hugsaði hann með sér. Og svo leið yfir banri. Ásláki varð ekki ljóst hve lengi hann var í yfirliðinu. Hann fann að Iiendi var stutt á öxlina á lionum. Allt var hljótt kringum bann. Iiann opnaði annað augað og rak upp fagn- aðaróp. Vélin stóð á vellinum. Hann var þá kominn. Og vissi ekki neitt af flugferðinni. Vonandi hafði eng- inn tekið eftir, að hræðslan rændi hann meðvitundinni í 55 mínútur. Hann sneri sér að flugfreyjunni, sem hafði hnippt í hann og brosti alúð- lega. „Þá er þetta búið,“ sagði hann. „Já,“ sagði freyjan og brosti á móti, „nú eru hreyflarnir orðnir lieitir, og við léttum eftir augnablik. Viljið þér gera svo vel að girða beltið.“ Þá var það, sem Áslákur heildsáli féll i ómegin á tiltölulega skömmum tíma. NÚ ER ÞAÐ EKKI HATTURINN heldur dragtin, sem við skulum at- huga. Hún er dálítið óvanaleg. Krag- inn er líning bundin að framan, vas- arnir hátt og ermarnar beinar fram og víðar. Mittið hátt. Vitið þér...? að kringum 350 ár er síðan kveikt var á fyrsta jólatrénu í Evrópu? l?að gerðist í Strasbourg árið 1604. Einhverjum hugkvæmdist að taka lit- ið grenitré og skreyta það með ljós- um, glingri og gjöfum. Þetta féll í góða jörð og á næstu 100 árum urðu jólatrén algeng í Evrópu. í Ameríku var ekki farið að nota jólatré fyrr en um miðja síðustu öld. að hægt er að búa til 6 pör af knattspyrnuskóm úr einni kýr- húð? Knattspyrnan er allra íþrótta vin- sælust hjá flestum þjóðum, og þess vegna er það ekki smáræði, sem slit- ið er af knattspyrnuskóm. 1 Dan- mörku er slitið út 21.600 pörum af þessum skóm á ári, eða 3.600 kýr- húðum. VDÍ2-J hvers vegna yfirmenn á nær öll- um her- og kaupskipum eru í blá- um einkennisbúningi? Ýmsir hafa haldið að jjessi Iitur ætti að vera tákn hafsins, en skýr- ingin er önnur: í gamla daga var indigó eini lialdgóði liturinn sem menn þekktu, gegn seltu og sól, og þess vegna var liturinn valinn. —- Maður þekkir varla hann Olsen síðan hann missti allar eignirnar sínar. — Nei, þvi skyldi maður þekkja hann, ef ekki væri til þess að fá lán- aða lijá honum peninga?

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.